Fréttablaðið - 29.10.2013, Page 43

Fréttablaðið - 29.10.2013, Page 43
ÞRIÐJUDAGUR 29. október 2013 | SPORT | 27 Komdu þér vel fyrir og njóttu kvöldsins! London Fáðu þér áskrift 512 5100 stod2.is ARSENAL–CHELSEA KÖRFUBOLTI Þriðju umferð Domi nos - dei ld a r k a rla í körfubolta lauk í gærkvöldi þegar Keflavík vann þriggja stiga sigur á Njarðvík, 88-85, í mögnuðu uppgjöri tveggja ósigraða liða í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Gunnar Ólafsson tryggði Keflavík sigurinn í sínum fyrsta Reykjanesbæjarslag og þó að hann hafi ekki komist í 20 stigin í gær þá er hann enn eitt dæmi um íslenskan leikmann sem stelur sviðsljósinu í upphafi tímabilsins. Nýjar reglur tóku gildi í deild- inni í haust því frá og með þessu tímabil þurfa fjórir af fimm leik- mönnum inni á vellinum í hvoru liði að vera með íslenskan ríkis- borgararétt. Liðin úti á landi eru ekki alltof hrifin af þessum breyt- ingum enda eiga þau oft erfitt að með halda í eða fá íslenska stráka til að spila úti á landi þar sem flestir sækja skóla eða önnur tæki- færi fyrir sunnan. Áhrif reglubreytingarinnar virðast þó hafa haft þau áhrif sem fylgismenn hennar sáu fyrir sér. Íslenskir leikmenn hafa fengið stærra hlutverk og meiri ábyrgð í sínum liðum. Þetta sést meðal ann- ars vel þegar stigaskor leikmanna í fyrstu þremur umferðunum er skoðað nánar. Alls hefur 21 Íslendingur skorað tuttugu stig eða meira í einum leik og ellefu af tólf liðum deildarinnar eiga íslenskan leikmann sem hefur rofið tuttugu stiga múrinn. Nýliðar Hauka eiga þrjá íslenska tuttugu stiga menn alveg eins og KR, ÍR og Grindavík. Í síðasta leik skoraði til dæmis hinn sextán ára gamli Kári Jónsson 28 stig fyrir Hauka á rúmum 18 mínútum þar sem hann hitti úr 11 af 12 skotum sínum. Fjórði Haukamaðurinn sem hefur sprungið út er síðan leikstjórnandinn Emil Barja sem náði þrefaldri tvennu í fyrsta leik. Það er heldur ekki eins og fleiri íslenskir skorarar eigi ekki eftir að bætast í hópinn á þessu tímabili. KR-ingarnir Brynjar Þór Björnsson og Martin Hermannsson eru til dæmis þekktir skorarar enda illviðráðanlegir á góðum degi og fleiri tilvonandi tuttugu stiga leikmenn bíða eftir sínum degi eða dögum. Það er nefnilega nóg af ungum, stórefnilegum leikmönnum í deildinni sem fá nú tækifærið til að sýna hvað í þá er spunnið. Ævintýri Njarðvíkurhúnanna síðustu ár hafa ennfremur sýnt hvaða árangri er hægt að ná þegar félög þora að veðja á uppalda leikmenn sína. Fleiri félög hafa nú nýtt sér þessa góðu fyrirmynd. Framlag leikmanna til sinna liða stendur þó ekki og fellur með stigaskori þeirra því leikmenn hjálpa liðum sínum á mörgum öðrum sviðum. Framlag er annar mælikvarði á leikmenn og þegar framlagslistinn er skoðaður bætast við sex íslenskir leikmenn sem hafa rofið tuttugu framlagsstigamúrinn. Þá kemur góður varnarleikur seint fram á tölfræðiblaðinu. Það sem tölfræðin sýnir er aftur á móti að íslenskir leikmenn eru að fá og nýta tækifærin sín í upphafi vonandi skemmtilegs körfuboltatímabils. ooj@frettabladid.is Íslensku strákarnir stela sviðsljósinu Íslenskir körfuboltamenn hafa verið áberandi í stigaskori í fyrstu umferðum Dominos-deildar karla í körfu og 21 þeirra hefur rofi ð tuttugu stiga múrinn. MÖGNUÐ FRAMMISTAÐA Kári Jónsson, 16 ára sonur Jóns Arnars Ingvarssonar, skoraði 28 stig í sínum þriðja leik í úrvalsdeildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI REYNDARI LEIKMENN Justin Shouse, Stjörnunni 32 stig Jóhann Árni Ólafsson, Grindavík 28 stig Jón Ólafur Jónsson, Snæfelli 28 stig Guðmundur Jónsson, Keflavík 27 stig Þorleifur Ólafsson, Grindavík 27 stig Helgi Már Magnússon, KR 25 stig Logi Gunnarsson, Njarðvík 24, 23 og 23 stig Páll Axel Vilbergsson, Skallagrími 23 og 23 stig Mirko Stefán Virijevic, KFÍ 20 og 24 stig Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Grindavík 20, 23 Davíð Páll Hermannsson, Haukum 22 stig Darri Hilmarsson, KR 22 stig Sveinbjörn Claessen, ÍR 21 og 21 stig Pavel Ermolinskij, KR 20 stig UNGU STRÁKARNIR Matthías Orri Sigurðarson, ÍR 33 stig Haukur Óskarsson, Haukum 25 og 31 stig Elvar Már Friðriksson Njarðvík 28 og 23 stig Kári Jónsson, Haukum 28 stig Björgvin Ríkharðsson, ÍR 24 stig Tómas Heiðar Tómasson, Þór Þorl. 20 stig Kristján Pétur Andrésson, Snæfelli 20 stig Tuttugu stiga mennirnir í fyrstu þremur umferðum Dominos-deildar karla

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.