Fréttablaðið - 29.10.2013, Page 2

Fréttablaðið - 29.10.2013, Page 2
29. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Ásgeir, ertu nokkuð að renna blint í sjóinn? „Ég renni aldrei blint í sjóinn enda vel upplýstur því ég á nóg af neðan- sjávarkösturum.“ Ásgeir Einarsson kafari áformar að flytja inn tólf metra langan kafbát og bjóða útsýnis- ferðir í undirdjúpunum við Ísland. DÓMSMÁL Lögreglan á Akranesi hefur lokið rannsókn á máli 82 ára bónda á Snæfellsnesi sem grunaður er um að hafa beitt þroskaskerta stjúpdóttur sína grófu kynferðislegu ofbeldi um áratugaskeið. „Þetta hefur verið mjög umfangsmikil rannsókn,“ segir Jónas H. Ottósson rannsóknarlögreglumaður, sem fékk málið upp í hendurnar í janúar á þessu ári og hefur því haft það til skoðunar, með öðru, í tíu mánuði. Málið kom upp eftir að ófeðruð dóttir kon- unnar uppgötvaði að maður hennar hefði beitt tengda- móður sína kynferðisofbeldi um nokkurn tíma. Við skýrslutökur af konunni vegna þess máls greindi hún frá ofbeldinu sem hún hafði mátt þola af hálfu stjúpföður síns fyrrverandi, og raunar tveggja bræðra hans líka. Þeir létust báðir 2003. Tengdasonurinn gekkst við brotunum og dóttir kon- unnar sleit við hann samvistir. Hann hefur nú verið ákærður. Aldraði stjúpfaðirinn fyrrverandi hefur hins vegar alla tíð neitað sök. Hann sætti gæsluvarðhaldi vikum saman og var síðan með dómsúrskurði bannað að nálgast stjúpdóttur sína. Nálgunarbannið er enn í gildi. Lögreglan sendi raunar málið til ákærumeðferðar fyrir nokkrum vikum en það var endursent og farið fram á frekari rannsókn á heilsufari og sjúkrasögu hins grunaða. Henni er nú lokið og má búast við að ákæruvaldið taki sér einn til tvo mánuði til að meta málavexti og hvort gefa skuli út ákæru. Rannsóknin á sér engin fordæmi hjá embættinu, að sögn Jónasar, sem hefur tekið skýrslu af á öðrum tug manna vegna málsins. - sh Mál grunaðs níðings á Snæfellsnesi er komið til ákæruvalds: Fordæmalausri rannsókn lokið SNÆFELLSNES Maðurinn er bóndi á Snæfellsnesi. Konan bjó hjá honum og móður sinni í áratugi, með hléum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMFÉLAGSMÁL Ríkið hefur styrkt bæði Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd á undan- förnum árum, en tugum milljóna munar á framlögunum. Samkvæmt gögnum sem Fréttablaðið hefur undir hönd- um frá Fjársýslu ríkisins hefur Fjölskylduhjálp Íslands fengið 16.991.500 krónur frá árinu 2004 til 2012, mest 5.053.000 krón- ur árið 2011. Mæðrastyrksnefnd hefur á sama tímabili fengið 51.795.000 krónur, mest 9.100.000 krónur árið 2011. Ragnhildur G. Guðmundsdótt- ir, formaður Mæðrastyrksnefnd- ar Reykjavíkur, segir hana ekki sambærilega Fjöl skylduhjálp Íslands. „Fjöl- skylduhjálpin er stofnuð árið 2003 en við erum orðn- ar 85 ára. Þess- um samanburði má ekki gleyma. Við erum búnar að standa vaktina allan þennan tíma og allt í sjálfboðavinnu. Í hverri viku vinna 15 til 20 konur hjá okkur kauplaust.“ Hún segir mest allt sem nefnd- in fær frá hinu opinbera fara í reksturinn. „Við borgum fast- eignagjöld til Reykjavíkurborg- ar, sem styrkir okkur ekki, hita og ljós, síma, viðgerðir og akstur. Við pöntum heilmikið af mat og honum þarf að koma til okkar.“ Einnig segir Ragnhildur Mæðra- styrksnefnd og Fjölskylduhjálp reknar á mismunandi grunni. „Fjölskylduhjálpin er einkafyrir- tæki og við erum samstarfsverk- efni sjö kvenfélaga.“ „Við úthlutuðum 30.000 matar- gjöfum síðustu tólf mánuði og telj- um að við séum án nokkurs vafa stærst þeirra hjálparsamtaka á Íslandi sem standa að aðstoð við fátækt fólk hér á landi. Þetta vita ráðamenn, bæði ríkisstjórn og sveitarfélög,“ segir Ásgerður J. Flosadóttir, formaður Fjölskyldu- hjálpar Íslands. „Við höfum alltaf talið að það ríkti einhvers konar jafnræði um framlag ríkis og sveitarfélaga til hjálparsamtaka á Íslandi. Það vakti því furðu okkar hjá Fjöl- skylduhjálp og þeim 50 sjálf- boðaliðum sem þar starfa, þegar í ljós kom að mismunur er á milli hjálpar samtaka upp á tugi milljóna,“ segir Ásgerður. Hún segist þó fagna hverri krónu sem berist góðum málefn- um, sama hvaða leið hún fer. „Öll hjálparsamtök eru fjárvana og fögnum við hverri krónu sem fer í gott málefni hvort sem hún kemur í gegnum Fjölskylduhjálp Íslands eða önnur hjálparsamtök. Við eigum erfitt með að sinna okkar starfi og erum því dugleg að finna leiðir til að fjármagna starfsemi okkar sjálf.“ samuel@frettabladid.is Mæðrastyrksnefnd fær margfalt meira Á árunum 2004 til 2012 munar 35 milljónum á opinberum framlögum til Mæðra- styrksnefndar annars vegar og Fjölskylduhjálpar Íslands hins vegar. Fjölskyldu- hjálpin er stærst hjálparsamtaka sem aðstoða fátækt fólk að sögn formanns. MIKLU ÚTHLUTAÐ Frá matarúthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA RAGNHILDUR G. GUÐMUNDS- DÓTTIR Við höfum alltaf talið að það ríkti ein- hvers konar jafnræði um framlag ríkis og sveitarfélaga til hjálpar- samtaka á Íslandi. Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands FÓLK Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, hefur verið sæmdur gullmerki FTT, félags tónskálda og textahöfunda. Jakob Frí- mann Magnússon afhenti honum merkið síðastliðinn sunnudag. Þá var Megas einnig gerður heiðursfélagi samtakanna. Sama dag voru haldn- ir tónleikar þar sem textar hans og tónlist voru í fyrirrúmi. - nej Textar og tónlist Megasar í fyrirrúmi á tónleikum í Hörpu: Megas sæmdur gullmerki FTT ÓMETANLEGUR Í tilefni af afhendingu merkisins fékk Megas heiðursskjal þar sem honum var þakkað ómetanlegt framlag sitt til tónlistar og textagerðar á Íslandi. SVEITARSTJÓRNIR „Efling ferða- þjónustu veltur á lengingu ferða- mannatímans og í landbúnaði eru margvísleg tækifæri í fullvinnslu og markaðssetningu afurða,“ segir um niðurstöður íbúaþings í Skaftárhreppi um eflingu atvinnu á svæðinu. Skortur á húsnæði hamli upp- byggingu og húshitunarkostnaður sé hár. Þá þurfi að bæta fjarskipti, rafmagn og vegi. „Mikilvægt er að íbúar sjálfir hafi trú á sér og samfélaginu og rækti með sér jákvæðni, samhygð og samvinnu,“ segir á vef Skaftárhrepps. - gar Íbúaþing í Skaftárhreppi: Þurfa húsnæði og netþjónustu VEÐUR Ofsaveður sem gekk yfir norðanverða Evrópu í gær kostaði að minnsta kosti níu manns lífið. Veðrið olli miklum truflunum á samgöngum, þök fuku af húsum, tré rifnuðu upp með rótum og byggingarkranar fuku um koll. Lögregla ráðlagði fólki að vera ekki á ferð úti við og síðdegis í gær voru gefnar út stormviðvaranir í Svíþjóð og Danmörku. Manntjón varð vegna veðursins. Tvær manneskjur létu lífið í Þýska- landi er tré lenti á bíl þeirra, í Frakk- landi feykti veðrið konu út á haf, kona í Amsterdam lést er tré féll á hana og annars staðar í sömu borg sökk húsbátur sem var við festar í skipa- skurði. Tugum flugferða var aflýst og enn fleiri seinkað vegna veðursins. Kast- rup-flugvelli í Danmörku var lokað og sátu 5.000 manns fastir í neðanjarðar- lestakerfinu þar í landi í gærkvöldi. Óveðrið stefnir ekki hingað til lands og því þurfa Íslendingar ekki að búa sig undir storm. Þó verður kalt í veðri á næstu dögum. - nej Ofsaveður sem olli truflunum á samgöngum og skemmdum á húsum stefnir ekki hingað til lands: Níu manns látnir í fárviðri í Evrópu FALLIN TRÉ Slökkviliðs- menn í Ham- borg í Þýska- landi höfðu mikið að gera í gær þar sem óveðrið reif tré upp með rótum. MYND/AFP SENEGAL, AP Þrjátíu og fimm manns dóu úr þorsta í Sahara- eyðimörkinni í Níger fyrir tveimur vikum. Yfirvöld í Níger fréttu hins vegar fyrst af málinu í gær. „Þetta er mansalsmál, er ég hræddur um,“ sagði bæjarstjóri Arlit í Norður-Níger. „Þetta fólk var að öllum líkindum á leið til Evrópu til þess að vinna þar.“ Fólkið lést eftir að farkostur þess bilaði og það strandaði í eyðimörkinni. Leiðin sem fólkið var á er vel þekkt og notuð til þess að koma fólki ólöglega frá Norður-Afríku til Evrópu. - nej Mansalsmál í Norður-Afríku: Dóu úr þorsta SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.