Fréttablaðið - 08.10.2013, Side 22

Fréttablaðið - 08.10.2013, Side 22
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 4 8. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR Það hljómar eins og áskorun í Top Gear að aka 16.000 kílómetra á tíu dögum en svo er ekki. Það eru þolakstursrallökumennirnir Robert Belcher og Stephen Cooper sem ætla með þessu að sanna að Land Rover Discovery LR3, sem þekktur er nokkuð fyrir tíðar bilanir, þoli þennan þolakstur án þess að bila. Leiðin er líka afar spennandi sem þeir ætla að aka, eða frá London til Höfðaborgar í Suður-Afríku, og fara í gegnum 13 lönd á leiðinni. Bíll þeirra hefur reyndar fengið nokkra yfi rhalningu til að þola þennan erfi ða akstur. Undirvagn hans hefur verið styrktur og dekkin þola akstur á misjöfnum vegum sem þeir munu fara um. Einnig hefur verið bætt við eldsneytistanki svo að kapparnir þurfi nú ekki að vera að stoppa í sífellu til að fylla á. Aksturinn fer fram frá 4. til 14. október. Bíllinn er með 2,7 lítra V6-dísilvél með túrbínu og þeir komast 1.930 kílómetra á hverri fyllingu. Ljóst er að ökumennirnir þurfa að aka dag og nótt og skiptast á að aka. Ef eitthvað bilar er eins gott að það verði ekki í Kenía eða Líbíu, en þar er bæði örðugast að verða sér úti um varahluti og hjálp og mest hætta á að einhver ásælist bíl þeirra. Þessi leið frá London til Höfðaborgar hefur verið farin áður í einum rykk á Fiat Panda-bíl og tíminn þá var 10 sólarhringar, 13 klukkutímar og 28 mínútur. Það met ætla þeir kappar að bæta um a.m.k. 13 og hálfan klukkutíma. Aka 16.000 kílómetra á tíu dögum Allir kraftabílar BMW sem bera stafi nn M hafa hingað til verið afturhjóla- drifnir, nema X5 M og X6 M jepparnir, sem hafa eðlilega skartað  órhjóla- drifi . Það gæti breyst mjög hratt og er líklegasta ástæða þess að BMW hefur horft upp á það að samkeppnisbílar Audi og Mercedes Benz eru talsvert sneggri á sprettinum en M-bílar BMW, þrátt fyrir að búa ekki að meira afli. Bílar eins og Audi RS4, RS6 og RS7, Porsche Panamera Turbo og Mercedes Benz E63 AMG eru sneggri í hundraðið vegna  órhjóladrifs þeirra. Um 80% kaupenda Mercedes Benz E63 AMG velja bílinn með  órhjóladrifi og það er ástæða fyrir því. Allir þessir bílar eru sneggri í hundraðið en 4,0 sekúndur, en enginn BMW M bílanna er sneggri en 4,2 sekúndur vegna afturhjóladrifsins. M-deild BMW hefur algerlega einblínt á afturhjóladrif og telur að sportbílar eigi að vera þannig búnir en líklega verða þeir að fara að kyngja stoltinu bráðlega því þeir eru að verða undir í samkeppninni. Reyndar kom til greina að M3- og M4-bílarnir yrðu með  órhjóladrifi að síðustu kynslóð sem kom fram árið 2011, en nú er bara að sjá til hvort þeir verði þannig af næstu kynslóð. Verða allir BMW M-bílar fjórhjóladrifnir? Þeir hjá franska fyrirtækinu PGO eru greinilega miklir aðdáendur Porsche og hafa mætur á hinum hálfrar aldar gamla Porsche 356 Speedster. Svo miklar reyndar að þeir hafa framleitt eftirmynd hans sem þeir nú bjóða til sölu undir nafninu Chevennes. Ekki er þó hægt að segja að um algera eftir- mynd sé að ræða þótt hann sé líkur 356-bílnum en hann ber svip hans þó þokkalega. Chevennes er með 1,6 lítra vél frá BMW sem skilar 181 hestafli. Það hljómar ekki svo mikið en rétt er að hafa í huga að hann vegur ekki nema 999 kíló og er líklega nokkuð sprækur. Hámarks- hraðinn er 225 km/klst. Bíllinn er afturhjóladrifi nn að sjálfsögðu, eins og rökrétt er með sportbíl. Sala á bílnum er hafi n í Evrópu en engum sögum fer af vinsældum hans. Frakkar stæla Þjóðverja Land Rover Discovery ætlar í langferð. Cévennes er stæling á Porsche 356. BMW M5. ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.