Fréttablaðið - 08.10.2013, Page 31

Fréttablaðið - 08.10.2013, Page 31
ÞRIÐJUDAGUR 8. október 2013 | MENNING | 23 Þórunn Bára opnar myndlistar- sýningu í Smiðjunni Listhúsi í Ármúla 36 fimmtudaginn 10. október klukkan 20. Sýningin ber nafnið Surtsey en listakonan segist vera heilluð af eyjunni og framvindu lífs þar. Verkin á sýningunni eru olíu- og akrílverk, flest abstraktverk með fígúratífu ívafi, sem Þór- unn hefur málað á síðustu fjór- um árum. Þórunn lauk myndlistarnámi frá listaháskólanum í Edinborg og mastersnámi frá Wesleyan- háskólanum í Bandaríkjunum. Sýningin í Smiðjunni stendur til 20. október. Þórunn Bára í Smiðjunni SURTSEY Allar myndirnar á sýningunni eru frá Surtsey. Þetta er aðallega stórkostlegur heiður fyrir sýninguna og Þjóðleikhúsið,“ segir Una Þor- leifsdóttir, leikstjóri Harmsögu. „Útsendar- ar Kennedy Center voru staddir hérlendis í öðrum erindagjörðum en var boðið á frum- sýninguna og heilluðust svona gjörsamlega.“ Hátíðin sem um ræðir nefnist World Stages: International Theater Festival 2014 og verður haldin dagana 10. til 30. mars. Þar verða sýndar leiksýningar sem þykja skara fram úr hvaðanæva úr heiminum. Harm- saga verður sýnd tvisvar, 15. og 16. mars, og í sömu vikunni verður leikritið Rupert eftir eitt þekktasta leikskáld Ástrala, Lee Lewis, frumsýnt í Bandaríkj- unum. Það fjallar um fjölmiðlamógúlinn Rupert Murdoch. Strax á eftir Harmsögu verður svo franskt leikrit með Emmanuelle Riva, aðalleikkonunni í Amour, frumsýnt í Bandaríkjunum. Hugmyndin er að leika á ensku og verð- ur verkið þýtt og æft upp á nýtt á næsta ári. Ekki er ráðið hver muni sjá um þýðinguna, enda segir Una að samningar hafi verið und- irritaðir á föstudaginn var og því ekki búið að ganga frá smáatriðum. Leikarar í Harmsögu eru Snorri Engilbertsson og Elma Stefanía Ágústsdóttir. - fsb Harmsaga í Kennedy Center í Washington Sýningu Þjóðleikhússins á Harmsögu eft ir Mikael Torfason hefur verið boðið á alþjóðlegu leiklistarhátíðina World Stages í Washington í mars. HARMSAGA TIL WASHING- TON Leikarar í Harmsögu eru Snorri Engil- bertsson og Elma Stefanía Ágústsdóttir. UNA ÞORLEIFSDÓTTIR Margrét Sara Guðjónsdóttir dansaði í Pompidou-safninu í París á menningarnótt Parísar- búa um síðustu helgi. Verkið sem sýnt var heitir This is how you will disappear. Það er eftir Gisele Vienne og Dennis Cooper og Margrét Sara fer með aðal- hlutverkið. Verkið var frumsýnt 2010 á Festival D’Avignon, einni og virtustu leik- og danslistarhátið í Evrópu, en hefur síðan farið víða um heim og Margrét Sara fengið lofsamlega dóma fyrir dans sinn. Í Pompidou- safninu í París DANSARI Margrét Sara sýndi tilþrif á menningarnótt í París.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.