Fréttablaðið - 29.10.2013, Qupperneq 43
ÞRIÐJUDAGUR 29. október 2013 | SPORT | 27
Komdu þér vel fyrir og njóttu kvöldsins!
London
Fáðu þér áskrift
512 5100
stod2.is
ARSENAL–CHELSEA
KÖRFUBOLTI Þriðju umferð
Domi nos - dei ld a r k a rla í
körfubolta lauk í gærkvöldi þegar
Keflavík vann þriggja stiga sigur
á Njarðvík, 88-85, í mögnuðu
uppgjöri tveggja ósigraða liða í
Ljónagryfjunni í Njarðvík.
Gunnar Ólafsson tryggði
Keflavík sigurinn í sínum fyrsta
Reykjanesbæjarslag og þó að
hann hafi ekki komist í 20 stigin
í gær þá er hann enn eitt dæmi
um íslenskan leikmann sem stelur
sviðsljósinu í upphafi tímabilsins.
Nýjar reglur tóku gildi í deild-
inni í haust því frá og með þessu
tímabil þurfa fjórir af fimm leik-
mönnum inni á vellinum í hvoru
liði að vera með íslenskan ríkis-
borgararétt. Liðin úti á landi eru
ekki alltof hrifin af þessum breyt-
ingum enda eiga þau oft erfitt að
með halda í eða fá íslenska stráka
til að spila úti á landi þar sem
flestir sækja skóla eða önnur tæki-
færi fyrir sunnan.
Áhrif reglubreytingarinnar
virðast þó hafa haft þau áhrif sem
fylgismenn hennar sáu fyrir sér.
Íslenskir leikmenn hafa fengið
stærra hlutverk og meiri ábyrgð í
sínum liðum. Þetta sést meðal ann-
ars vel þegar stigaskor leikmanna
í fyrstu þremur umferðunum er
skoðað nánar.
Alls hefur 21 Íslendingur skorað
tuttugu stig eða meira í einum leik
og ellefu af tólf liðum deildarinnar
eiga íslenskan leikmann sem hefur
rofið tuttugu stiga múrinn.
Nýliðar Hauka eiga þrjá íslenska
tuttugu stiga menn alveg eins og
KR, ÍR og Grindavík. Í síðasta leik
skoraði til dæmis hinn sextán ára
gamli Kári Jónsson 28 stig fyrir
Hauka á rúmum 18 mínútum þar
sem hann hitti úr 11 af 12 skotum
sínum. Fjórði Haukamaðurinn
sem hefur sprungið út er síðan
leikstjórnandinn Emil Barja sem
náði þrefaldri tvennu í fyrsta leik.
Það er heldur ekki eins og
fleiri íslenskir skorarar eigi ekki
eftir að bætast í hópinn á þessu
tímabili. KR-ingarnir Brynjar Þór
Björnsson og Martin Hermannsson
eru til dæmis þekktir skorarar
enda illviðráðanlegir á góðum
degi og fleiri tilvonandi tuttugu
stiga leikmenn bíða eftir sínum
degi eða dögum.
Það er nefnilega nóg af ungum,
stórefnilegum leikmönnum í
deildinni sem fá nú tækifærið
til að sýna hvað í þá er spunnið.
Ævintýri Njarðvíkurhúnanna
síðustu ár hafa ennfremur sýnt
hvaða árangri er hægt að ná þegar
félög þora að veðja á uppalda
leikmenn sína. Fleiri félög hafa
nú nýtt sér þessa góðu fyrirmynd.
Framlag leikmanna til sinna
liða stendur þó ekki og fellur með
stigaskori þeirra því leikmenn
hjálpa liðum sínum á mörgum
öðrum sviðum. Framlag er
annar mælikvarði á leikmenn
og þegar framlagslistinn er
skoðaður bætast við sex íslenskir
leikmenn sem hafa rofið tuttugu
framlagsstigamúrinn. Þá kemur
góður varnarleikur seint fram á
tölfræðiblaðinu.
Það sem tölfræðin sýnir er
aftur á móti að íslenskir leikmenn
eru að fá og nýta tækifærin sín
í upphafi vonandi skemmtilegs
körfuboltatímabils. ooj@frettabladid.is
Íslensku strákarnir
stela sviðsljósinu
Íslenskir körfuboltamenn hafa verið áberandi í stigaskori í fyrstu umferðum
Dominos-deildar karla í körfu og 21 þeirra hefur rofi ð tuttugu stiga múrinn.
MÖGNUÐ FRAMMISTAÐA Kári Jónsson, 16 ára sonur Jóns Arnars Ingvarssonar,
skoraði 28 stig í sínum þriðja leik í úrvalsdeildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
REYNDARI LEIKMENN
Justin Shouse, Stjörnunni 32 stig
Jóhann Árni Ólafsson, Grindavík 28 stig
Jón Ólafur Jónsson, Snæfelli 28 stig
Guðmundur Jónsson, Keflavík 27 stig
Þorleifur Ólafsson, Grindavík 27 stig
Helgi Már Magnússon, KR 25 stig
Logi Gunnarsson, Njarðvík 24, 23 og 23 stig
Páll Axel Vilbergsson, Skallagrími 23 og 23 stig
Mirko Stefán Virijevic, KFÍ 20 og 24 stig
Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Grindavík 20, 23
Davíð Páll Hermannsson, Haukum 22 stig
Darri Hilmarsson, KR 22 stig
Sveinbjörn Claessen, ÍR 21 og 21 stig
Pavel Ermolinskij, KR 20 stig
UNGU STRÁKARNIR
Matthías Orri Sigurðarson, ÍR 33 stig
Haukur Óskarsson, Haukum 25 og 31 stig
Elvar Már Friðriksson Njarðvík 28 og 23 stig
Kári Jónsson, Haukum 28 stig
Björgvin Ríkharðsson, ÍR 24 stig
Tómas Heiðar Tómasson, Þór Þorl. 20 stig
Kristján Pétur Andrésson, Snæfelli 20 stig
Tuttugu stiga mennirnir í fyrstu þremur
umferðum Dominos-deildar karla