Fréttablaðið - 26.09.2013, Qupperneq 6
26. september 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hversu mikið hraðar súrnar hafi ð
en áður var talið?
2. Hvaða þjóðhöfðingi afþakkar
heimboð Bandaríkjaforseta vegna
njósnamáls?
3. Að hverju leitar Hugvísindasvið Há-
skóla Íslands þessa dagana?
SVÖR:
1. Tífalt hraðari. 2. Dilma Rousseff , for-
seti Brasilíu. 3. Fegurstu orðum íslenskrar
tungu.
MENNTUN Illugi Gunnarsson
menntamálaráðherra tekur undir
með kennurum og vísindamönnum
við helstu háskóla landsins um að
framlög til rannsókna séu mikil-
væg til framþróunar og aukins
hagvaxtar. Hins vegar hafi áform
fyrri ríkisstjórnar um 550 milljóna
aukningu framlaga til Rannsókna-
sjóðs byggt á veikum forsendum
um fjármögnun.
Í fjárfestingaáætlun fyrri ríkis-
stjórnar var gert ráð fyrir 550
milljónum í viðbótarframlög til
Rannsóknasjóðs, sem nú býr yfir
800 milljónum króna. Illugi segir
að það komi í ljós við framlagn-
ingu fjárlaga í næstu viku hver
framlögin verði. Það sé fjármála-
ráðherrans að kynna fjárlögin.
„En ég get auðvitað tekið undir
áhyggjur þeirra af stöðu þessara
mála,“ segir menntamálaráðherra
og vísar þar til greinar fjórtán
kennara og vísindamanna í Frétta-
blaðinu í gær.
Hins vegar hafi framlögin
verið tengd fjárfestingaáætlun
fyrri stjórnar sem byggði á veiði-
gjaldi sem aldrei hefði skilað þeim
tekjum sem ætlast var til.
„Sem sýnir hversu óheppilegt er
að tengja jafn mikilvæg mál eins
og vísindastarfsemina í landinu
við slíka skattstofna.“ Framlög
sem þessi eigi að fjármagna beint
úr ríkissjóði eins og önnur mikil-
væg útgjöld.
Illugi minnir á að ríkissjóður
sé skuldum hlaðinn og vaxta-
byrði þeirra skulda sé gífurleg.
Rannsóknastarf sé mikilvægt til
eflingar atvinnu- og efnahagslífs
enda mikið fé veitt í þær. Hér sé
aðeins verið að ræða áðurnefnda
aukningu. - hmp
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra um framlög til Rannsóknasjóðs:
Forsendur skorti fyrir hækkun framlaga
PERSÓNUVERND Persónuvernd úrskurðaði í gær
að Fiskistofu hefði verið óheimilt að beita falinni
myndavél í Njarðvíkurhöfn í febrúar síðastliðnum.
Ástæðan var skortur á viðvörunum.
„Þetta er mikilvæg löggjöf sem Persónuvernd er
að framfylgja þarna en eftirlit með myndavélum er
gríðarlega mikilvægt fyrir Fiskistofu. Við þurfum
mjög á því að halda að geta beitt myndavélum í
okkar eftirliti,“ sagði Eyþór Björnsson fiskistofu-
stjóri um niðurstöðuna.
Að sögn Eyþórs eru allir eftirlitsmenn Fiskistofu
búnir myndavélum til að geta tekið ljósmyndir og
eins myndbandsbrot.
Úrskurðurinn virðist ávísun á að illmögulegt sé
að koma upp um brot af þessu tagi. „Þetta er mjög
erfiður málaflokkur. Erfitt að upplýsa brot ef við
megum ekki nota myndavélar og gerir okkur erfitt
fyrir. Það er svo mikilvægt fyrir okkur að átta
okkur á því hvernig aðilar haga sér við að fremja
brotin svo við getum gripið inn í og stöðvað þau
brot,“ segir Eyþór.
Fiskistofu er gert að eyða öllum upptökum. - jbg/vg
Persónuvernd úrskurðaði að Fiskistofa mátti ekki nota myndavélar:
Bannað að nota falda myndavél
NJARÐVÍKURHÖFN Fiskistofu var óheimilt að beita falinni
myndavél á höfninni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ég get
auðvitað tekið
undir áhyggjur
þeirra af stöðu
þessara mála.
Illugi Gunnarsson
menntamála-
ráðherra
DÓMSMÁL „Já halló, ég heiti
Friðrik Brynjar. Ég held ég hafi
drepið mann.“
Á þessum orðum hefst símtal
Friðriks Brynjars Friðrikssonar
í Neyðarlínuna aðfaranótt þriðju-
dagsins 7. maí síðastliðins. Upp-
taka af samtalinu var leikin í
Héraðs dómi Reykjaness í gær,
þar sem fram fór síðari hluti aðal-
meðferðar í manndrápsmáli á
hendur Friðriki Brynjari.
Friðrik Brynjar er ákærður
fyrir að hafa ráðið nágranna
sínum, Karli Jónssyni, bana í íbúð
þess síðarnefnda við Blómvang 2
á Egilsstöðum, veitt honum ótal
áverka með hnífi og skilið hann
eftir liggjandi í blóði sínu á svölum
íbúðarinnar.
Friðrik Brynjar hefur neitað sök
en segist hafa farið heim til Karls í
tvígang þessa nótt. Í fyrra skiptið
hafi þeim lent saman og Friðrik
síðan rokið á dyr, en í seinna
skiptið hafi hann komið að honum
látnum.
„Ég kýldi hann einu sinni, beint
hnefahögg, og hann datt niður
og ég dró hann með mér út fyrir
svalirnar,“ heyrist Friðrik segja við
starfsmann Neyðarlínunnar.
Í samtalinu fullyrðir Friðrik
að hann hafi ekki slegið Karl að
ástæðulausu. „Hann réðst á mig,“
sagði hann, og: „Hann reyndi að
kyssa mig.“
Sambýliskona Friðriks bar
vitni fyrir dómnum í gær. Hún
lýsti kvöldinu örlagaríka á þann
veg að þau hefðu verið í heimsókn
hjá vinnufélaga Friðriks og hefðu
þurft að leita á heilsugæslustöð
eftir að hundur húsráðandans beit
Friðrik í fingurinn. Eftir heim-
komuna hefði Friðrik Brynjar
farið út að ganga með tík þeirra,
nokkuð við skál, en snúið aftur í
fylgd lögreglu, mun ölvaðri.
„Hann var mjög rólegur,“ full-
yrti hún, hefði síðan afklæðst inni
í eldhúsi og lagst til svefns. Þá
hefði lögregla horfið af vettvangi.
Sjálf sagðist hún hafa verið vak-
andi í klukkustund á eftir að sinna
grátandi dóttur þeirra, sem þá var
átta mánaða, og aftók með öllu að
Friðrik Brynjar hefði farið aftur
út um nóttina. „Hann fór ekki út
aftur – ég hefði vaknað við það.“
Þá lýsti þýskur réttarmeinafræð-
ingur því fyrir dómnum að spor
eftir hund hefðu fundist í blóði inni
á heimili Karls.
Hann lýsti því að morðinginn
hefði veitt Karli 92 áverka með
hnífi „með miklum ofsa og ofbeldi“.
Til marks um ofsann nefndi sá
þýski að gríðarlegt afl þurfi til
að stinga hníf í gegnum rifbein
manns, auk þess sem brot úr hnífn-
um hefðu orðið eftir í höfði Karls.
Búast má við dómi innan
fjögurra vikna. stigur@frettabladid.is
Friðrik Brynjar taldi
sig hafa drepið mann
Upptaka af samtali grunaðs morðingja við Neyðarlínuna var leikin í héraðsdómi
í gær. Í því segist hann hafa slegið mann og jafnvel banað honum. Stór eldhús-
hnífur gekk í gegnum rifbein hins látna og brot úr hnífnum sátu eftir í höfði hans.
NEITAR SÖK Friðrik Brynjar hefur aldrei viðurkennt að hafa ráðist að Karli með
hnífi. MYND/PRESSPHOTOS
Í máli deildarstjóra Rannsóknar-
stofu í lyfja- og eiturefnafræði
kom fram að útreikningar á
áfengismagni í blóði Friðriks
bentu til þess að fyrr um kvöldið
eða nóttina hafi það verið 2,5 til
3 prómill, og jafnvel enn meira
en það. Samkvæmt skala sem
þar sé notaður þýði það að hann
hafi verið mjög ölvaður eða með
áfengiseitrun.
Var ofurölvi
VEISTU SVARIÐ?
Verðtryggð skuldabréf
Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. LSS150224
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. kt. 580407-1100, hefur birt viðauka
við grunnlýsingu LSS150224 dagsett 24. apríl 2013 vegna töku
skuldabréfa til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland
hf. Viðaukann og gögn sem vitnað er til í honum er hægt að
nálgast hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., Borgartúni 30, 105
Reykjavík og á vefsíðu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
www.lanasjodur.is fram til lokagjalddaga skuldabréfanna.
Nafnverð útgáfu: Heildarnafnverð skuldabréfanna sem
óskað hefur verið að tekin verði til
viðskipta 27. september 2013 er
150.000.000 kr. heildarnafnverð
lokksins er þá 30.614.500.000 kr.
Nafnverð hverrar einingar er 1 kr.
Skilmálar bréfanna: Skuldabréfin eru verðtryggð
Jafngreiðslubréf. Bréfin bera fasta
3,75% ársvexti sem greiddir eru
hálfsárslega, 15. febrúar og 15. ágúst
ár hvert, í fyrsta sinn 15. febrúar 2009
og í síðasta sinn 15. febrúar 2024.
Auðkenni flokksins á NASDAQ OMX
Iceland hf. er LSS150224 og ISIN
númer IS0000018869.
Reykjavík, 26. september 2013.
Lánasjóður sveitarfélaga ohf
Klettsbúð 9 - 360 Hellissandur - S: 430 8600
hotelhellissandur@hotelhellissandur.is
www.hotelhellissandur.is
Meðal rétta í hlaðborðinu:
Ísl. Hreindýr - Ísl. Gæs - Ísl. Önd - Krónhjörtur
Rjúpusúpa - Dúfa - Lynghæna - og margt fleira.
Verð aðeins 9.500 kr. á mann.
Ef þú vilt bæta við gistingu þá kostar gisting með morgunverðar-
hlaðborði og villibráðarhlaðborði 15.900 kr. á mann í tveggja
manna herbergi. Verð fyrir einn í herbergi er 19.900 kr. á mann.
sjá um lifandi tónlist fyrir gesti
að loknu borðhaldi.
Pantanir í síma
430 8600
26. október & 2. nóvember.
Magnús og Jóhann