Fréttablaðið - 29.10.2013, Side 25
FiberHusk
– frábært í matargerð!
KYNNING
Berglind Arndal, deildarstjóri
ung lingadeildar í Hóla brekku-
skóla, bakar mikið. Hún kynntist
FiberHusk trefja vörunum fyrir
fjórum árum þegar hún bjó í
Svíþjóð og féll fyrir þeim. „Ég
baka mikið, bæði í sparnaðar-
skyni og svo vil ég gjarnan vera
meðvituð um það sem ég læt
ofan í mig. Svíar eru almennt
upp lýstir um heilsusamlegt
matar æði og í mörgum upp-
skrift um, sérstaklega brauði, er
FiberHusk notað sem viðbót til
að gera brauðið trefja ríkara.
FiberHusk hentar mjög vel fyrir
þá sem velja glúten laust fæði
þar sem oft eru ekki nægi lega
miklar trefjar í því,“
segir Berglind.
FiberHusk í bakstur
„FiberHusk er frábært í bakstur,
deigið nær að binda vökvann
betur og brauðið heldur ferskleik-
an um lengur. Glútenlaust brauð
eða brauð með FiberHuski er með
mun meira trefjainnihaldi, mettar
betur en venjulegt hvítt brauð og
meltingin verður betri. Brauð sem
inniheldur FiberHusk er safarík-
ara. Það stuðlar að því að deig
úr náttúrulegum glútenlausum
hveititegundum lyftir sér betur.
Glútenlaus brauð og kökur fá betri
áferð auk þess sem FiberHusk
kemur í veg fyrir að það molni.
Í dag nota ég þessa vöru mikið í
ýmsa rétti svo sem brauð, pítsu-
botna og drykki.“
Hvað er FiberHusk?
„FiberHusk er trefjavara sem leysa
má upp í vatni. Varan inniheldur
Glútenlaus pítsubotn
1 1/2 dl kókóshveiti
1 dl möndlumjöl
1/2 dl FiberHusk
220 cl volgt vatn
skvetta af olíu
2 tsk vínsteinslyftiduft
Allt hnoðað saman í matvinnsluvél og flatt
út á pítsu- eða bökunarplötu. Ég byrja á að
baka botninn í 10 mínútur við 180°C set svo
sósu og það sem okkur langar í það skiptið
ofan á og baka aftur í 10 mínútur.
Steinaldarbrauð
2 dl möndlumjöl
2 dl hörfræ
2 dl sólblómafræ
1 dl sesamfræ
1 dl graskersfrafræ
1 dl FiberHusk
3 tsk salt
2 dl rifinn ostur
2 dl rifinn kúrbítur
5 egg
1/2 dl ólívuolía
Byrja á að hræra eggin vel í hrærivél, blanda
síðan öllum hráefnunum saman og bæta
síðan olíunni og kúrbítnum við. Sett í brauð-
form/kökuform og bakað í 1 klukkustund
við 160°C.
Gróft brauð með fræjum
3 dl gróft spelt eða heilhveiti
1 dl FiberHusk
1 dl möndlumjöl
4 tsk vínsteinslyftiduft
1 dl haframjöl
4 - 5 dl fræblanda
1 dl hnetur eða
möndlur (má sleppa)
6 dl AB mjólk
Hrært vel saman og sett í brauðform, bakað í
u.þ.b. 50 mínútur við 200°C.
malað hýði fræja af indversku plönt-
unni plantago ovata forsk.“
Fyrir hverja?
„FiberHusk er fyrir alla, bæði full orðna
og börn. Oft erum við ekki að fá
nægilegt magn af trefjum. Fullorðnir
ættu að neyta a.m.k. 25-35 gr af
trefjum daglega. Kostur inn við
FiberHusk er að það er 100% glúten-
laust og án allra aukaefna. Trefjarík
fæða hefur að jafnaði þau áhrif að
hægðir verða reglulegri. Það stafar
af því að trefjarnar drekka í sig vökva
sem veldur því að hægðirnar verða
mýkri en ella. Trefjar örva einnig
þarmahreyfingar og stuðla þannig að
örari losun hægða og eru til gagns
fyrir bakteríur í ristli sem við þurfum
á að halda við meltinguna. Allir þessi
eiginleikar koma að góðu haldi gegn
hægðatregðu og ristilvandamálum.
FiberHusk er þó ekki ætlað börnum
undir 3 ára aldri, þau eiga ekki að
neyta meira en sem nemur 15 gr af
trefjum á dag. Við sonur minn búum
okkur gjarnan til pítsu á föstudögum.
Ég hef smátt og smátt komið
FiberHusk inn í hans matarvenjur.
Nú segist hann ekki finna mikinn
mun á hvítum pítsubotni eins og við
gerðum hér áður fyrr og þeim sem
við gerum okkur í dag.“
Hrökkbrauð
Svo í lokin þá læt ég fylgja með
uppskrift af hrökkbrauði. Ég geri mér
ansi oft græna djúsa. Ýmist drekk ég
hratið með eða sía það frá. Mér finnst
alveg óþarfi að henda hratinu þegar
hægt er að nota það t.d. í hrökkbrauð.
Út í hratið set ég:
2 tsk, vínsteinslyftiduft
1 dl FiberHusk
1 dl möndlumjöl
2-3 dl af fræjum
2 - 2 1/2 dl vatn
Í hratinu er nóg af trefjum en mér
finnst FiberHusk góð viðbót því það
bindur deigið svo vel saman. Deigið
er flatt út á bökunarplötu og bakað í
ofni í u.þ.b. 2 x 15 mínútur við 180°C
eða þar til kexið er orðið stökkt. Svo er
um að gera að prófa sig áfram með
vöruna. Trefjar bæta meltinguna, eru
saðsamar og veita vellíðan.
Margar góðar uppskriftir með Fiber-
Husk er m.a. að finna á veftímaritinu
Allt om mat.
UPPSKRIFTIR
MEÐ
FIBER HUSK
GLÚTEN-
LAUST
GLÚTEN-
LAUS
Hér að neðan eru fimm
ilm kjarna olíur sem við mælum
með að séu á hverju heimili.
LAVENDER
Hún er talin góð gegn exemi,
sóríasis og sveppasýkingum og
hefur róandi áhrif. Sumir nota
Lavender dropa í koddann til að
sofna betur á kvöldin.
PIPARMYNTA
Þykir sérstaklega kláðastillandi
og frískandi. Hún er einnig talin
sótthreinsandi og vírusdrepandi,
ásamt því að vera bólgueyðandi.
EUCALYPTUS
Hefur lengi verið notuð til að
græða sár og stilla kláða. Hún hefur
bæði kælandi og endurnærandi
áhrif á þreytta fætur. Þá er hún
góð fyrir öndunarfærin og getur
hjálpað til við hósta og kvef.
SÍTRÓNUGRAS
Hressandi ilmurinn getur aukið
einbeitingu. Er einnig mikið
notuð í snyrtivörur, bæði vegna
ilmsins og góðra áhrifa á húðina.
Sítrónugras er einnig talið hafa
bakteríudrepandi áhrif og því
tilvalið að nota það í handáburð.
TEA TREE
Er langþekktust sem sveppa drep-
andi og er ein af fáum ilmolíum
sem mælt er með að notuð sé
óblönduð á húð. Þekkt ráð við
sveppasýkingum í tánöglum er að
setja 1-2 dropa af ilmolíunni
á nögl á hverjum degi þar til
sveppasýkingin er horfin. Tea
Tree ilmolía er einnig vel þekkt
sem bakteríu- og vírusdrepandi,
ásamt því að vera bólgueyðandi.
Aðeins þarf örfáa dropa í heilt
baðkar til að finna fyrir áhrifum
af hreinum ilmkjarnaolíum.
Best er að byrja smátt og bæta
frekar í þegar á líður, en yfirleitt
eru 1-3 dropar nóg. Gott er að
setja olíudropana í burðarefni
t.d lyktarlaust húðkrem, hreina
möndlu eða jojoba olíu eða
jafnvel sjampó. Gott er að hafa í
huga að byrja hægt og að meira
er ekki endilega betra.
Ilmkjarnaolíur eru magnað fyrirbæri. Þær geta hjálpað okkur að ná
slökun, verjast bakteríusýkingum, auka blóðfæði, koma jafnvægi á
húðvandamál og jafnvel aðstoðað við að laga hausverk og mígreni.
En virkni olíunnar er mismunandi eftir tegundum. Tea Tree ilmkjarna-
olían er t.d. mjög bakteríudrepandi og hentug á ýmis húðvandamál,
lavender olían er slakandi og svo er piparmyntuolían hreinsandi og t.d
hentugt að setja þá olíu í baðið ef haustkvefið hefur bankað uppá.
Ilmkjarnaolíur
– nauðsyn á hverju heimili