Fréttablaðið - 26.09.2013, Side 58
26. september 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 46
FÓTBOLTI „Þetta var skýrt mark-
mið svo árangurinn var alveg í
takt við væntingar,“ segir Björn
Einarsson, formaður knattspyrnu-
deildar Víkings. Karlalið félagsins
tryggði sér sæti á meðal þeirra
bestu í dramatískri lokaumferð í
1. deild karla um liðna helgi. Gengi
liðsins var upp og niður í allt
sumar en svo fór að góð markatala
tryggði liðinu 2. sætið í deildinni
á kostnað Hauka og Grindvíkinga.
„Þetta var frábært tímabil og
við misstum aldrei trúna,“ segir
Björn. Hann segir liðið heilt yfir
hafa spilað afar vel þótt erfið-
lega hafi gengið í upphafi seinni
umferðar. Liðið steinlá 6-1 á Sel-
fossi og liðið var án sigurs í næstu
þremur leikjum.
„Annars spilaði liðið frábærlega
og var að mínu mati besta liðið í
deildinni.“
Víkingur kom upp úr 1. deildinni
sumarið 2010 en féll jafnharðan
sumarið á eftir. Þá vann liðið
aðeins þrjá leiki og hafnaði í
neðsta sæti með 15 stig.
„Ég held að við séum mun betur
í stakk búnir fyrir skrefið en
þegar við fórum upp 2010,“ segir
Björn. „Það gekk á ýmsu sumarið
2011 en menn náðu í gríðarlega
mikla reynslu.“
Á skilið ÍMARK-verðlaunin
Formaðurinn segir fjárhagsstöðu
knattspyrnudeildar Víkings góða
og félagið vel búið undir skrefið
upp. Liðið verði styrkt.
„Félagið er tilbúið að taka þátt
í öllu sem hægt er að gera á leik-
mannamarkaðnum,“ segir Björn
en ljóst er að Ólafur Þórðarson
verður áfram með liðið. Skaga-
maðurinn lauk sínu öðru ári á
þriggja ára samningi við Foss-
vogsklúbbinn. Hann fær þá miklu
áskorun að festa Víking í sessi
en liðið hefur staldrað stutt við í
heimsóknum sínum í efstu deild
undanfarna tvo áratugi.
Í nýárskveðju knattspyrnu-
deildar Víkings til stuðnings-
manna sinna í árslok 2010 var
yfirlýst markmið að Víkingur yrði
„besta knattspyrnulið landsins eigi
síðar en árið 2014“. Liðið féll strax
um sumarið en nú er markmiðið
aftur orðið að möguleika.
„Mér finnst að þessi kveðja ætti
að fá ÍMARK-verðlaunin. Þetta
situr svo fast í mönnum,“ segir
Björn léttur og vísar í árleg mark-
aðsverðlaun. „Kannski þurfum við
að dusta rykið af markmiðunum.“
Björn segir að fljótlega muni
þeir setjast niður með Ólafi þjálf-
ara og skoða framhaldið. „Við
erum rétt að rakna úr rotinu eftir
fagnaðarlætin,“ segir Björn sem er
stórhuga sem fyrr. Víkingur varð
síðast Íslandsmeistari árið 1991.
„Við ætlum með liðið í fremstu
röð. Það er ljóst.“ - ktd
Víking í fremstu röð
Formaður knattspyrnudeildar Víkings segir deildina vel í stakk búna til að taka
þátt í baráttunni á leikmannamarkaðnum fyrir komandi sumar í efstu deild.
GAMAN Í FOSSVOGINUM Leikmenn Víkings fagna einu af fjölmörgum mörkum sínum í Víkinni í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FÓTBOLTI Forráðamenn ítalska
knattspyrnufélagsins Palermo
hafa rekið Gennaro Gattuso sem
stjóra liðsins en Ítalinn stýrði lið-
inu aðeins í sjö deildarleikjum.
Palermo leikur í ítölsku B-
deildinni og náði aðeins í sjö stig í
stjóratíð Gattuso.
Palermo tapaði fyrir Bari, 2-1,
á þriðjudagskvöldið og var það
kornið sem fyllti mælinn.
Giuseppe Iachini mun taka
við liðinu út leiktíðina en þetta
er í tólfta sinn sem forráðamenn
Palermo reka stjórann sinn á síð-
ustu tveimur árum.
Sem leikmaður var Gattuso
ávallt skrautlegur og olli oft á
tíðum miklum usla inn á
miðsvæðinu.
Sem leikmaður lék Ítalinn með
Perugia, Rangers, Salernitana og
í heil þrettán ár með AC Milan.
Gattuso, sem er 35 ára, hóf
stjóraferil sinn fyrr á þessu ári
þegar hann var spilandi þjálfari
hjá svissneska liðinu Sion. Þaðan
var hann ráðinn til Palermo í vor
en dvöl hans þar varð mjög svo
stutt. - sáp
Gattuso rekinn
frá Palermo
REKINN Þjálfaraferill Gattuso fer ekki
vel af stað. Hann á að baki magnaðan
feril sem leikmaður. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Samkvæmt enskum fjöl-
miðlum mun Brendan Rodgers,
knattspyrnustjóri Liverpool, gera
allt sem hann getur til að lokka
Gylfa Þór Sigurðsson frá Totten-
ham Hotspur í janúar.
Liverpool tapaði fyrir Sout-
hampton, 1-0, um síðustu helgi og
vantaði töluvert upp á miðjuspilið
hjá liðinu í leiknum. Stjórinn vill
því fjárfesta í skapandi miðju-
manni og það sem allra fyrst.
Brendan Rodgers fékk Gylfa
Þór til liðs við Swansea á sínum
tíma og þekkir vel til leikmanns-
ins.
Rodgers mun líklega leggja
fram tilboð upp á 12 milljónir
punda í Íslendinginn í janúar.
Gylfi hefur verið frábær að
undanförnu bæði með Tottenham
Hotspur og íslenska lands liðinu.
Samkeppnin hjá Tottenham er
aftur á móti orðin gríðarlega
hörð og verður Íslendingurinn að
halda vel á spöðunum til að halda
sæti sínu í liðinu. - sáp
Gylfi orðaður
við Liverpool
EFTIRSÓTTUR Gylfi Þór hefur ítrekað
verið orðaður við Liverpool.
NORDICPHOTOS/GETTY
ÍSLAND–SVISS
Laugardalsvöllur | Kl. 18:30 í kvöld!