Fréttablaðið - 01.10.2013, Qupperneq 14
1. október 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Sara McMahon sara@frettabladid.is
VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Byrjar ballið
Alþingi verður sett í dag. Þá byrjar
ballið fyrir alvöru. Íslendingar fengu
smjörþefinn af komandi vetri í
tveimur þingstubbum í sumar og
haust; alls 25 þingfundadagar þar
sem gamlir og nýir þingmenn fengu
færi á að skerpa raust og leggja línur
fyrir skotgrafir vetrarins. Fjárlögin og
allt sem á þeim hangir verður eflaust
fyrsta stóra málið.
Sama sullið
Án þess að vilja spilla fyrir upp-
lifun spenntra áheyrenda má spá
eftirfarandi með
nokkurri vissu:
Orðagjálfrið og
átakastemningin
sem einkenndi
störf síðustu
þinga ríkir sem aldrei fyrr og fyllir
upp í almenna stjórnmálaumræðu.
Mál málanna verða sem hér segir:
Stjórnarandstaðan sakar stjórnina
um að svíkja Alþingi og þjóðina um
þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB.
Stjórnin svarar með því að stjórnar-
sáttmálinn hafi verið passlega loðinn
og óskýr og fyrri stjórn hafi hvort
sem er ekki spurt þjóðina um álit á
málinu. Þá kemur að náttúruvernd
gegn nýtingarstefnu, þar sem
umræðan verður enn heitari.
Annar hópurinn talar um
náttúruna og börnin okkar,
hinn talar um endurreisn
efnahagslífsins og
börnin okkar.
Mótmæli á
Austur-
velli.
Hverjir ráða hvernig fer?
Einar K. Guðfinnsson, forseti
Alþingis, mun með jöfnu millibili
minna þingmenn á að gæta orða
sinna. Brynjar Níelsson og Vigdís
Hauksdóttir munu segja eitthvað
sem gerir allt vitlaust og gleymist
svo strax. Forsvarsmenn þingflokk-
anna munu koma saman í umræðu
um störf þingsins og undirstrika
þörfina á að bæta umræðuna til að
auka tiltrú á Alþingi. Allt fer í háaloft
þegar talið berst að því hver beri
ábyrgð á núverandi ástandi og
ekkert gerist. Þeir einu sem geta
komið í veg fyrir að þessi spá
rætist eru 63 karlar og konur sem
eru til viðtals í gegnum skrif-
stofu Alþingis.
thorgils@frettabladid.is
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Í gær hófst nýr kafli í hönnunarsögu Íslend-
inga þegar hönnunarsjóður stjórnvalda kall-
aði eftir umsóknum í fyrsta sinn. Hönnunar-
sjóður er fyrsti opinberi sjóður sinnar
tegundar hérlendis.
Hönnunarsjóður var stofnaður á þessu
ári og heyrir undir mennta- og menningar-
málaráðuneytið. Hlutverk sjóðsins er að efla
þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á
sviði íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Til
þessa hafa hönnuðir haft fá tækifæri til að
sækja fé í opinbera sjóði þótt arðsemi hönn-
unar og arkitektúrs verði ekki vefengd.
Fjármagn hönnunarsjóðs árið 2013 er
tryggt. Framtíðarhorfur sjóðsins eru óræð-
ari en munu skýrast þegar fjárlög verða
samþykkt á haustþingi. Þar mun reyna á
samvinnu þingflokka. Hönnunargeirinn ber
þverfaglegri samvinnu gott vitni. Vonandi
er að vel takist til á Alþingi í ár.
Hönnunarmiðstöð lyftir Grettistaki
Á fyrsta starfsári hönnunarsjóðsins mun
hann njóta umsýslu Hönnunarmiðstöðvar
og hefur sjóðsstjórn góðar væntingar til
þeirrar samvinnu. Hönnunarmiðstöð hefur
unnið geysimikið starf við að hlúa að kjarn-
miklum gróanda íslenskrar hönnunar. Hún
hefur lyft grettistaki við að koma hönnuðum
og afurðum þeirra á framfæri innanlands
sem erlendis.
Kraftur og dugur hönnuða hefur verið
kærkominn áhrifavaldur í að auka verðmæti
og bæta lífsgæði undanfarin ár, þrátt fyrir
erfiðar aðstæður. Nú styttist í að hönnunar-
stefna stjórnvalda verði birt, en hún endur-
speglar mikilvægi hönnunar í öllum þáttum
atvinnulífsins. Það ríður á að þeirri stefnu
verði fylgt eftir á öllum sviðum stjórnsýsl-
unnar. Fólkið í hönnunargeiranum mun ekki
láta sitt eftir liggja þegar kemur að því að
vinna með stjórnvöldum við að efna sinn
hlut. Með frumkvæði og nýsköpun getum
við skapað íslensku samfélagi fjölbreytt lífs-
viðurværi af auðlindum hugans.
Íslenskir hönnuðir hafa fyrir löngu sýnt
að þeir hafa bæði dug og getu til að marka
spor á breiðstrætum hönnunar og arkitekt-
úrs heima og heiman. Hönnunarsjóður getur
haft úrslitaáhrif á upphaf og þróun nýsköp-
unarverkefna og afkomu og vöxt sjálfstæðra
hönnuða og fyrirtækja. Með öflugum vexti
og viðgangi hönnunar og arkitektúrs munu
stjórnvöld, þegar fram líða stundir, geta sótt
þjóðinni björg í bú. Hönnunarsjóður er því
mikið fagnaðarefni.
Björg í bú
HÖNNUN
Ólafur
Mathiesen
arkitekt og
formaður stjórnar
hönnunarsjóðs
➜ Kraftur og dugur hönnuða hefur
verið kærkominn áhrifavaldur í að
auka verðmæti og bæta lífsgæði
undanfarin ár.Nýir Heilsuréttir fjölskyldunnar
2. prentun
væntanleg
H
átíðirnar tvær sem haldnar voru í Laugardalnum
um helgina kenndu sig báðar við vonina. Hvað
skipuleggjendur þeirra vonuðu var hins vegar
ekki augljóst. Var það von um betra samfélag
sem vísað var til eða von um að sem flestir
aðhylltust þá stefnu sem hvor um sig boðaði? Hina einu réttu
stefnu sem sé.
Sannfæringin um að einhver tiltekin skoðun sé réttari en
önnur hefur væntanlega fylgt mannskepnunni frá upphafi
vega. Til hvers að hafa skoðun yfirleitt ef þú trúir ekki að
hún sé sú rétta? Virðingar-
leysið fyrir skoðunum annarra
og tilheyrandi skortur á
umburðarlyndi hefur hrundið
af stað fleiri átökum og stór-
styrjöldum en nokkuð annað.
Þar hafa trúarbragðahreyf-
ingar verið framarlega í flokki
og ótölulegur fjöldi fólks hefur
tapað lífinu fyrir þá sök eina að aðhyllast eða aðhyllast ekki
hina einu réttu trú. Hvernig hægt hefur verið að réttlæta
slíkan yfirgang í nafni manns sem bauð að við skyldum elska
óvini okkar er ein af ráðgátunum í veraldarsögunni, en enn
er ekkert lát á mannvígum í nafni Jesú Krists.
Annað sem stundað er grimmt í nafni frelsarans er for-
dæming á tilteknum tilbrigðum í ástalífi fólks. Setningin
fræga „Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum“ sem
höfð er eftir Kristi á ekki upp á pallborðið hjá harðlínufólki
sem þykist lifa samkvæmt kenningum hans. Einn þeirra,
hinn margumræddi Franklin Graham sem predikaði á Hátíð
vonar um helgina, baðst reyndar undan því að bera ábyrgð
á þeirri skoðun sinni að samkynhneigð væri synd og vísaði
í gríð og erg í Biblíuna þeirri skoðun til stuðnings. „Guð
segir það“ var viðkvæðið. Það er varla hægt að verða meira
stikkfrí en það.
Viðbrögðin við komu predikarans til landsins og því að
biskup Íslands skyldi tala úr sama predikunarstól og hann
eru svo önnur Ella sem tíunduð hefur verið í fjölmiðlum og
verður ekki farið út í hér. Það sem upp úr írafárinu stendur
er spurningin um skoðana- og málfrelsi. Má hann ekki bara
hafa sína skoðun í friði? spurði fólk sem studdi hátíðina. Er
ekki skoðanafrelsi í landinu? Stutta svarið við þeirri spurn-
ingu er nei. Fordómar gegn kynhneigð, trúarbrögðum, húðlit,
kyni eða þjóðerni annarra flokkast nefnilega ekki sem
skoðanir. Að láta þá í ljós á ofstækis- eða hatursfullan hátt er
ekki leyfilegt samkvæmt íslenskum lögum. Fólk getur síðan
haft misjafnar skoðanir á þeim lögum en það breytir ekki
því að á meðan þau eru í gildi ber fortakslaust að fara eftir
þeim.
Það er því með öllu óskiljanlegt að þjóðkirkjan, sem segist
styðja réttindabaráttu samkynhneigðra, skyldi senda for-
stöðumann sinn til að styðja fordómana. Þetta ætti ekki að
vera flókið: Hatursorðræða varðar við lög. Og þau lög eiga
væntanlega líka við um þá sem bera Guð fyrir skoðunum
sínum.
Eru fordómar skoðanir?
Guð segir það