Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.10.2013, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 29.10.2013, Qupperneq 6
29. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvaða nýjung hyggst kafarinn Ásgeir Einarsson innleiða í ferðaþjónustu? 2. Hvað eru íslenskir stórmeistarar í skák margir? 3. Hvar ætlar Vilborg Arna að klífa fjall? SVÖR: 1. Ferðir með kafbáti 2. 13 3. Í Papúa Nýju-Gíneu VEISTU SVARIÐ? – G Ó Ð U R Á B R A U Ð – Í S L E N S K U R HÖNNUN FYRIR LÍFIÐ ÞÝSKÍSLENSKSAMVINNA Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is NOREGUR, AP Um þessar mundir eru þrjú ár liðin frá því að norska Nóbelsnefndin ákvað að veita kínverska andófsmanninum Liu Xiaobo friðarverðlaun. Kínverskir ráðamenn móðg- uðust sárlega og hafa æ síðan haldið öllum tengslum við Noreg í lágmarki. Stjórnarerindrekar ríkjanna ræðast ekki við, engir fundnir eru haldnir og viðskipti milli ríkjanna nánast engin. Kín- verjar eru til dæmis hættir að kaupa lax af Norðmönnum og við- ræður um fríverslunarsamning, sem voru langt komnar, hafa legið niðri. Kínastjórn virðist ætlast til þess að Norðmenn taki fyrsta skrefið til að bæta fyrir „brot“ sitt, en hefur þó ekki sagt til hvers sé nákvæm- lega ætlast. Norska stjórnin ræður til dæmis engu um ákvarðanir norsku Nóbelsnefndarinnar, og varla er líklegt að norskir ráða- menn taki upp á því að fordæma þær ákvarðanir. Athygli hefur vakið að kínversk- ir ráðamenn virðast ekki ætla að nota tækifærið, nú þegar stjórnar- skipti hafa orðið í Noregi, til þess að stíga fyrsta skrefið. Þvert á móti ítrekar Hua Chuny- ing, talsmaður kínverska utan- ríkisráðuneytisins, að Norðmenn verði að grípa til „raunverulegra aðgerða til þess að skapa skilyrði fyrir betri og vaxandi tvíhliða samskiptum“. Þykkja Kínverjar hefur hins vegar ekki orðið til þess að bæta ímynd Kínastjórnar á alþjóða- vettvangi. Þvert á móti beinir hún athyglinni beint að Kínverjum sjálfum og mannréttindabrotum þar í landi. „Ég held að Kína skaði orðspor sitt,“ segir Joseph Fewsmith, sem er sérfræðingur í málefnum Kína við háskólann í Boston í Banda- ríkjunum. Þegar verðlaununum var úthlut- að í desember árið 2010 sökuðu kínversk stjórnvöld Norðmenn um að hafa blandað sér í kínversk innanríkismál með því að upphefja ótíndan glæpamann. Liu hafði þá verið dæmdur í ellefu ára fangelsi. Sök hans var sú að hafa skrifað, ásamt öðrum, skjal þar sem þess er krafist að raunverulegar lýðræðisumbæt- ur verði gerðar í Kína. Eiginkona hans var einnig sett í stofufangelsi og mágur hans settur í fangelsi fyrir sakir, sem stuðningsmenn þeirra segja upplognar. gudsteinn@frettabladid.is Í þrjú ár hefur Kína- stjórn hunsað Noreg Eftir að norska Nóbelsnefndin ákvað að veita kínverska andófsmanninum Liu Xiaobo friðarverðlaun árið 2010 hafa kínversk stjórnvöld ekkert viljað við Norð- menn tala. „Refsingin“ virðist þó ekki hafa skaðað Noreg að neinu marki. NÓBELSATHÖFNIN 2010 Thorbjörn Jagland, formaður norsku Nóbelsnefndarinnar, situr við hliðina á auðu sæti kínverska andófsmannsins Liu Xiaobo. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Árið 2010 komu friðarverðlaun Nóbels í hlut Liu Xiaobo fyrir „langa og friðsamlega baráttu sína fyrir mannréttindum í Kína“, að því er sagði í til- kynningu frá norsku Nóbelsnefndinni. Liu tók þátt í mótmælunum á Torgi hins himneska friðar (Tiananmen-torgi) árið 1989 og var einn aðalhöf- undur mannréttindayfirlýsingarinnar Charter 08, sem birt var í Kína á 60 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Hann afplánar nú fangelsisdóm í Kína. Friðsamleg mannréttindabarátta FERÐAÞJÓNUSTA Rekstraraðilar á Geysi í Haukadal hafa enga trú á hugmyndum um náttúrupassa og ætla að hefja innheimtu gjalds á Geysissvæðinu. Garðar Eiríksson, ritari Geysis ehf., segir landeigendur bera mik- inn kostnað af Geysissvæðinu og þörf sé á miklum framkvæmdum. Hálf milljón ferðamanna heimsæki Geysi á hverju ári og ekki sé hægt að halda áfram rekstrinum við óbreyttar aðstæður. Sú uppbygg- ing sem blasi við kosti ekki minna en hálfan milljarð og svo þurfi að halda svæðinu við, ráða starfsfólk, huga að öryggismálum, aðgengi fatlaðra og fleira. Gjaldið verði hóflegt og undir þúsund krónum. „Þú tekur ekki hálfan milljarð í eitt svæði upp úr skattvasa sam- félagsins þegar við eigum ekki fyrir brýnustu nauðsynjum eins og heilbrigðismálum og öðru slíku. Þá verða menn að greiða fyrir upplif- un á staðnum og þá þjónustu sem þeir njóta á hverjum stað,“ segir Garðar. - hmp Rekstraraðila á Geysi í Haukadal vantar hálfan milljarð til uppbyggingar: Hefja gjaldtöku á Geysissvæðinu LANDAREIGN Ríkið á 35 prósent af Geysis svæðinu en einkaaðilar eiga samtals 65 prósent. FÉLAGSMÁL Forsvarsmenn hinna nýstofnuðu Sam- taka leigjenda telja að bráðavandi sé á leigumarkaði. Þeir telja að alls vanti um 3.500 leiguíbúðir í Reykja- vík. Forsvarsmenn samtakanna funduðu með Degi B. Eggertssyni, formanni borgarráðs Reykjavíkur, í gær. Jóhann Már Sigurbjörnsson, formaður samtak- anna, segir fundinn hafa gengið vel, en þó sé ljóst að lausn vanti á þeim bráðavanda sem uppi er á leigu- markaðinum. „Vandinn er mjög stór og samtökin telja að þörf sé fyrir um 3.500 íbúðir sem þyrftu að koma strax á markaðinn. Við vitum að 500 manns eru að leita að húsnæði og það er sýnilegi vandinn. Eftir að hafa borið saman bækur okkar teljum við að vandinn á svarta markaðinum sé enn stærri,“ segir Jóhann. Hann segir hugmyndir sem uppi séu hjá borginni góðar, en taka muni þrjú til fimm ár að klára þær. „Við munum áfram þrýsta á að reyna að koma með lausnir, helst innan sex mánaða. Dagur er opinn fyrir því að ræða þetta frekar og við munum funda aftur með honum eftir tvær vikur.“ - skó Samtök leigjenda funda með formanni borgarráðs um leigumarkaðinn: Telja að 3.500 leiguíbúðir vanti VANDI Á LEIGUMARKAÐI Dagur B. Eggertsson kynnti hugmyndir Reykjavíkurborgar um leigumarkaðinn og Sam- tök leigjenda sögðu frá þeirra hugmyndum. MYND/DANÍEL ÁNÆGÐUR MEÐ MIÐANA Mikil eftirspurn er eftir miðum. MYND/STEFÁN KARLSSON LANDSLEIKUR Árni Þór Gunnarsson er hæstánægður með að hafa tryggt sér miða á landsleik Íslands og Króatíu í fótbolta hinn 15. nóvember næstkomandi. „Það er alltaf viss léttir og þá sérstaklega fyrir svona stóran leik.“ Hann fékk miðana á miðasölu Tólfunnar, stuðningsfélags íslensku landsliðanna, á Ölveri í gær. Á Facebook-síðu Tólfunnar var sér- staklega tekið fram að miðasalan væri eingöngu ætluð stuðningsmönnum og ekki sitjandi „áhorfendum“. „Áfram Ísland,“ segir Árni. Tólfan seldi miða á landsleik Íslands og Króatíu á Ölveri: Léttir að tryggja sér miða VIÐSKIPTI Erlend verðbréfaeign innlendra aðila á Íslandi jókst um 18 prósent milli 2011 og 2012. Hún nam 1.081,3 milljónum króna í lok árs 2012. Frá þessu er greint á vef Seðlabankans en niðurstöðurnar eru úr alþjóðlegri könnun sem bankinn lét gera að frumkvæði Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Erlend verðbréfaeign inn- lendra aðila var mest í Bandaríkj- unum eða 247,4 milljónir króna. Íslenskir lífeyrissjóðir eiga mest af erlendum verðbréfaeignum. - nej Alþjóðleg verðbréfakönnun: Verðbréfaeign erlendis eykst

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.