Fréttablaðið - 26.09.2013, Qupperneq 16
26. september 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
Skipholti 37
Sími 568 8388
Opið laugardaga frá 11-16
Til að rýma fyrir nýjum og glæsilegum
vörum bjóðum við úrval ljósa og fylgihluta
á frábæru verði í nokkra daga.
35.000 kr.
Verð áður 55.000 kr.
Can Can
ALLT AÐ
LJÓSASALA Í LUMEX
FRÉTTASKÝRING
Hvað líður vímuefnaneyslu ungmenna?
Neysla á tóbaki, áfengi og vímu-
efnum í grunnskólum landsins hefur
dregist ört saman síðustu árin.
Þetta kemur fram í könnun
sem framkvæmd var af R&G við
Háskólann í Reykjavík í ár og tók
til allra nemenda á mið- og eldra
stigi grunnskóla landsins og allra
framhaldsskólanema, og var kynnt
í gær. Þó er víða pottur brotinn, sér-
staklega hvað varðar stökkið milli
grunnskóla og framhaldsskóla.
Margrét Lilja Guðmundsdóttir,
hjá R&G, kynnti niðurstöðurnar á
fundi í gær og benti meðal annars
á að á meðan fimm prósent 10.
bekkinga síðasta vor sögðust hafa
orðið ölvuð síðustu 30 daga, svöruðu
35 prósent sextán og sautján ára
framhaldsskólanema þessari
spurningu játandi. Margrét Lilja
segir í samtali við Fréttablaðið að
sú forvarnarvinna sem unnin sé,
skili sér greinilega, en þarna verði
greinileg viðhorfsbreyting milli
skólastiga, bæði í hópi foreldra og
ungmenna, sem vinna þurfi á.
„Þegar komið er upp í framhalds-
skólana segjast krakkar verða vör
við breytt viðhorf heima fyrir og að
foreldrar gefi þeim lausari taum-
inn.“ Margrét segir að þörf sé á því
að skýra stefnu varðandi hlutverk
framhaldsskólanna í forvörnum.
„En svo snýst þetta auðvitað um
okkur foreldrana og að við eigum
ekki að sætta okkur við það að börn
undir sjálfræðisaldri séu að drekka
áfengi.“ thorgils@frettabladid.is
Stökkið milli skólastiga afdrifaríkast
Ný könnun Rannsóknar og greiningar (R&G) leiðir í ljós jákvæða þróun í neyslumynstri grunn- og framhaldsskólanema, en þó má greina
mikla aukningu í áfengisdrykkju þar sem ungmenni verða ölvuð og í kannabisreykingum milli 10. bekkjar og fyrstu ára í framhaldsskóla.
Ívar Dór Orrason
„Ekki hvað varðar sjálfan
mig, en aðrir – já. Ég er enn
þá ákveðinn í að drekka ekki,
flestir úr tíunda bekk hafa
núna prófað að drekka. Í
framhaldsskóla nú er allt umtal um að
drekka mun jákvæðara.“
Þorbjörg Erna
Mímisdóttir
„Ég hef ákveðið að drekka
ekki, en mér finnst núna ekki
eins hræðilegt og áður að
aðrir á mínum aldri drekki.
Það þykir bara eðlilegt og allir eru að
réttlæta þetta.“
Drífa Rós Bjarnadóttir
„Já. Í tíunda bekk var
litið neikvætt á að
drekka, en í menntaskóla
er talað þannig að ef þú
drekkur ekki getir þó
ekki skemmt þér nóg.“
Anna Kristín
Semey Bjarnadóttir
„Þegar ég var í tíunda
bekk voru nokkrir farnir
að drekka og reykja. Ég
hef því verið í kringum
krakka sem gera það, án þess að ég
reyki eða drekki sjálf, svo það var ekki
mikil breyting að upplifa það núna.“
Gunnar Hlynur
Úlfarsson
Já, maður þekkir miklu
fleiri núna sem drekka
og reykja heldur en
maður gerði í tíunda
bekk. Krökkum finnst þetta mikið
eðlilegra.“
Rebekka Margrét
Ágústsdóttir
„Já. Það var eiginlega
um leið og útskriftin úr
tíunda bekk var búin. Þá
héldu allir að það væri
allt í lagi að fara að drekka. Kannski því
að þeim þykir þau vera svo fullorðin.“
Hvað segja nýnemarnir?
Verður þú var/vör við annað viðhorf til áfengisneyslu nú heldur en þegar þú varst í tíunda bekk. Spurt í MH.
10
0
20
30
40
50
60
70
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2000 2004 2007 2010 2013
➜ Ölvunardrykkja, daglegar reykingar og kannabisneysla í 10. bekk
➜ Viðhorf foreldra til drykkju að mati nemenda
Ölvun sl. 30 daga
Daglegar reykingar
Prófað hass eða maríjúana
Ölvun sl. 30 daga
Daglegar reykingar
Prófað hass
Prófað maríjúana
Eyða helgum oft/nær alltaf með
foreldrum (9. og 10. bekkur)
Hlutfall nemenda sem stunda
íþróttir með Íþróttafélagi
fjórum sinnum í viku eða oftar
➜ Hvað gerist milli skólastiga?
0 2010 305 2515 35
2013 Grunnskóli, 10. bekkur
2013 Framhaldsskóli, 16 og 17 áraDaglegar reykingar
Ölvun sl. 30 daga
Prófað hass
Prófað maríjúana
10. BEKKUR 2013
Algerlega
á móti
Næstum
alveg sama
68% 2%
1. ÁR Í FRAMHALDSSK.
Algerlega
á móti
Næstum
alveg sama
34% 10%
Heimild:
Rannsóknir
og greining