Fréttablaðið - 01.10.2013, Qupperneq 22
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
4 1. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR
Árið 2004 þegar Chrysler tilheyrði
Daimler-samsteypunni, sem er móður-
félag Mercedes Benz, urðu til nokkrir
spennandi bílar á teikniborði Chrysler.
Sumir þeirra fóru í framleiðslu, eins og
Chrysler 300C, Chrysler Crossfi re og
ölnotabíllinn Chrysler Pacifi ca. Aðrir
náðu því bara að vera smíðaðir sem
tilraunaeintök og þessi flotti Chrysler
ME-Four Twelve Concept var einn þeirra.
Hann var sannkallaður ofurbíll með V12
tólf strokka vél frá Mercedes Benz sem
var miðjusett í bílnum. Hann var fær um
að ná 100 km hraða á 2,9 sekúndum
og 160 km hraða á 6,2 sekúndum með
sín 850 hestöfl. Hann hefði hæglega
getað keppt við ofurbíla þess tíma eins
og Ferrari Enzo. Sprengirými vélarinnar,
sem var frá AMG-hluta Benz, var sex
lítrar.
Bíllinn var afturhjóladrifi nn og tengdur
við 7-gíra skiptingu sem skipta mátti
með flipum á stýrinu. Yfi rbygging bílsins
var að mestu úr koltre um og áli og vóg
bíllinn aðeins 1.310 kíló, þótt nokkuð
stór væri, en var þó aðeins ætlaður
tveimur farþegum. Bíllinn fór samt aldrei
í framleiðslu. Daimler varð síðan að
selja Chrysler með umtalsverðu tapi og
eignarhaldið var álitið mikil mistök. Þó
hagnaðist Chrysler árin 2004 og 2005,
en eftir það fór að síga á ógæfuhliðina.
Flottur Chrysler ME-Four Twelve sem aldrei varð að veruleika
Þessi bandaríski bíll hefði verið verðugur keppinautur Ferrari Enzo.
Range Rover selst sem aldrei fyrr.
Land Rover
hefur ekki
undan
Þeir eiga aldeilis við gott vandamál
að stríða hjá Land Rover-fyrir-
tækinu. Þar á bæ hafa menn ekki
undan að smíða hinar nýju gerðir
bíla sinna og til dæmis er níu
mánaða bið eftir Range Rover
Sport, en aðeins minni biðröð er
eftir stærri bróður hans, Range
Rover, eða sex mánuðir. Báðir eru
þessir bílar af tiltölulega nýrri
gerð og líka svona vel. Þrátt fyrir
að Range Rover kosti 55 millj-
ónir í Kína eru margir vel stæðir
Kínverjar svo viljugir að krækja í
bílinn að þeir eru tilbúnir að borga
tíu milljónir króna ofan á það til að
komast fremst í röðina og fá bílinn
afhentan fljótt.
Vandi Land Rover-fyrirtækisins
er sá að ómögulegt er að auka
framleiðsluna mikið meira en nú
er, því í verksmiðjunni í Solihull
þar sem bíllinn er framleiddur,
er unnið 24 klukkutíma sólar-
hringsins og erfi tt að fi nna fleiri
tíma í honum. Einnig er örðugt
fyrir Land Rover að fá fleiri vélar
afgreiddar í bílana því þær eru frá
Ford og þar er einnig erfi tt að auka
framleiðslugetuna. Því sitja Land
Rover-menn uppi með vandamál
sem erfi tt er að leysa, en margur
bílaframleiðandinn vildi einmitt
sitja uppi með svona vandamál.
Volkswagen XL1 fær nú krafta í
kögglum.
Volkswagen XL1
með Ducati-
mótorhjólavél
Eins lítra bíll Volkswagen, XL1,
sem fyrirtækið er um það bil að
afhenda fyrstu eintök af til eigenda
sinna, er einn sparneytnasti bíll
heims. Hann eyðir aðeins 0,9
lítrum á hverja hundrað kílómetra
og slær við upphaflega markmið-
inu með smíði bílsins, að framleiða
bíl sem eyðir einum lítra. Sá bíll er
með 47 hestafla tveggja strokka
vél og 27 hestafla rafmótor að
auki. Volkswagen ætlar greinilega
ekki að bjóða hann eingöngu í
þessari útfærslu því á leiðinni er
XL1 með 195 hestafla mótorhjóla-
mótor sem fenginn er frá Ducati.
Volkswagen þarf ekki að
leita langt yfi r skammt til að fá
þessa vél frá Ducati, því ítalski
mótorhjólaframleiðandinn er í eigu
Volkswagen. Þessi öflugi mótor
Ducati er með 1.199 cc sprengirými
og snýst upp í 11.500 snúninga á
mínútu. Þessi mótor hefur verið
notaður í Ducati Panigale-ofur-
hjólið og ætti að duga þessum
smáa og létta XL1 vel á sprettinum.
Með því að losna við þungar raf-
hlöðurnar og fá í staðinn þennan
létta mótor ætti þessi bíll að verða
alger raketta.
Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is
Umboðsaðilar:
Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800
Bílver, Akranesi, sími 431 1985
Höldur, Akureyri, sími 461 6020
Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535
www.honda.is
L/100KM Í BLÖNDUÐUM AKSTRI
C02 ÚTBLÁSTUR AÐEINS 94 g
HONDA CIVIC 1.6 DÍSIL KOSTAR FRÁ KR.
HONDA CIVIC 1.4 BENSÍN - BEINSKIPTUR, KOSTAR FRÁ KR. 3.490.000
HONDA CIVIC 1.8 BENSÍN - SJÁLFSKIPTUR, KOSTAR FRÁ KR. 3.840.000
Áreiðanlegasti bílaframleiðandinn
Samkvæmt What Car og Warranty Direct
hefur Honda verið valin áreiðanlegasti
bílaframleiðandinn átta ár í röð.
Bí
ll á
m
yn
d:
H
on
da
C
ivi
c 1
.6
i-D
TE
C
E
xe
cu
tiv
e.
3,63,3 4,0L /100km L /100kmL /100km
Utanbæjar akstur
Blandaður akstur
Innanbæjar akstur
CO2
útblástur
94 g/km
Komdu í reynsluakstur og prófaðu Honda Civic dísil,
með nýrri Earth Dreams Technology dísilvél, sem
býður upp á einstakt samspil sparneytni og krafts.