Fréttablaðið - 02.11.2013, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 02.11.2013, Blaðsíða 18
2. nóvember 2013 LAUGARDAGURSKOÐUN ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Fjármálakreppan í Evrópu hefur aukið fylgi við flokka sem byggja á samblandi þjóðernislegra tilfinninga og popúlisma. Sumir gamlir flokkar af því tagi hafa eflst og nýir sprottið upp. Mislit spaugstofuframboð eru annars eðlis en hafa einnig fengið byr í seglin á stöku stað. Þessi pólitíska hreyfing hefur svo sem vænta má verið dregin inn í Evrópuumræðuna hér heima. Einkum eru það andstæðingar aðildar að Evrópusambandinu sem títt og ákaft benda á þennan veru- leika til sannindamerkis um að á Íslandi eigi menn ekki að hugsa frekar um evr- ópska samvinnu. Ekki er vitað hvort hér er á ferðinni tíma- bundin sveifla eða byrjun á þróun. Það ræðst ugglaust mikið af því hvernig mönnum tekst að leysa úr þeim þrengingum sem fylgt hafa fjár- málakreppunni. Þeir flokkar sem hér um ræðir eru nokkuð misjafnir. Sumir hafa jafnvel á sér yfirbragð fasisma. Því er erfitt að draga alla í einn og sama dilkinn þrátt fyrir afar sterk sameiginleg einkenni. Það er líka erfitt að nota gildishlaðin orð eins og öfgar því að flokkarnir ganga mislangt í því efni. Einkum eru það þrjú atriði sem þessir flokkar eiga saman. Í fyrsta lagi rík þjóðernishyggja og and- staða við Evrópusamvinnu. Í öðru lagi neikvæð afstaða til innflytj- enda, misöflug þó. Í þriðja lagi yfirboð á afmörkuðum sviðum vel- ferðar- og félagsmála. Það má því segja að þeir nálgist kjósendur samtímis frá ysta jaðri hægri og vinstri í pólitík. Þeir falla því illa inn í hefðbundið litróf. Þjóðernispopúlismi í Evrópu Framsóknarflokkurinn í Dan-mörku undir forystu Glist-rups náði fyrst fótfestu slíkra flokka á Norðurlöndum fyrir ára- tugum. Danski þjóðarflokkurinn spratt síðar út úr honum. Norski Framsóknarflokkurinn er líka gamall í hettunni og byggður á sambærilegum hugmyndum. Í Finnlandi er þetta pólitíska fyrir- bæri hins vegar nýtt af nálinni, en í Svíþjóð hefur það ekki skákað hefðbundnum flokkum svo heitið geti. Í Frakklandi hefur flokkur af þessu tagi um nokkurn tíma sett verulegt strik í reikninginn. Eins er austurríski flokkurinn sterk- ur. Nýr flokkur í Þýskalandi náði aftur á móti ekki fótfestu í kosn- ingum þar í september. Gríski flokkurinn fékk byr í seglin í kreppunni en á nú í útistöðum við réttvísina. Breski Sjálfstæðisflokkurinn hefur mælst með gott fylgi í skoð- anakönnunum. Mótleikur Íhalds- flokksins byggir á hugmyndum um að viðhalda aðildinni að Evrópusambandinu en draga úr áhrifum þess á afmörkuðum svið- um og efna svo til þjóðar atkvæðis. Það er um margt áhugaverð hugsun sem fróðlegt verður að sjá hvað verður úr. Flokkar sem byggja á þjóðernis- popúlisma hafa átt erfitt með að komast að ríkisstjórnarborði. Stefna þeirra er fremur sniðin að andstöðu en ábyrgð. Norski Fram- sóknarflokkurinn hefur hins vegar markvisst fært sig nær borgara- flokkunum á allra síðustu árum til þess að verða stjórntækur. Önd- vert við aðra slíka flokka tapaði hann verulegu fylgi á dögunum en náði vegna þessarar málefnalegu aðlögunar að komast í ríkisstjórn. Sniðinn að andstöðu fremur en ábyrgð Segja má að ekki hafi bólað að nokkru marki á pólitískri þróun af þessum toga hér á landi fyrr en ný forysta tók við Framsóknarflokknum fyrir rúmum fjórum árum. Síðan hafa böndin við hugmynda- og hags- munaheim gamla Framsóknar- flokksins smám saman trosnað ef frá er talið Kaupfélag Skagfirð- inga. Með félagslega loforðinu um mestu endurgreiðslu húsnæðislána í heimi varð endanlega til íslensk- ur þjóðernispopúlismaflokkur. Framsókn er fyrsti og eini flokk- ur sinnar tegundar á evrópska efnahagssvæðinu til þess að veita ríkisstjórn og landi forystu. Þó að þessi pólitík hafi verið lengi á leiðinni til Íslands hefur hún náð hærra flugi hér en annars staðar. Enginn spaugstofuflokkur hefur heldur náð jafn miklum árangri og Besti flokkurinn í Reykjavík. Hér hefur því orðið meiri pólitísk kerfisbreyting á stuttum tíma en nöfn á flokkum segja til um. Af þessum síðbúna en leiftur snögga uppgangi þjóðernispopúl- ismans á Íslandi leiðir aftur á móti að við getum fyrr en aðrar þjóðir dæmt af reynslu hverju hann skil- ar. Setunni við ríkisstjórnar borðið fylgir ábyrgð sem ekki verður umflúin. Það er því ærið tilefni til að skoða þetta pólitíska fyrirbrigði frá íslensku sjónarhorni. Nú þegar er til að mynda komið í ljós að sú þröngsýni sem felst í þessari pólitík varðandi alþjóð- legt samstarf á sviði peningamála veldur því að draumurinn um haftalaust Ísland hefur fjarlægst. Fyrir sömu sakir er allt í óvissu um langtíma kjarasamninga og stöðugleika. Og fylgi Framsóknar- flokksins hefur strax hrunið í skoðanakönnunum. Þetta eru þó aðeins þrjár vís- bendingar; ofmælt væri að segja að full reynsla sé fengin. Flýgur hæst á Íslandi Á kvörðun Jóns Gnarr borgarstjóra Reykjavíkur að draga sig í hlé frá stjórnmálastarfi markar vissulega tímamót í borgarmálapólitíkinni. Þegar Jón hverfur úr stóli borgarstjóra lýkur tímabili sem er einstakt í sögu borgarstjórnarinnar; grínisti og vinir hans unnu stór- sigur í borgarstjórnarkosningum og fórst betur úr hendi að stjórna borginni en flestir hefðu búizt við – þótt þar sé vissulega margt gagnrýni vert. Í könnun sem gerð var í september á fylgi flokkanna í borgarstjórn fékk Bezti flokkurinn 37 prósent, meira en í kosning- unum árið 2010. Tilkoma Bezta flokksins ruglaði öll gömul valdahlutföll í pólitíkinni í Reykjavíkurborg. Þótt Jón Gnarr hverfi nú af sjónarsviðinu og Bezti flokkurinn bjóði ekki fram á ný, er ekki þar með sagt að borgarpólitíkin verði aftur eins og hún var. Niðurstöður skoðanakönnunar sem Frétta- blaðið og Stöð 2 gerðu strax og ákvörðun Jóns lá fyrir birtust í blaðinu í gær. Þær benda til að Björt framtíð, sem Bezti flokkurinn rennur nú inn í, njóti áfram svipaðs fylgis hjá borgarbúum og hann hefur gert. Það er þess vegna alls ekki þar með sagt að gömlu flokkarnir í borgarstjórn geti skipt fylgi Bezta flokksins á milli sín. Reyndar má gera ráð fyrir að fyrirhugað framboð Bjartrar fram- tíðar njóti fyrst um sinn áhrifa Jóns Gnarr. Það á eftir að koma í ljós hvort arftaki hans sem forystumaður og andlit framboðsins nái að miðla sömu hughrifum og Jón. Það verður ekki auðvelt verk. Kosningasigur Bezta flokksins var augljóslega til kominn vegna þess að fólk hafði ekki trú á gömlu flokkunum og hefðbundinni pólitík. Áframhaldandi gott gengi Bezta flokksins og nú Bjartrar framtíðar bendir líka eindregið til að gömlu flokkarnir hafi ekki náð vopnum sínum; hafi ekki fundið röddina sem borgarbúar vilja hlusta á. Þeir sem vilja seilast í fylgið sem Bezti flokkurinn hefur haft þurfa líklega að sýna að þeir hafi lært eitthvað af því sem Jón Gnarr gerði vel í pólitíkinni. Það er ekki sízt að rækta samtalið við borgarbúa og sinna hinu „óskilgreinda tilfinningalega hlutverki“ sem Jón lýsti í upphafi borgarstjóraferils síns yfir að hann myndi rækja. Margir hlógu þá að honum, en staðreyndin er að þetta gerði hann með sóma. Þeir sem ætla að læra af Jóni Gnarr ættu sömu- leiðis að standa með lítilmagnanum, taka réttlátan málstað og sýna einlægni og heiðarleika í málflutningi sínum. Allt þetta finnst fólki vanta í pólitíkina. Í könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 tók aðeins um helmingur kjósenda afstöðu til flokkanna sem hyggjast bjóða fram til borgar- stjórnar. Margir eru óákveðnir og eiga erfitt með að binda trúss sitt við tiltekinn flokk. Slíkt er augljós fylgifiskur hrunsins og þess trúnaðarbrests sem varð í samfélaginu í kjölfar þess. Þar er enn ekki gróið um heilt. Um leið er þetta til marks um að staðan fyrir borgarstjórnar- kosningarnar á næsta ári er galopin. Og þeir geta fiskað sem róa á mið kjósenda sem hallast hvorki út á vinstri- né hægrijaðarinn heldur vilja að stjórnmálamenn hlusti á þá og vinni einlæglega í þeirra þágu. Bezti flokkurinn fer og Björt framtíð kemur: Ekki afturhvarf til fortíðar Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.