Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.10.2013, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 08.10.2013, Qupperneq 8
8. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8 10 5 0 ' GRAPHIC NEWS Erfiðir valkostir Sífellt hækkandi skuldaþak Um miðjan mánuð mun bandaríska ríkið fara upp fyrir 16.700 milljarða dala þakið sem þingið setur á lántökur. Verði það ekki hækkað getur ríkið aðeins reitt sig á skatttekjur, um 250 milljarða dala á mánuði, til að standa undir rekstri ríkisins og greiða núverandi skuldir. Fjárlög 2013-2014– í pattstöðu á þingi Kostnaður við rekstur alríkisstjórnarinnar: 3.778 milljarðar Skatttekjur: 3.034 milljarðar Halli á ríkissjóði: 744 milljarðar (62 milljarðar á mánuði) Handbært fé (17. október): 30 milljarðar Heildarskuldir ríkisins: Nær 16.700 milljarðar Heildarskuldir á hvern skattborgara: 148.210 Vextir sem þarf að greiða af ríkisskuldabréfum 2013-2014: 222 milljarðar Úr stjórnarskrá Bandaríkjanna 1. grein, 8. hluti: Þingið eitt hefur vald til þess að fá lánað fé fyrir hönd Bandaríkjanna. 14. stjórnarskrárviðauki, 4. hluti: „Gildi ríkisskuldar Bandaríkjanna, sem laga- heimild er fyrir, skal ekki dregið í efa.“ Þetta er túlkað með þeim hætti að skuld- ir skuli greiða að fullu og á réttum tíma. Greiðslufall á bandarískum ríkis- skuldabréfum. Þetta myndi brjóta gegn 14. viðaukanum, stórskaða láns- hæfismat Banda- ríkjanna, auka lántökukostnað og ýta undir aðra fjármálakreppu á heimsvísu. Skipa ríkissjóði að gefa út meira af ríkisskuldabréfum til að standa undir útgjöldum. Einhliða ákvörðun stjórnar- innar brýtur gegn fyrstu grein stjórnar- skrár og myndi gefa þinginu átyllu til að kæra Obama fyrir brot í embætti. Forgangsraða greiðslum af lánum, þar sem vextir yrðu efstir á blaði, og skera 600 milljarða niður af útgjöldum ríkisins, 4% af VLF. Þetta gæti valdið sam- drætti á ný. Kröfur repúblikana: Harðlínumenn hafa sett sem skilyrði fyrir því að samþykkja fjárlög og koma starfsemi ríkisins aftur í gang að hætt verði við gildistöku nýs sjúkratrygginga- kerfis, Obamacare. Valkostur1 2 3 HEIMILDIR: FJÁRMÁLARÁÐUNEYTI BNA, HVÍTA HÚSIÐ MYND/AP Ekkert virðist þokast í átt til sátta til að koma starfsemi ríkisins aftur í fullan gang. Deilan verður jafnvel óleyst þegar 17. október rennur upp en ef hámark fyrir lántöku ríkisins, sem nú stendur í 16.700 milljörðum dala, verður ekki aukið gæti það orsakað greiðslufall ríkissjóðs. Flokkur við stjórn: Repúblikanar Demókratar Reagan 1981-1989 Bush 1989-93 Bush 2001-2009 Obama 2009- Clinton 1993-2001 Jack Lew fjár- málaráðherra segir að ríkið muni aðeins hafa um 30 milljarða dala til ráðstöfunar náist ekki samkomulag um hækkun skuldaþaksins. Skuldaþakið Árslok 2013: 17.500 milljarðar í skuld (áætlað) Maí 2013: 16.700 milljarða þakinu náð Fulltrúadeildin Öldungadeildin HEIMILDIR: WHITEHOUSE.GOV, SENATE.GOV, HOUSE.GOV (C) GRAPHIC NEWS Skuldir ríkissjóðs 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 BANDARÍKIN Pattstaðan í Washington er nú harðari en nokkru sinni fyrr þar sem gjá milli flokka ógnar stöð- ugleika um heim allan. Vika er síðan lokað var fyrir öll ríkisútgjöld sem ekki eru talin bráðnauðsynleg og nú stefnir allt í uppgjör næstu daga vegna skulda ríkis sjóðs. Repúblikanar, sem eru í meirihluta í fulltrúadeildinni, hafa hafnað því að semja við demókrata í öldungadeildinni um lausn mála nema gildistöku nýs sjúkratrygg- ingakerfis, sem kennt er við Barack Obama forseta, verði frestað. Slíkt taka demókratar ekki í mál. Samkvæmt stjórnarskrá Banda- ríkjanna er það þingið eitt sem hefur vald til að stofna til skulda fyrir hönd ríkisins. Núverandi lög kveða á um að skuldir skuli ekki verða hærri en 16.700 milljarð- ar dala, sem nemur um 2.000.000 milljörðum króna. Sú fjárhæð er til dæmis 3.400 sinnum hærri en þeir 587 milljarðar sem eru heildarút- gjöld íslenska ríkisins á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Ef ekki verður samið um að hækka skuldaþakið mun ríkissjóður ekki geta staðið undir útgjöldum og afborgunum af lánum, sem myndi leiða til greiðslufalls með alvarleg- um afleiðingum. Svipuð staða kom upp síðast þegar skuldir þokuðust nálægt löglegu marki, sumarið 2011. Þá náðu flokkarnir ekki saman fyrr en á ögurstundu og lögin um hærra skuldaþak voru staðfest sama dag og búist var við að gjaldfall yrði. Það hafði engu að síður miklar afleiðingar þar sem tiltrú neyt- enda dróst saman, erlendir aðilar Fljóta glaðvakandi að feigðarósi Flokkarnir á Bandaríkjaþingi takast á um fjárlög ríkisins. Rekstur ríkisins hefur verið skertur síðustu vikuna en nú stefnir í óefni varðandi heimildir ríkissjóðs til að stofna til frekari skulda. Náist ekki samkomulag stefnir í greiðslufall ríkissjóðs með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. forðuð ust ríkisskuldabréf um hríð og hlutabréfamarkaðir tóku dýfu. Auk þess var lánshæfismat banda- ríska ríkisins lækkað um flokk. Flestir sérfræðingar sem hafa gefið álit sitt á framvindunni telja líkleg- ast, í ljósi reynslunnar, að flokk- arnir nái saman að lokum. Vand- ræðin varpa þó enn og aftur ljósi á það hversu stirt er milli flokk- anna og hversu mikið ógagn kyrr- stöðuástandið vinnur almenningi, efnahag og atvinnulífi þar í landi. thorgils@frettabladid.is 10.000 5.000 milljarðar dala 0 *Allar upphæðir eru í dölum © GRAPHIC NE S

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.