Fréttablaðið - 29.10.2013, Page 40

Fréttablaðið - 29.10.2013, Page 40
29. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24 BAKÞANKAR Söru McMahon Fyrirsætan Emily O´Hara Ratajkowski var kosin kona ársins af tímaritinu Esquire. Ratajkowski er hvað þekktust fyrir að hafa komið fram í umdeildu myndbandi tónlistarmannsins Robins Thicke við lagið Blurred Lines. Emily Ratajkowski er 22 ára gömul og hóf fyrir- sætuferil sinn aðeins þrettán að aldri. „Þegar umboðsmenn nálguðust mig sagði mamma alltaf: „Hún ætlar að verða heilaskurðlæknir“,“ sagði Ratajkowski í viðtali við Esquire. Hana dreymir um að gerast leikkona en þykir hlutverkin sem henni hafa boðist fram að þessu heldur óspennandi. „Mér er sama um nekt í kvikmyndum. Ég mundi heldur leika djúpan karakter og taka þátt í ástar- senu en að leika „heimsku stúlkuna“ sem býr í næsta húsi og vera í fötunum. Ég hef fengið nokk- ur frábær tilboð, en er enn að bíða eftir rétta hlut- verkinu,“ sagði Ratajkowski. Aðspurð sagði hún myndbandið við Blurred Lines hafa verið skemmtilegt og kjánalegt. „Við tókum okkur ekki alvarlega og reyndum ekki að vera kynþokkafullar.“ Faðir Ratajkowski er pólskur og móðir hennar er ensk. Stúlkan fæddist í London en ólst upp á Írlandi og í Kaliforníu. Móðir hennar er prófess- or í ensku og lýsir Ratajkowski sem femínista og fræðimanni. Kosin kona ársins Emily Ratajkowski fyrirsæta var kosin kona ársins af tímaritinu Esquire. Hún er hvað þekktust fyrir að hafa leikið í umdeildu myndbandi Robins Thicke. KONA ÁRSINS Emily Ratajkowski vill leggja leiklistina fyrir sig í framtíðinni. NORDICPHOTOS/GETTY SJÁ SÝNINGARTÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas SMÁRABÍÓ BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS CAPTAIN PHILIPS KL. 8 - 10.30 INSIDIUS CHAPTER 2 KL. 8 - 10 KONAN Í BÚRINU KL. 6 / MÁLMHAUS KL. 6 CAPTAIN PHILIPS KL. 5 - 8 - 10.45 CAPTAIN PHILIPS LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.45 INSIDIUS CHAPTER 2 KL. 8 - 10.20 KONAN Í BÚRINU KL. 8 - 10.15 BATTLE OF THE YEAR KL. 5.40 MÁLMHAUS KL. 5.45 - 8 - 10.15 Ú ÓT RB 2D Í SL.TAL KL. 3.30 - 5.40 TÚRBÓ 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 ÉAULINN G 2 2D KL. 3.30 Miðasala á: og HÁSKÓLABÍÓ CAPTAIN PHILIPS KL. 8 - 10.15 FRANCES HA KL. 6 Í ÚKONAN B RINU KL. 5.45 - 10 GRAVITY 3D KL. 8 - 10.50 ÁM LMHAUS KL. 5.45 - 8 - 10.15 HROSS Í OSS KL. 6 - 8 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ -V.H., DV -H.V.A., FBL - H. S., MBL „SPENNUMYND, ÁGÆTIS AFÞREYING, VEL LEIKIN OG HEFUR ÚTLITIÐ MEÐ SÉR“ -S.B.H., MBL EMPIRE THE HOLLYWOOD REPORTER EMPIRE THE NEW YORK TIMES BEINT Á TOPPINN Í USA! -A.F.R., KVIKMYNDIR.IS 95% Á ROTTEN- TOMATOES.COM „STÓ RBROTIN, RÓ MANTÍSK OG GÖ FUGLYND“ JOY DIETRICH THE NEW YORK MAGAZINE 93% Á ROTTENTOMATOES.COM ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ EGILSHÖLLÁLFABAKKA KRINGLUNNI AKUREYRI KEFLAVÍK THE HOLLYWOOD REPORTER ENTERTAINMENT WEEKLY VARIETY VARIETY LOS ANGELES TIMES QC THE HOLLYWOOD REPORTER ENTERTAINMENT WEEKLY EMPIRE R.R. CHICAGO SUN-TIMES CAPTAIN PHILLIPS 6, 9 INSIDIOUS: CAPTER 2 8, 10:20 MÁLMHAUS 5:50 ABOUT TIME 9 AULINN ÉG 2 - ÍSL TAL 6 2D þriðjudagstilboð þriðjudagstilboð þriðjudagstilboðþriðjudagstilboð The New York Times Los Angeles Times Empire ÍSL TAL H.V.A. FBL H.S. MBLV.H. DV 5% Ég á vinkonu sem er svo óheppin að vera einhleyp, eða Jónka, eins og ég kýs að kalla hana. Þrátt fyrir að vera stanslaust á ferðinni hefur henni ekki tekist að fá karl- mann til að heillast af sér. Líkt og gefur að skilja þykir henni þetta miður og leitaði ráða hjá mér, enda tókst mér hið ómögu- lega: Að fá karlmann til að falla fyrir töfrum mínum. ÉG var öll af vilja gerð því ég vil ekki fyrir nokkra muni að Jónkan verði karlmanns- laus út ævina. Ég lagðist því í mikla rann- sóknavinnu og þetta er það sem ég hafði upp úr krafsinu: BROSTU! Karlmenn laðast aðeins að brosmildum konum og því eiga ein- hleypar konur að vera síbrosandi. Bros sem færist hægt og laumulega yfir andlitið þykir sérlega aðlaðandi, og ekki skemmir fyrir ef konan roðnar örlítið um leið. EKKI gefa of mikið af þér! Karl- menn eiga erfitt með að halda athyglinni í lengri tíma og því verða einhleypar konur að passa upp á að ofbjóða þeim ekki með masi. Láttu hann alltaf senda síð- ustu smáskilaboðin, skráðu þig allt- af út af samskiptamiðlum á undan honum og síðast en ekki síst, gakktu burt í miðju samtali! Þannig fær hann aldrei nóg af þér. GERÐU hann afbrýðisaman! Karlmenn eru með mikið keppnisskap og vilja því ekki konur sem aðrir karlmenn vilja ekki. Þessi fullyrðing kann að hljóma undar- lega en er í raun ósköp einföld. Ýttu undir keppnisskap skotsins þíns með því að daðra linnulaust við aðra karlmenn. VERTU aðlaðandi! Ekki víla fyrir þér að breyta útliti þínu til að þóknast skotinu. Ef hann er veikur fyrir rauðhærðum konum, litaðu hár þitt rautt! Strax! GRAMSAÐU eftir lyklunum hans! Þessi síðasti punktur er sérlega mikilvægur! Karlmenn elska óvænta snertingu, sér í lagi ef hún kemur frá aðlaðandi og bros- mildri konu með rautt hár. Stingdu hend- inni í vasa hans og gramsaðu eftir lyklum, snertingin mun koma honum á óvart og hann mun endanlega falla fyrir þér. NÚ þarf engin kona að pipra framar, nema hún hafi gerst svo kærulaus að gleyma að leggja á minnið hin fimm einföldu skref um hvernig megi halda athygli kærastans til langtíma. Piparjónkudagarnir að baki „Þetta er mikill heiður fyrir okkur og það er mjög gaman að þessu,“ segir Eyþór Gunnarsson hljóm- borðsleikari fusion-hljómsveitar- innar Mezzoforte, sem er ásamt barokk- sveitinni Nordic Affect til- nefnd til Tónlistarverðlauna Norð- urlandaráðs í ár. Verðlaunin verða afhent í Óperuhúsinu í Osló í Nor- egi 30. október næstkomandi. „Þetta eru líklega stærstu tónlistarverð- launin í okkar heimshluta,“ segir Eyþór um verðlaunin. Tónlistarverðlaun Norðurlanda- ráðs eru ein fimm verðlauna sem veitt eru árlega af Norðurlandaráði. Annað hvert ár eru verðlaunin veitt fyrir tónverk eftir núlifandi tón- skáld og hitt árið hópum tónlistar- manna sem sýna mikla listræna og faglega færni. „Ég og Gulli Briem verðum við- staddir verðlaunaafhendinguna en við í Mezzoforte förum svo í mikið tónleikaferðalag um Evrópu og Asíu, daginn eftir hátíðina.“ Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1965. Færeyska tónlistarkonan Eivør Pálsdóttir er tilnefnd til sömu verðlauna fyrir hönd Færeyinga. Nokkrir Íslendingar hafa hlotið verðlaunin, en á meðal þeirra eru Björk Guðmundsdóttir, sem hlaut verðlaunin árið 1997, og Anna Þor- valdsdóttir, sem hlaut þau í fyrra. - glp Íslendingar tilnefndir til Tónlist- arverðlauna Norðurlandaráðs Hljómsveitirnar Mezzoforte og Nordic Aff ect eru tilnefndar til virtra verðlauna. MIKILL HEIÐUR Eyþór Gunnarsson og hljómsveit hans, Mezzoforte, er tilnefnd til verðlaunanna. MYND/ULLA C. BINDER

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.