Fréttablaðið - 26.09.2013, Side 10
26. september 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Föstudaginn 27. september kl. 12:00-13:00
í Aðalbyggingu, stofu 220
Fyrirlestrarröð Konfúsíusarstofnunarinnar
Norðurljósa og Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands.
Hvernig getur Ísland hagnast á þeim ávinningi að vera fyrsti
fríverslunarsamningsfélagi Kína í Evrópu? Pétur Yang Li varpar
ljósi á mikilvægi fríverslunarsamnings Íslands og Kína, sem teygir
sig lengra en hinn hefðbundni tvíhliða samningur.
Erindið fer fram á ensku.
Pétur Yang Li er viðskiptafulltrúi við sendiráð Íslands í Peking.
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós og Viðskiptafræðideild Háskóla
Íslands standa fyrir sameiginlegri fyrirlestraröð um viðskipti við
Kína frá ýmsum sjónarhornum.
Allir velkomnir
Viðskiptatengsl Íslands og Kína:
Hvað er framundan?
Viðskiptafræðideild
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
UPPLÝSINGATÆKNI Prófanir
hefjast á ný á nýju þráðlausu net-
sambandi í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar um miðjan nóvember.
Frá þessu er greint á vef
Túrista þar sem segir að nú-
verandi tölvukerfi Keflavíkur-
flugvallar sé ekki nógu öflugt
til að hægt sé að bjóða upp á net-
tengingu í flugstöðinni.
Til stóð í byrjun sumars að
hætta að rukka farþega fyrir
aðgang að þráðlausu neti. Verk-
efnið reyndist hins vegar flókn-
ara en gert var ráð fyrir og hefur
Túristi það eftir Isavia, rekstrar-
aðila flugvallarins, að sérstakur
búnaður sé nauðsynlegur til þess
að hægt sé að ráða við álagið sem
fylgir notkuninni. - ibs
Uppfæra þarf tækjabúnað:
Beðið eftir fríu
neti í Leifsstöð
Í FLUGSTÖÐINNI Gestir í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar greiða 490 krónur fyrir
klukkutíma aðgang að þráðlausu neti.
Íransforseti boðar
sættir og samlyndi
Rúhaní Íransforseti virðist staðráðinn í að bæta samskiptin við Bandaríkin og
önnur Vesturlönd. Hann vill samningaviðræður um kjarnorkumálin og lætur,
ólíkt forvera sínum í embætti, alveg vera að tala illa um Ísrael og Bandaríkin.
MÓT-
MÆLENDUR
Í NEW YORK
Á ýmsu hefur
gengið í sam-
skiptum Banda-
ríkjanna og Írans
síðustu árin.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
© GRAPHIC NEWSMynd: Getty Images
2013, 4. ágúst: Hassan Rúhaní, 65 ára,
tekur við forsetaembætti Írans.
30. ágúst: Allir ráðherrar ríkisstjórnar
Rúhanís opna Facebook-síður.
4. september: Rúhaní sendir
nýárskveðjur á Twitter til gyðinga sem
halda upp á Rosh Hashana.
5. september: Múhammad Javad Zarif,
nýr utanríkisráðherra Írans, fordæmir
fjöldamorð þýskra nasista á gyðingum,
og þar með lauk helfararafneitunar-
tímabili íranskra stjórnvalda.
18. september: Rúhaní lýsir því yfir að
Íran muni aldrei reyna að útvega sér
gereyðingarvopn, að kjarnorkuvopnum
meðtöldum. Sama dag leysir hann tólf
þekkta pólitíska fanga úr haldi.
22. september: Ákvörðunarvald í kjarn-
orkumálum fært frá hinu harðlínusinnaða
þjóðaröryggisráði til ráðuneytis Zarifs.
23. september: Rúhaní sýnir sáttahug
gagnvart Bandaríkjunum og fleirum
í fyrsta ávarpi sínu á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna.
Nýr
forseti
með
nýjan
tón
ÍRAN Í dag hittast á fundi í höfuð-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna
þeir Múhammad Javad Zaríf,
utanríkisráðherra Írans, og John
Kerry, hinn bandaríski starfs-
bróðir hans.
Þetta verður einn af sárafáum
fundum sem svo háttsettir full-
trúar þessara þjóða hafa átt síðan
bylting var gerð í Íran árið 1979.
Á fundinum verða einnig starfs-
bræður þeirra frá Rússlandi,
Kína, Bretlandi, Bandaríkjunum
og Þýskalandi.
Umræðuefnið verður hin
umdeilda kjarnorkuáætlun Írans,
sem Bandaríkjamenn og Ísraelar
óttast að stefni í áttina að kjarn-
orkuvopnum.
Íranar hafa síðustu árin ekki
haft mikinn áhuga á að ræða
þessi mál við Bandaríkin eða
önnur Vesturlönd.
Það hefur breyst eftir að
Hassan Rúhaní tók við embætti
forseta Írans síðla sumars.
Hann virðist staðráðinn í
að bæta samskipti lands síns
við umheiminn og hefur notað
hvert tækifæri til að gera öðrum
löndum þetta ljóst.
Hann ávarpaði allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna í New York
á þriðjudag og kvað þar við allt
annan tón en þegar forveri hans,
Mahmúd Ahmadínedjad, talaði
þar. Hann lét það til dæmis alveg
vera að tala illa um Ísrael eða
Bandaríkin.
Rúhani sagðist vilja uppbyggi-
leg samskipti við önnur ríki
byggð á gagnkvæmri virðingu
og sameiginlegum hagsmunum.
Hann fullyrti að heimsbyggðinni
stafaði engin hætta af Íran og
sagðist endilega vilja viðræður
við Barack Obama Bandaríkja-
forseta um kjarnorkuáætlun
Írans.
Minnstu munaði reyndar að
þeir Obama hittust á þriðju-
daginn, þegar þeir fluttu báðir
ávarp á allsherjarþinginu.
Báðum þótti það hins vegar ekki
ráðlegt og ákváðu að geyma það
til betri tíma að ræða saman.
Obama sagðist hins vegar,
í sínu ávarpi, jafn staðráðinn
og fyrr í að koma í veg fyrir að
Íranar gætu komið sér upp kjarn-
orkuvopnum.
gudsteinn@frettabladid.is
➜ Rúhaní ávarpaði allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna í
New York á þriðjudag og kvað
þar við allt annan tón en
þegar forveri hans, Mahmúd
Ahmadínedjad, talaði.