Fréttablaðið - 29.10.2013, Side 26

Fréttablaðið - 29.10.2013, Side 26
6 Heilsufréttir Heilsuhússins UPPÁHALDS VÖRURNAR MÍNAR! Ösp Viðarsdóttir vinnur í heilsuhúsinu á Lauga vegi og er nýútskrifaður næringarþerapisti frá IINH skólanum í Dublin. Hún hefur brennandi áhuga á næringu, heilsu og matargerð. Sjálf gjörbreytti Ösp mataræði sínu og lífsstíl með góðum árangri sem hvatti hana áfram og kveikti áhugann á að hjálpa öðrum við að gera slíkt hið sama. ANDLITSMASKI – GÓÐUR TIL AÐ RÓA HÚÐINA 1 msk. lífræn ólífuolía frá Biona 1 msk. Acacia hunang frá Rowse Aðferð: Hrært saman, borið á andlitið og látið bíða í 20 mínútur. Skolið af með volgu vatni. Slétt og flott húð á eftir. ANDLITSMASKI – FYRIR ÞROSKAÐA HÚÐ 1 msk. ólífuolía frá Biona 2 tsk. Acacia hunang frá Rowse 1 dropi Orange ilmkjarnaolía frá Aqua Oleum Aðferð: Ef þú villt gera maskann andox un- ar ríkari er tilvalið að opna C-víta- mín hylki frá Solaray og setja hluta af því út í blönduna. Blandið öllu vel saman og berið á andlitið, látið bíða í 15-20 mín. skolið svo af með volgu vatni. Húðin verður full af raka og vellíðan. Heimadekur DELICIOUS LÍKAMSSKRÚBBUR 1 bolli lífrænn hrásykur frá Billington 1/3 bolli hafsalt 1/2 bolli lífræn kókosolía Biona eða Redwood 2-3 tsk. Möndluolía frá Aqua Oleum 1 tsk. Vítamín E olía frá Solaray Nokkrir dropar af lavender ilmkjarna- olíu frá Aqua Oleum eða þeirri ilm- kjarnaolíu sem þú heillast af. Aðferð: Blandið öllum hráefnunum saman, olían fer seinust í. Berið á líkamann og skrúbbið varlega. Skolið af ykkur og húðin verður silkimjúk og ilmandi eftir þennan skrúbb. BÚÐU TIL ÞINN EIGIN ILM – SEIÐANDI ILMOLÍA 1 desertskeið Jojoba- cocos- eða möndluolía frá Aqua Oleum 3 dropar Ylang Ylang ilmkjarnaolía frá Aqua Oleum 7 dropar Jasmine ilmkjarnaolía frá Aqua Oleum 7 dropar Sandalwood ilmkjarnaolía frá Aqua Oleum 3 dropar Clary Sage ilmkjarnaolía frá Aqua Oleum Aðferð: Blandið öllu saman og geymið í u.þ.b. 1-3 daga til að olíurnar nái saman, hristið reglulega. Ilmolíur eru oft sterkar því er gott að bera eingöngu á sig á úlnliðina og bak við eyrun. Veldu saman þá ilmi sem henta þér hverju sinni eða eftir hverju tilefni fyrir sig! Chiafræ. Ég gæti borðað chiagraut í öll mál sem væri sennilega ekki svo slæmt þar sem fræin eru stútfull af steinefnum, góðum fitusýrum, próteini og trefjum. Þau gefa orku sem endist og eru frábær fyrir meltinguna. Baggu pokinn. Ég reyni að nota eins lítið plast og ég get og því fer Baggu alltaf með mér í innkaupin. Ótrúlega rúmgóður og slitsterkur svo ekki sé minnst á fallegur. Er búin að eiga einn í fjögur ár, nota hann mikið, set hann reglulega í þvottavélina og það sér ekki á honum. Maca. Maca-rótin hefur reynst mér afar vel en ég hef notað hana reglulega síðustu ár, ýmist í hylkjum eða dufti. Hún er ákaflega næringarrík og orkugefandi auk þess sem hún stuðlar að hormónajafnvægi. Mádara deep moisture fluid. Eftir langa leit fann ég loksins hið fullkomna andlitskrem. Ekki of feitt, ekki of þunnt og auðvitað 100% náttúrulegt. Nákvæmlega það sem viðkvæma, blandaða húðin mín þurfti. Námskeið á næstunni í Heilsuhúsinu ÞORBJÖRG HAFSTEINSDÓTTIR Næringarþerapisti og heilsufrömuður Falleg húð með náttúrulegum ljóma Miðvikudaginn 30. okt. í Heilsuhúsinu, Lágmúla 5 Kl. 18.30 – 22.00 Verð 6.900 kr. Skráning og upplýsingar: thorbjorg@thorbjorg.dk og í síma 698 3048 INGA KRISTJÁNSDÓTTIR Næringarþerapisti D.E.T. Viltu breyta mataræðinu til batnaðar á einfaldan og öfgalausan hátt? 5. nóv. og 14. jan. 2014 í Heilsuhúsinu, Lágmúla 5 Kl. 18.30 - 21.00 Verð 4.900 kr. Innifalin eru námsgögn og uppskriftamappa. Skráning og upplýsingar: inga@inga.is og í síma 899 5020 GUÐRÚN BERGMANN Leiðbeinandi Viltu takast á við bólgur og liðverki á náttúrulegan máta? 21. nóv. í Heilsuhúsinu, Lágmúla 5 Kl. 18.30 - 21.00 Betri húð – Unglegra útlit 14. nóv. í Heilsuhúsinu, Lágmúla 5 Kl. 18.30 - 21.00 Verð á námskeiðin 4.900 kr. Innfalin eru námsgögn með ítarlegum upplýsingum. Skráning og upplýsingar: ung@gudrunbergmann.is og www.ungaollumaldri.is Búðu til þitt eigið spa og dekraðu við kroppinn! Smá heimadekur er öllum nauðsynlegt af og til. Gefa sér góðan tíma til þess að hlúa að líkama og sál, láta renna í gott bað, kveikja á kertum og dekra dálítið við kroppinn. Þegar þurrt og kalt er í veðri er nauð syn legt að hlúa vel að húðinni og næra hana vandlega. Hér er að finna nokkrar frábærar uppskriftir, að meðferðum sem þú getur gert frá grunni, með áherslu á að gera vel við húðina. Þú finnur allt sem þarf í Heilsuhúsinu og svo er bara að drífa sig heim til þess að njóta lífsins.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.