Fréttablaðið - 29.10.2013, Side 24

Fréttablaðið - 29.10.2013, Side 24
4 Heilsufréttir Heilsuhússins Femmenessence og Revolution styðja við og koma jafnvægi á eigin hormónaframleiðslu án þess að vera hormón Aukin orka og vellíðan Fæðubótarefni úr macarót 100% náttúruleg vara með lífræna vottun Við erum á facebook Inniheldur hvorki soja (ísóavóna), mulin hörfræ né hormóna www.facebook.com/Femmenessence.is www.facebook.Revolution-Macalibrium www.vistor.is Fyrir konur á barneignaraldri:  Jafnar hormónasveiur  Kemur jafnvægi á tíðahringinn  Dregur úr sársaukafullum blæðingum  Dregur úr fyrirtíðaspennu  Styður við frjósemi og grundvallarheilbrigði Ætlað konum eftir tíðahvörf:  Dregur úr hitakófum og nætursvita  Eykur orku og úthald  Eykur beinþéttni  Léttir lund og bjartsýni og bætir svefn  Dregur úr leggangaþurrki Fyrir karlmenn á öllum aldri:  Eykur orku og úthald  Auðveldar þyngdarstjórnun  Styður kynferðislega virkni  Styður hjarta- og æðaker  Styður við frjósemi og grundvallarheilbrigði Fyrir konur eftir fertugt og þær konur sem nna fyrir breytingaskeiðseinkennum:  Dregur úr hitakófum og nætursvita  Eykur orku og úthald  Eykur beinþéttni  Dregur úr pirringi, léttir lund og bætir svefn að vita þetta - við verðum að nýta okkur þessa þekkingu og heilbrigðiskerfið á að sjálfsögðu að bjóða upp á meðferðir sem byggjast á breytingum á lífsstíl en ekki nánast bara lyfjum eins og nú er. Heilbrigðiskerfið okkar er því miður bara sjúkdóma- kerfi eins og það er uppbyggt í dag – það tekur á móti okkur þegar að við erum orðin veik en það hjálpar okkur ekki að viðhalda heilbrigði. Flestar með ferðir byggjast svo á lyfjum en ekki mat, vítamínum, steinefnum, hreyfingu eða því hvernig við getum beitt huganum gegn veikindunum. Einfalda myndin sem blasir við er að næringarsnauður matur, hreyfingarleysi og streita eru að drepa okkur og nánast eina niðurgreidda meðferðin sem kerfið býður okkur upp á er lyfjataka. Þetta gengur ekki upp að mínu mati. Nú þegar heilbrigðiskerfið er komið upp að vegg ættu stjórnmálamenn að nýta tækifærið og stefna að því að fækka sjúklingum. Það er eina vitið. Er fjölskyldan öll samtaka í heilbriðgum lífsstíl? Eins og ég hef sagt áður að þá er það áskorun fyrir mig eins og flesta aðra að lifa heilbrigðu lífi - að borða hollan mat, hreyfa sig og rækta hugann. En við Geir maðurinn minn erum alveg á sömu línunni með þetta og yngri börnin hafa vanist þessu mataræði frá byrjun. En þetta var meira mál með eldri börnin til að byrja með og þau kvörtuðu. Í dag held ég bara að þau séu þakklát fyrir að hafa fengið þessa hvatningu og fræðslu. En við leyfum okkur einnig ýmislegt inn á milli - þetta snýst um það hvað maður gerir dags daglega, meiri hluta tímans. Hafa mataræði og hreyfing mikil áhrif á húð og hár? Já heldur betur. Það væri hægt að skrifa stóra ritgerð um þessi áhrif en hérna eru nokkur dæmi. Varðandi matinn þá eru efni eins og amínónsýrurnar, fitu sýr- urnar, steinefnin og vítamínin í næringunni okkar undirstaðan í uppbyggingu húðar og hárs. Þurr húð getur svo komið til t.d. vegna skorts á omega-3 fitu sýr- um, D-vítamíni, kalíum og kopar. Omega-3 fitusýrur eru jafn framt mjög mikilvægar heil brigðum hárvexti. Omega 3 fitusýrur leika einnig, ásamt fjöl mörgum efnum úr grænmeti og ávöxtum, stór hlut verk í viðbrögðum ónæmis- kerfis ins og hafa bólgu minnk andi áhrif. Þannig geta þessi bólgu- minnkandi efni í næring unni okkar komið í veg fyrir eða dregið úr bólguviðbrögðum í húð eins og exemi. Fjölmörg efni í grænmeti og ávöxtum gegna jafnframt hlutverki andoxara og geta þannig varið hana fyrir sindurefnaskemmdum af völdum útfjólublárra geisla sólar innar. Við þurfum C-vítamín og kopar til að búa til kollagen sem er uppbyggingarefni húðarinnar þannig að skortur á þessum efnum hefur mikil áhrif á húðina. Kopar er einnig nauðsynlegur til að mynda melanín sem er litarefnið sem gefur húðinni og hárinu lit og getur skortur á honum komið fram í gráum og hvítum, stríðum hárum. Járn, bíótín og sink eru einnig mikil væg efni fyrir heilbrigðan hár- vöxt og getur skortur á þeim leitt til hárloss þannig að já mataræði hefur gríðarleg áhrif á húð og hár. Varðandi hreyfinguna að þá er hún almennt bólguminnkandi og hún dregur úr áhrifum streitu. Þannig getur hún reynst vel gegn exemi og hvers konar útbrotum. Hún ýtir jafnframt undir heilbrigði æðanna og eykur blóðflæðið til húðarinnar og hársekkjanna og hjálpar þannig að viðhalda heilbrigði húðar og hárs. Getur húðin endurspeglað heilsufarslegt ástand? Húðin er stærsta líffæri líkamans og hún getur svo sannarlega spegl- að heilsufarslegt ástand fólks. Við þekkjum til dæmis gráa lit inn á húð þeirra sem reykja en þá eru litlu háræðarnar orðnar svo skemmdar að þær geta ekki almennilega flutt súrefni og nær ingu til húðarinnar og gula litinn sem myndast á húð inni þegar að lifrin er sjúk. Rann sóknir hafa einnig sýnt að djúp ar hrukkur geta farið saman með beinþynningu því kollagenið í húð inni er einnig undirstaða bein heilsu. Þurr, hrukkótt húð get ur verið merki um vanvirkan skjald kirtil. Dökkleitir blettur á húð, aðallega undir örmum, í háls- krika og í nára geta verið merki um sykursýki 2. Blett irnir eru taldir koma til af of miklu insúlíni í blóð- inu en insúlínviðtakarar á frum- unum sem virkja flutning á glúkósa inn í frumurnar eru þá orðnir FRAMHALD AF FORSÍÐU: minna næmir fyrir insúlíni þannig að líkaminn svarar með aukinni fram leiðslu á insúlíni. Þá geta húð útbrot sagt fyrir um bólgur og slæmt ástand í meltingarveginum og þau geta verið afleiðing fæðu- óþols eða ofnæmis. Þetta eru ein ung is nokkur dæmi en þau eru mun fleiri. Áttu ráðleggingar fyrir lesendur um húð og hár? Auðvitað er aðalmálið að vanda sig við að fá góða næringu hvern dag. Nýpressaður safi með gulrótum, grænkáli og/eða steinselju, hálfu epli og engifer hvern dag finnst mér hafa gríðarlega góð áhrif á húðina og hárið. Svoleiðis drykkur er fullur af bólguminnkandi andoxurum, vítamínum og steinefnum. Einnig er gott að drekka nýkreistan límónu- eða sítrónusafa daglega út í vatn eða græna drykki sem er ríkur af C-vítamíni og steinefnum. Ég tek inn 2-3 matskeiðar á dag af lífrænni hörfræolíu eða góðri blöndu af 3-6-9 og ég finn mikinn mun á húðinni ef ég geri það ekki. Ég tek einnig inn matskeið af fiskiolíu. Mér hefur einnig fund ist gott að taka inn þaratöflur sem eru ríkar af vítamínum, stein- efnum og amínósýrum. Nú hafa viðtökurnar verið góðar við bókinni. Hvað er framundan? Ég er ótrúlega þakklát þessum jákvæðu viðtökum og einnig þakk lát fyrir að hafa fengið tækifæri til deila þeim fróðleik sem ég hef viðað að mér. Ætli að ég haldi ekki áfram að skrifa. Ég lagði af stað í mun stærra verkefni þannig að bókin um matinn er ein ungis hluti af því sem ég hef verið að skrifa. Hreyfingin, hugurinn, svefninn og fleira bíður. Svo er ég alltaf á leiðinni í meira nám - en allt hefur sinn tíma. Á meðan að fólk hefur áhuga á að fræðast um þessi mál á ég von á því að halda áfram. Við leyfum okkur einnig ýmislegt inn á milli - þetta snýst um það hvað maður gerir dags daglega. Húðin er stærsta líf- færi líkamans og hún getur svo sannarlega spegl að heilsufarslegt ástand fólks. QVS í Heilsuhúsinu Hinar frábæru vörur frá ástralska fyrirtækinu QVS fást nú loksins í Heilsuhúsinu. Vörulínan frá QVS er einstaklega góð, bæði hvað varðar gæði, hönnun og verð, enda stendur QVS fyrir Quality Value Style. Fyrirtækið var stofnað 2004 og hefur frá upphafi lagt áherslu á að bjóða gæðavöru á sanngjörnu verði, – vöru sem er engu að síður falleg og vel hönnuð. Komdu í Heilsuhúsið og skoðaðu þessa skemmtilegu vörulínu ef þú vilt hugsa betur um líkamann, yngja upp húðina, skrúbba og hreinsa eða bara njóta baðferðarinnar enn betur. Þú finnur svampa, hanska, skrúbba og fjölmargt annað hjá okkur sem þú átt skilið til að láta þér líða vel.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.