Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.10.2013, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 08.10.2013, Qupperneq 2
8. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Reynir, væri ekki hryllilegt að vinna þessi verðlaun? „Nei, ég hræðist það ekki.“ Frost, kvikmynd Reynis Lyngdal leikstjóra, keppir um verðlaunin Gylltu hauskúpuna á hryllingsmyndahátíðinni Screamfest sem verður haldin í Los Angeles síðar í mánuðinum. SPENNANDI OG RÍKULEGA MYNDSKREYTT FÓLK Þjáningar flóttafólks frá Sýrlandi hafa látið fáa ósnortna og margir hafa lagt sitt af mörkum til að bæta líf þeirra hundraða þús- unda sem eiga þar um sárt að binda. Nokkrar fræknar prjónakonur á Íslandi, meðal annars íbúar og starfsfólk í þjónustuíbúðunum við Bólstaðarhlíð í Reykjavík, hafa undanfarið tekið þátt í verkefninu Lily – Love In the Language of Yarn. Þar hefur prjónafólk um allan heim tekið þátt í að senda skjólföt fyrir börn og búta í teppi sem svo eru settir saman. Allir geta annars tekið þátt og má finna nánari upplýsingar um verkefnið með því að leita að því á vefnum. - þj Prjónakonur í Reykjavík láta gott af sér leiða: Prjóna fyrir börnin frá Sýrlandi PRJÓNAMENNSKA Prjónaðar eru ferningar sem eru 20 sentimetrar á kant og þeir svo sendir til Tyrklands þar sem þer eru settir saman í teppi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GRIKKLAND, AP Grísk stjórnvöld eru vongóð um að eftir erfið sam- dráttarár sé nú útlit fyrir að hag- vöxtur verði á næsta ári. Samkvæmt drögum að fjárlaga- frumvarpi næsta árs verður þar 0,6 prósenta hagvöxtur. Það verð- ur í fyrsta sinn frá 2007 sem efna- hagur landsins vex. Gert er ráð fyrir að afgang- ur verði á rekstri ríkisins, utan afborgana af lánum, og að atvinnu- leysi minnki. Skuldastaðan er þó alvarleg. Áætlað er að skuldir rík- isins verði 174,5 prósent af lands- framleiðslu á næsta ári. - þj Hagvöxtur eftir samdrátt: Vonarglæta í brjósti Grikkja SAMGÖNGUR „Við munum líklega byrja að bora og sprengja fyrir gangamunna Norðfjarðarganga í Eskifirði í þessari viku,“ segir Guð- mundur Björnsson, tæknifræðingur hjá verkfræðistofunni Hnit sem fer með umsjón og eftirlit vegna fram- kvæmda við Norðfjarðargöng. Guðmundur segir allar líkur á að byrjað verði að sprengja fyrir jarð- göngunum sjálfum, sem eiga að tengja Eskifjörð við Neskaupstað, upp úr næstu mánaðamótum. Verktakar á svæðinu hafa nú þegar reist vinnubúðir og búið er að moka frá lausu jarðvegsefni sem lá í fjallshlíðinni þar sem göngin verða. „Vinna við brúarsmíði yfir Norð- fjarðará er einnig að klárast og það er búið að leggja vegaslóða frá brúnni að væntanlegum gangam- unna Norðfjarðarmegin,“ segir Guð- mundur. „Brúin er forsenda fyrir því að gangagröftur geti hafist þeim megin og þegar hún verður tilbúin verður hægt að fara út í undirbún- ingsvinnu Norðfjarðarmegin.“ - hg Framkvæmdir við annan gangamunna Norðfjarðarganga að hefjast: Bora fyrir göngunum í vikunni DANMÖRK Yfirborgarstjóri Kaupmannahafnar, Frank Jensen, segir að það eigi að vera auðveldara að reka kenn- ara sem ekki standa sig nógu vel. Formaður danska kennara- sambandsins, Anders Bondo Christensen, segir í viðtali á vef Kristilega dagblaðsins að nú þegar sé mörgum kennurum sagt upp vegna lélegrar kennslu. Formaðurinn telur að erfiðara sé að halda í kennara en reka þá þar sem kannanir sýni að helm- ingur þeirra íhugi að hverfa frá störfum. -ibs Yfirborgarstjóri Hafnar: Segja lélegum kennurum upp ÁIN BRÚUÐ Vinna við brúarsmíði yfir Norðfjarðará er langt komin. MYND/ÞORSTEINN VALUR DÓMSMÁL Ríkissaksóknari gaf fyrir helgi út ákæru á hendur fimm mönnum fyrir tvær hrotta- fengnar líkamsárásir, mannrán og langvinnar pyntingar um mánaða- mót júní og júlí síðastliðinna. Mest ber á tveimur mönnum í ákærunni; Stefáni Loga Sívars- syni, 31 árs, og nafna hans Stefáni Blackburn, 21 árs. Báðir eiga þeir mikla brotasögu. Hinir mennirnir þrír eru fæddir árin 1990 og 1992 og hafa allir komið áður við sögu lögreglu. Ákæran er í fjórum liðum og ástæða er til að vara við lýsingum sem hér fara á eftir. Fyrsti liður- inn snýr að árás á 22 ára mann í samkvæmi í Breiðholti sem hófst klukkan níu að kvöldi 30. júní og stóð fram undir hádegi daginn eftir. Hann hafði þá greint Stefáni Loga frá því að annar maður hefði átt í kynferðislegu sambandi við fyrrverandi kærustu hans. Mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa misþyrmt honum allt kvöld- ið og fram eftir nóttu þar til hann slapp undir hádegi. Samkvæmt ákærunni var maðurinn meðal annars sleginn með keðju, stung- inn ítrekað með skrúfjárni, dúka- hníf og óhreinum sprautunálum af nöfnunum Stefáni Loga og Stefáni Blackburn, barinn með kylfum, hann kinnbeinsbrotinn, skorinn víða og klippt í eyru hans. Annar ákæruliðurinn fjallar um árás á 25 ára mann, þann sem hafði átt vingott við kærustuna fyrrver- andi. Þar segir að honum hafi verið rænt af heimili sínu klukkan hálf eitt sömu nótt. Hann hafi verið bar- inn ítrekað með kylfum, hann skor- inn, rakspíra hellt á brjóstkassa hans og kynfæri og kveikt í. Samkvæmt ákærunni rifnaði efri vör mannsins vegna kylfuhöggs frá Stefáni Loga, sem einnig braut framtönn hans, og í kjölfarið saum- aði einn árásarmannanna vörina saman með saumnál og garni. Stef- án Logi hafi síðan neytt ofan í hann óþekktar töflur „sem líklega inni- héldu deyfandi lyf“, stungið hann með skrúfjárni og einn mannanna sprautað hann með óþekktu lyfi í rassinn. Um morguninn hafi Stefán Blackburn og annar úr hópi ákærðu ekið með manninn í hús á Stokks- eyri, þar sem Stefán hafi slegið hann með belti og einhvers konar snúru í líkamann áður en hann var afklæddur og skilinn eftir nakinn íklæddur svörtum plastpoka í kjall- ara hússins, bundinn við burðar- stoð eftir að þeir hafi „bundið beisli um höfuð honum þannig að mélin voru í munni hans“. Húsráðandinn á Stokkseyri leysti hann úr haldi síðdegis. Hann sætti gæsluvarðhaldi um skeið en er ekki ákærður. Þolandinn krefst rúmlega sex milljóna króna í bætur vegna málsins. stigur@frettabladid.is Skilinn eftir bundinn og mýldur í plastpoka Fórnarlambið í svokölluðu Stokkseyrarmáli krefur kvalara sína um sex milljónir í bætur. Maðurinn var bundinn við burðarbita í kjallara klukkustundum saman. Í ákæruliðum þrjú og fjögur er Stefán Logi ákærður fyrir að hafa í október 2012 ráðist á þá- verandi kærustu sína, vafið belti af baðslopp um háls hennar og dregið hana um þannig að henni lá við köfnun, og síðan 30. júní í sumar ráðist inn til hennar og foreldra hennar og hótað henni og föður hennar lífláti. Líka ákærður fyrir árás á kærustuna STEFÁN LOGI SÍVARSSON HÚSIÐ Á STOKKSEYRI Í kjallara þessa húss var manninum haldið klukkustundum saman. MYND/SIGURJÓN NOREGUR Forvígiskonur Hægriflokksins og Fram- faraflokksins í Noregi tilkynntu í gærkvöldi að samkomulag hefði tekist milli flokkanna um myndun ríkisstjórnar. Erna Solberg, formaður Hægri og verðandi for- sætisráðherra, og Siv Jensen, formaður Fram- faraflokksins, tilkynntu á blaðamannafundi í gær að samkomulagið fæli í sér átta meginatriði. Fyrst að styrkja atvinnulífið, fjölga störfum og efla einkaframtakið. Þá á að draga úr skrifræði, bæta stöðu kennara, bæta vegakerfið og styrkja velferðarkerfið. Þá á að skoða hvort lögreglu- menn eigi almennt að vera vopnaðir og innflytj- endalöggjöf verður hert. Loks verður sveitar- félögum fækkað og verkefni flutt frá ríki í hérað. Vonast er til þess að hægt verði að tilkynna um ráðherraskipan fyrir 18. október. Flokkarnir tveir hlutu samtals um 45 prósent atkvæða í þingkosningunum í síðasta mánuði og eru með 77 af 169 þingmönnum. Það var nóg til að fella stjórn Jens Stoltenberg en viðræður allra fjögurra flokkanna á hægri vængnum um stjórnar myndun fóru út um þúfur þar sem minni flokkarnir tveir vildu ekki vinna með Framfara- flokknum sökum afstöðu hans í málefnum inn- flytjenda. - þj Hægri og Framfaraflokkurinn náðu saman um stjórnarmyndun í Noregi: Megináherslan á atvinnulífið NÝR FORSÆTISRÁÐHERRA Svo fór sem flestir spáðu að Siv Jensen og Erna Solberg náðu saman um myndun ríkisstjórnar í Noregi. NORDICPHOTOS/AFP PERSÓNUVERND Starfsmaður Lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu upplýsti fyrir mistök ættingja manneskju, sem lagt hafði fram kæru vegna kynferðisbrots, um kæruna. Kærandinn, sem sagður er vera á aldrinum 18 til 20 ára, taldi lögreglu hafa brotið lög með því að upplýsa um kæruna. Í svari lögreglu til Persónu- verndar segir að starfsmaður embættisins vilji biðja kærand- ann afsökunar á mistökunum. - bj, Lögreglan baðst afsökunar: Sagt frá meintu kynferðisbroti SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.