Fréttablaðið - 01.10.2013, Page 4
1. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Við teljum
því farsælt að
Reykjavík
bætist við og
verði ásamt
Reykjanesbæ
þungamiðjan í
verkefninu.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra
SVEITARSTJÓRNIR Skipulagsmál höfuðborgar
Íslands eru ekki einkamál íbúa Reykjavíkur eða
kjörinna sveitarstjórnarmanna borgarinnar, held-
ur þjóðarinnar allrar,“ segir í bókun sveitarstjórn-
ar Bláskógabyggðar sem fulltrúar annarra sveitar-
félaga í skipulagsnefnd uppsveita Árnessýslu taka
heils hugar undir.
Í bókun sveitarstjórnarinnar er lýst óánægju
með þau áform Reykjavíkurborgar að flugvöllur
hverfi úr Vatnsmýri. Sem höfuðborg hafi Reykja-
vík miklar skyldur gagnvart landsbyggðinni. Í
borginni hafi átt sér stað mikil uppbygging „á
þjóðargrundvelli“, svo sem heilbrigðisþjónusta, þar
sem nýtt hafi verið fjármagn allrar þjóðarinnar.
„Rétt er að benda á að fulltrúar Reykjavíkur-
borgar hafa tryggan aðgang að öðrum skipulags-
ákvörðunum á landsvísu, svo sem miðhálendi
Íslands, þó það svæði falli ekki innan stjórn-
sýslumarka Reykjavíkurborgar. Það er því ský-
laus krafa sveitarstjórnar Bláskógabyggðar að
tekið verði tillit til hagsmuna og sjónarmiða
annarra sveitarfélaga þegar um er að ræða slík
grundvallarmál í þjónustu við landsmenn alla,“
segir í bókunninni sem fulltrúar Grímsness- og
Grafnings hrepps, Hrunamannahrepps, Skeiða- og
Gnúpverjahrepps, Flóahrepps og Ásahrepps hafa
einnig gert að sinni.
- gar
Sveitarfélög í uppsveitum Árnessýslu krefjast þess að þau komi að ákvörðun um Reykjavíkurflugvöll:
Skipulagsmál ekki einkamál Reykvíkinga
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR Borgin hefur
aðkomu að skipulagi miðhálendisins og því
eiga önnur sveitarfélög að koma að skipu-
lagi borgarinnar segja sveitarfélög í Árnes-
sýslu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur
8-15 m/s NV-til, annars hægari.
RÓLEGHEIT Það verður hægur vindur á landinu næstu daga. Yfirleitt þurrt
norðvestanlands og styttir upp suðvestantil. Heldur vætusamt austan til áfram.
5°
2
m/s
7°
0
m/s
8°
3
m/s
10°
6
m/s
Á morgun
3-8 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
7°
5°
10°
8°
5°
Alicante
Basel
Berlín
29°
21°
13°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
14°
16°
20°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
13°
13°
27°
London
Mallorca
New York
18°
29°
25°
Orlando
Ósló
París
30°
13°
21°
San Francisco
Stokkhólmur
19°
10°
10°
2
m/s
10°
3
m/s
10°
3
m/s
X°
0
m/s
7°
2
m/s
6°
2
m/s
5°
4
m/s
7°
3
m/s
10°
6°
10°
9°
6°
HÆLISLEITENDUR Innanríkis-
ráðuneytið á nú í viðræðum við
forráðamenn Reykjanesbæjar og
Reykjavíkurborgar um að sveitar-
félögin skipti með sér þjónustu við
hælisleitendur. Þetta staðfestir
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra, en Borgarbyggð og
Kópavogsbær hafa einnig lýst yfir
áhuga á að sinna slíkum málum.
Reykjanesbær hefur síðustu
misseri séð að langmestu leyti
um þjónustu við hælisleitendur en
í vor lýstu forsvarsmenn bæjar-
ins því yfir að ekki væri svig-
rúm til að taka við fleiri hælis-
leitendum. Mikil aukning hefur
verið á umsvifum vegna þessara
mála. Þannig voru hátt í 190 hælis-
leitendur hér á landi síðasta vor, en
síðsumars voru þeir um 150 talsins.
„Við byrjum á því að miða við að
hvert sveitarfélag um sig sinni allt
að 50 hælisleitendum,“ segir Hanna
Birna og bætir við að Reykjanes-
bær hafi sinnt þessum málum vel
síðustu ár.
„Þau búa yfir mikilli reynslu og
vilja sinna málunum af metnaði, en
töldu sig ekki geta ráðið við þá miklu
fjölgun sem orðið hefur. Við teljum
því farsælt að Reykjavík bætist við
og verði ásamt Reykjanes bæ þunga-
miðjan í verkefninu.“
Innanríkisráðuneytið hefur að
undanförnu unnið að tillögum um
umbætur í málum hælisleitenda
hér á landi með það fyrir augum
að stytta málsmeðferð. Dæmi eru
um að fólk hafi þurft að bíða í vel
á annað ár eftir að fá úrlausn sinna
mála.
Hanna Birna segir að málinu
miði vel áfram og hún búist við að
flytja frumvarp á haustþingi þar
sem kynntar verða margvíslegar
breytingar. Meðal annars verði leit-
ast við að hraða málsmeðferð.
„Það gerum við meðal annars
með því að innleiða svokallaða 48
klukkustunda reglu sem við sækj-
um til Noregs. Þannig fái hælis-
leitendur svar innan 48 stunda um
það hvort þeir uppfylli skilyrði sem
hælisleitendur eða ekki.“
Hanna Birna segir að meðal ann-
ars verði unnið út frá svokölluðum
„öruggum lista“ frá Noregi og Sam-
einuðu þjóðunum þar sem talin eru
upp ákveðin lönd sem búa þegnum
sínum þannig skilyrði að ekki sé
ástæða til þess að þeir njóti þeirra
réttinda sem hælisleitendur hafa.
Hún segir að við það ætti að vera
búið að taka mesta kúfinn af þeim
fjölda sem er til meðferðar hverju
sinni.
„Við náum þá að þjónusta þá sem
þurfa nauðsynlega á þjónustunni
að halda og getum gefið skýrari og
skjótari svör. Þá verður hægt að
vinna í því að fækka í þeim hópi
sem bíður afgreiðslu.“
thorgils@frettabladid.is
Reykjavík þjónusti
einnig hælisleitendur
Innaríkisráðuneytið á nú í samningum við Reykjavík um að taka að sér þjónustu
við hælisleitendur. Reykjanesbær mun áfram sinna allt að 50 hælisleitendum en
Borgarbyggð og Kópavogur hafa einnig áhuga á að koma að málaflokknum.
SKIPTA MEÐ SÉR FJÖLDANUM Reykjavík og Reykjanesbær munu hvort um sig
sinna allt að 50 hælisleitendum. Borgarbyggð og Kópavogur hafa einnig áhuga á að
taka þátt. Nýtt frumvarp í haust á að stytta málsmeðferðartíma hælisleitenda. Þessi
mynd var tekin þegar hópi hælisleitenda frá Króatíu var vísað úr landi í vor.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÍTALÍA, AP Áfrýjunarréttarhöld
hófust í gær í máli Amöndu Knox
og fyrrverandi kærasta hennar,
sem áður höfðu verið sýknuð af
ákæru um morð.
Amanda var þó víðs fjarri, en
hún hélt heim til Bandaríkjanna
strax eftir að fyrri áfrýjunar-
réttarhöldum lauk með sýknu
árið 2011, en áður hafði hún
verið dæmd sek í undirrétti og
úrskurðuð í 26 ára fangelsi.
Lögmenn hennar vísa því á
bug að ástæða þess að hún hafi
ákveðið að mæta ekki til réttar-
haldanna sé að hún sé sek. - gb
Réttarhöld hafin á Ítalíu:
Amanda Knox
mætir ekki
AMANDA KNOX Var bandarísk náms-
mær á Ítalíu þegar grunur féll á hana og
ítalskan kærasta hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMFÉLAGSMÁL Þau börn sem þola
ekki þann mat sem í boði er í skól-
um þurfa að reiða fram læknis-
vottorð til þess að fá sérfæði.
Þetta kemur fram á vefsíðu
fyrir tækisins Skólamatur, sem
sér um matseld í yfir tuttugu
grunn- og leikskólum.
Þar kemur fram að ástæðan
sé sú „að við þurfum sönnun
fyrir því að um læknisfræðilegar
orsakir sé að ræða en ekki matar-
smekk eða persónulegt mat á ein-
stökum matartegundum.“ - nej
Matarsmekkur ræður ekki:
Læknisvottorð
fyrir sérþarfir
VIÐSKIPTI Eignarhaldsfélagið
Gaumur hefur verið úrskurðað
gjaldþrota. Félagið var höfuð-
fyrirtæki Baugsfjölskyldunnar
svokölluðu, og átti meðal annars
Haga. Samkvæmt upplýsingum
í Lögbirtingablaðinu var félagið
úrskurðað gjaldþrota þann 18.
september síðastliðinn.
Fréttastofa RÚV greindi fyrst
frá málinu en þar kom fram að
samkvæmt heimildum frétta-
stofunnar væru skuldir Gaums
við lánastofnanir á bilinu fimm
til sex milljarðar króna. - vg
Umdeilt félag í þrot:
Gaumur orðinn
gjaldþrota
TÚNGATA 6 Fyrrverandi höfuðstöðvar
Gaums. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NOREGUR Hægri flokkurinn, með
Ernu Solberg í fararbroddi, ætlar
í ríkisstjórnarviðræður með
Framfaraflokknum. Formaður
flokksins er Siv Jensen.
Solberg segist ekki hafa gefið
þann draum upp á bátinn að
mynda ríkisstjórn með öllum
borgaralegu flokkunum sem
eru fjórir talsins. Hinir flokk-
arnir tveir, Venstre og Kristilegi
þjóðar flokkurinn, segjast ekki
vilja fara í samstarf með Fram-
faraflokknum vegna stefnu hans í
málum innflytjenda. - nej
Línurnar skýrast í Noregi:
Solberg og Siv
ætla í samstarf
JÓHANNAVILHJÁLMSDÓTTIR
Matur, lífsstíll,sjúkdómar
JÓHANNA VILHJÁLM
SDÓTTIR
HEILSURÁÐGJÖF
Benedikta Jóndóttir sölustjóri og heilsuráðgjafi
Heilsutorgsins gefur góð ráð varðandi vítamín
og bætiefni alla virka daga
milli 11:00 og 18:00.
Heilsubók Jóh
önnu
Kynningarver
ð
3.990 kr
4.990 kr
700 Íslendingar rúmlega látast árlega af völdum
hjarta- og æðasjúkdóma
og 50 til 70 börn fæðast árlega með
hjartagalla.
Hjartadeild Landspítala framkvæmdi
um 200 aðgerðir í hverjum mánuði
árið um kring.