Fréttablaðið - 01.10.2013, Page 38
1. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 30
„Þetta var fyrsta „show“ sinnar
tegundar sem haldið var á Íslandi
eftir að Harpan varð til,“ segir Frið-
rik Ómar Hjörleifsson, tónlistar-
maður og stofnandi Rigg ehf., um
heiðurstónleika Freddie Mercury.
Yfir 40.000 manns hafa sótt tón-
leikana og enn eru þrennir Freddie
Mercury heiðurstónleikar á döfi nni.
„Þetta verða fimmtán tónleikar
í heildina, ef við teljum þá tónleika
með sem eftir eru hafa um 42.000
manns komið á tónleikana,“ bætir
Friðrik Ómar við.
Það er svo sannarlega ekki
gefi ns að halda tónleika á Íslandi
en samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins kostar rúmlega eina mil-
ljón króna að leigja Eldborgarsalinn
í Hörpu, undir eina tónleika. Með
tæknibúnaði og miðasölugjöldum
getur upphæðin orðið tæpar þrjár
milljónir króna. Í Hofi á Akurey-
ri kostar leiga á stærri salnum,
Hamra borg, um 400 þúsund krónur,
einnig getur bæst við kostnaður við
leigu á búnaði og vinnu.
„Ég er í rauninni einn í þessu og
mér fi nnst mjög gaman að standa í
þessu. Það er einnig mjög ánægju-
legt að hugmynd sem ég fæ geti
veitt fjölda fólks vinnu en það
koma um 30 til 40 manns koma
að Freddie-sýningunni,“ bætir
Friðrik Ómar við.
Friðrik Ómar stofnaði Rigg árið
2008 og hafa fjölmargir viðburðir
verið skipulagðir af fyrirtækinu.
Næsta verkefni Rigg er Bee
Gees-heiðurstónleikarnir sem
haldnir verða í Háskólabíó hinn
12. október næstkomandi. - glp
Aðsóknarmestu tónleikar síðari ára á Íslandi
Yfi r 40.000 manns hafa sótt Heiðurstónleika Freddie Mercury sem haldnir eru af Rigg Events & Music ehf.
MIKIL AÐSÓKN Friðrik Ómar Hjörleifs-
son stendur á bak við heiðurstónleika
Freddie Mercury. MYND/GASSI
PI
PA
R\
TB
W
A
·
S
ÍA
·
1
32
7
74
Fiskikóngurinn
Sogavegi 3 • www.fiskikongurinn.is
„Við erum alveg í skýjunum yfir
þessu. Þetta er yndislegt,“ segir
Alexander Örn Númason, bassa-
leikari The Vintage Caravan.
Rokktríóið hefur skrifað undir
samning við þýska útgáfufyrir-
tækið Nuclear Blast, sem er
stærsta sjálfstæða þungarokks-
útgáfa heims. Á meðal þekktra
hljómsveita sem eru á mála
hjá fyrirtækinu eru Sepultura,
Anthrax, Soulfly, Biohazard,
Exodus og Overkill.
Flestar hljómsveitirnar hjá
Nucelar Blast eru á meðal þeirra
fremstu í þungarokki eða dauða-
rokki en að sögn Alexanders
Arnar eru sjö til átta sveitir í
klassíska rokkgeiranum eins og
The Vintage Caravan.
Aðspurður segir Alexander
Örn að samningurinn kveði á
um að næstu plötur The Vintage
Caravan komi út hjá Nuclear
Blast. Einnig er stefnt á að önnur
plata sveitarinnar, Voyage sem
kom út hjá Senu í fyrra, komi út í
janúar úti um allan heim í nýjum
umbúðum.
„Þetta gerðist eiginlega óvart.
Þetta er í raun og veru einu
manni að þakka,“ segir bassa-
leikarinn um samninginn. „Það
er þýskur maður sem við kynnt-
umst á Eistnaflugi árið 2012.
Hann er búinn að láta hlutina
gerast að okkur óafvitandi.“
Auk útgáfusamningsins hefur
The Vintage Caravan gert samn-
ing við austurríska bókunar-
skrifstofu. Hljómsveitin spilar
á Roadburn-hátíðinni í Hollandi
í apríl og líklega fer hún í tón-
leikaferðalag í janúar þegar plat-
an kemur út.
Fáið þið ekki góðan pen-
ing fyrir samninginn? „Þetta
er þokkalegur peningur. Þetta
snýst aðallega um að við fáum
nægt fjármagn til að gera plötu
og til að koma okkur út. Við erum
ekkert að tala um tugi milljóna
en það verður ágætlega séð um
okkur.“
Nýtt myndband The Vintage
Caravan er komið út við lagið
Expand Your Mind. Leikstjóri
var Bowen Staines, sem leik-
stýrði einnig myndböndunum við
Fjöru með Sólstöfum og Gleipni
með Skálmöld. Það var tekið upp
á skemmtistaðnum fyrrverandi
Faktorý.
freyr@frettabladid.is
Sömdu við eina
stærstu útgáfu heims
Rokktríóið The Vintage Caravan hefur gert útgáfusamning við Nuclear Blast frá
Þýskalandi sem er stærsta sjálfstæða þungarokksútgáfa veraldar.
The Vintage Caravan sækir innblástur sinn í klassískt rokk frá árunum í
kringum 1970, sveitum á borð við Led Zeppelin, Cream, Deep Purple, Jimi
Hendrix, Trúbrot og Óðmenn. Meðal nýlegra sveita í uppáhaldi eru The
Mars Volta og The Black Keys.
Hljómsveitin hét upphaflega The Vintage og tók þátt í Músíktilraunum
árið 2009 þar sem hún lenti í þriðja sæti. Haustið 2010 breyttist nafnið
í The Vintage Caravan og sveitin spilaði á Iceland Airwaves. Hljómsveitin
sigraði í undankeppni Global Battle of the Bands hér á landi í fyrra.
Sækir innblástur í klassískt rokk
Hjónin Hrönn Helgadóttir organisti og Davíð
Ólafsson óperusöngvari eignuðust litla dóttur
í fjölskyldubílnum fyrir utan verslunina Pfaff
á Grensásvegi í fyrrinótt. Barninu virtist
liggja nokkuð á að komast í heiminn og kom
það því í hlut föðurins að taka á móti henni í
framsætinu. Móður og barni heilsast vel.
Hrönn og Davíð voru á leið upp á fæðingar-
deild frá heimili sínu í Mosfellsbænum á
heimilisbílnum, litlum Volkswagen Touran,
þegar þeim varð ljóst í hvað stefndi. Davíð
ákvað þá að aka inn Grensásveginn, leggja
uppi á stétt og taka á móti stúlkunni. Það leið
ekki nema mínúta frá því að Davíð hringdi á
sjúkrabílinn og þangað til að barnið, sem á
læknaskýrslum er nú kallað Pfaffstúlkan, var
komið í fang móðurinnar.
„Hún gaf í, svo ég gaf í og bað svo bara til
guðs að löggan myndi ekki stöðva mig,“ segir
Davíð um fæðinguna.
Fyrir eiga hjónin saman fjögurra ára tví-
bura, og Hrönn tvö eldri úr fyrra sambandi.
- mlþ
Fæddi barn í bíl á Grensásvegi
Davíð Ólafsson óperusöngvari tók á móti dóttur sinni og Hrannar Helgadóttur.
THE VINTAGE CARAVAN Rokktríóið The Vintage Caravan hefur gert útgáfusamning
við þýska fyrirtækið Nuclear Blast. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HEILSAST VEL Dóttir Hrannar Helgadóttur og Davíðs Ólafssonar
fæddist í bílnum á leiðinni upp á fæðingardeild.
„Ég er yfirlýstur chili-fíkill og
finnst helst ekkert gott nema það
innihaldi mikið chili. Ég enda oftast
á Ban Thai, þeir gera góðan mat og
eru ófeimnir við sterkt krydd.“
Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir, annar umsjónar-
manna sjónvarpsþáttarins Á fullu gazi.
BESTI BITINN