Fréttablaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 32
8. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24
BAKÞANKAR
Ólafar
Skaftadóttur
„Hljómsveitin Drangar varð ekki
til í bátnum Húna, það er alveg
tæpt ár síðan við hófum leik í
leyni,“ segir Örn Elías Guðmunds-
son, betur þekktur sem Mugison,
um upphaf hljómsveitarinnar
Drangar. Sveitina skipa, ásamt
Mugison, Jónas Sigurðsson og
Ómar Guðjónsson.
„Þegar Jónas og Ómar túruðu
um landið síðastliðinn vetur hafði
ég heyrt að þeir vildu taka „lókal“
fólk í eitthvert glens með sér á tón-
leikum. Þegar þeir komu til Flat-
eyrar fékk ég að skemmta með
þeim og það var svo svakalega
gaman að við ákváðum að stofna
hljómsveit,“ segir Örn Elías um
sögu sveitarinnar.
Þeir félagar stofnuðu Facebook-
síðu og voru komnir með rúm þús-
und læk á stuttum tíma. Á síðunni
birtu þeir fyrsta smáskífulagið af
væntanlegri plötu en lagið heitir
Bál. „Platan var að mestu tekin
upp í Súðavík en textarnir voru að
mestu ortir á Borgarfirði eystri.
Fyrir austan var vinnudagurinn
ansi hressandi. Við vöknuðum
klukkan níu og fengum okkur að
borða, unnum svo frá tíu til tvö en
þá tók við göngutúr. Þá lögðum við
okkur klukkan þrjú og fórum svo
í sjósund og spa á milli fjögur og
fimm, svo var bara unnið í textum
allt kvöldið.“
Óhætt er að segja að sveitin
sé afar frjó en á fyrstu tveimur
æfingunum urðu til þrjátíu lög.
Þá var skorið niður og einblínt á
þrettán bestu lögin og verða þau
á væntanlegri plötu.
Meðlimir sveitarinnar hrók-
era á milli hljóðfæra, á milli
laga. „Við unnum þetta allt í sam-
einingu og var þetta virkilega
skemmtilegt ferli,“ bætir Örn
Elías við.
Drangar stefna á tónleikaferða-
lag með útgáfu plötunnar en hún
kemur út á næstu vikum. -glp
Tríóið Drangar ætlar
að sigra heiminn
Mugison, Jónas Sig og Ómar Guðjónsson hafa stofnað ofurhljómsveitina
Dranga. Ár er síðan meðlimir sveitarinnar hófu að æfa saman í laumi.
NÝ SVEIT, NÝ PLATA Nýja hljómsveitin Drangar gefur út plötu á næstunni. MYND/JÓN ÞÓR ÞORLEIFSSON
JOBLO.COM
T.V. - BÍÓVEFURINN/S&H
A.O.S NEW YORK TIMES
BOSTON GLOBE
EMPIRE
BÍÓVEFURINN
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
THE HOLLYWOOD REPORTER
JOBLO.COM
NEW YORK OBSERVER
ENTERTAINMENT WEEKLY
VARIETY
LOS ANGELES TIMES
ABOUT TIME 6, 9
TÚRBÓ - ÍSL 5.50 3D
RUNNER RUNNER 8, 10
DIANA 8
AULINN ÉG 2 - ÍSL 5.50 2D
MALAVITA 10:30
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
ÍSL
TAL
5%
SMÁRABÍÓ
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
TURBO 3D KL.6
ABOUT TIME KL. 8 - 10.10 / RUNNER RUNNER KL. 8 - 10
AULINN ÉG 2 3D KL. 6
ABOUT TIME KL. 8 - 10.40
TÚRBÓ 2D / 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.40
RUNNER RUNNER KL. 8 - 10
RUNNER RUNNER LÚXUS KL. 10
HROSS Í OSS KL. 4 - 6 - 8
HROSS Í OSS LÚXUS KL. 4 - 6 - 8
AULINN ÉG 2 2D KL. 3.30 - 5.45
BLUE JASMIN KL. 8
ELYSIUM KL. 10.15
2 GUNS KL. 10.15
“EIN BESTA
MYND ÁRSINS!”
- T.V., BÍÓVEFURINN/S&H
„STERK MYND SEM SPYR
ÁLEITINNA SPURNINGA“
-S.B.H., MBL
“ÞESSI MYND ER MEÐ BETRI
MYNDUM SEM ÉG HEF SÉÐ. PÚNKTUR.
ÞAÐ ER EKKI SLEGIN FEILNÓTA.”
- MIKAEL TORFASON
“SKEMMTILEGASTA ÍSLENSKA
KVIKMYND SEM ÉG HEF SÉÐ LENGI!”
- BERGSTEINN SIGURÐSSON,
DJÖFLAEYJAN RÚV
FRÁ HÖ FUNDUM SHREK OG MADAGASCAR
FRÁBÆR TEKNIMYND UM SNIGIL SEM VILL
VERÐA KAPPASKSTURSHETJA!
Miðasala á: og
HÁSKÓLABÍÓ
SVONA ER SANLITUN KL. 5.45 - 8 - 10.15
TÚRBÓ 2D KL. 5.45
HROSS Í OSS KL. 6 - 8 - 10
BLUE JASMIN KL. 5.45 - 8 - 10.15
DIANA KL. 8 - 10.30
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN
GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA HALDA VINSÆLUSTU KVIKMYNDIRNAR
Á EFFI ÁFRAM Í SÝNINGUM Í BÍÓ PARADÍS!!
SJÁ SÝNINGARTÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
Ég er tiltölulega nýr bakþankahöfundur og hef rétt fengið smjörþefinn af því að
þurfa að tjá mig reglulega um menn og mál-
efni fyrir framan alþjóð. Í því felst spenn-
andi ögrun – ekki síst fyrir fólk eins og mig,
sem hefur ekki búið sig sérstaklega undir
það að þurfa að hafa skoðanir á flestum
hlutum. Ég hef því ákveðið að láta bara
flakka – gera ekki minnstu tilraun til að
vera samkvæm sjálfri mér í þessum pistla-
skrifum.
ALLA tíð hef ég staðið mig að því að þurfa
að vera ósammála mér, hafa eina skoðun
fyrir hádegi og aðra eftir hádegi. Stund-
um fer það eftir því hvaða röksemd maður
heyrir síðast. Ef röksemdin er vond, bygg-
ist til dæmis á tilfinningaklámi, á ég
það til að snúast öndverð, jafnvel þó
að málstaðurinn sé athyglisverður.
Smekkvísi í málflutningi skiptir
þess vegna höfuðmáli ef ætlunin er
að sannfæra mig.
ÞEIR sem rembast við að
renna stoðum undir sjónarmið
til þess eins að sanna að þeir
hafi haft rétt fyrir sér í ein-
hverjum pistli eða málflutningi
einhvern tíma eru komnir í algjört þrot.
Það eru vond örlög að festast í löngu úr sér
gengnum viðhorfum sem nýjar upplýsing-
ar og reynsla hafa kippt stoðunum undan.
Ráðstefnur um hrunmál með handvöldum
skoðanabræðrum, íslenskum eða erlendum,
breyta engu um málavöxtu en vekja aftur
á móti grunsemdir um vonda samvisku
þeirra sem eiga í hlut.
ÞESSI fúli pyttur er hættulegri í okkar
litla samfélagi en í mörgum öðrum. Hérna
geta rit- og málglaðir sleggjudómarar, sem
ekki einu sinni hafa fyrir því að kynna sér
staðreyndir eða afla gagna, haft ótrúleg
áhrif á daglega umræðu.
ÞAÐ vantar fjölbreytni í hugmyndabank-
ann. Hann verður því ekki til, vettvangur-
inn sem sjónarmiðin gerjast á. Við það má
bæta að endalaus einhliða málflutningur er
líka bara svo mokleiðinlegur.
ANNARS er ég kannski örlítið dómhörð
í okkar garð. Það er ekki eins og allt sem
maður sér í útlendri þjóðmálaumræðu sé
sérstaklega merkilegt. Þaðan berast aldeilis
misvísandi fréttir um það sem setti heims-
byggðina á vonarvöl fyrir fimm árum.
Tilfi nningaklám og sleggjudómar