Fréttablaðið - 02.11.2013, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 02.11.2013, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 2. nóvember 2013 | HELGIN | 43 FJALLAFEGURÐ Mæðginin Óli og Sóley í stórfenglegu umhverfi í heimabænum Sisimiut í Grænlandi MYND/JAKOB JAKOBSSON @MONSIEURGRUNVALSKY ÚT UM GLUGGANN Heimavinnandi húsfaðirinn virðir fyrir sér stór- fenglegt útsýnið út um eldhúsgluggann. MYND/SÓLEY KALDAL HAMFLETT Á HEIÐINNI Jakob fór á hreindýraveiðar og þurfti að verka dýrin áður en haldið var til byggða. MYND/JAKOB JAKOBSSON @MONSIEURGRUNVALSKY aðnjótandi að komast á bæði sjó- og skotveiðar með nágranna sínum, sem hann hafði aldrei gert áður. Jakob: „Veiðiumhverf- ið á Grænlandi er allt öðruvísi en á Íslandi. Á Grænlandi elst fólkið upp við mikla virðingu fyrir náttúrunni og veiði. Menn veiða aðeins sér til matar, aldrei sem eitthvert sport og allt sem umfram er veitt fer annaðhvort á markað eða til annarra sem þurfa á bráðinni að halda.“ Jakob segir að hann hafi fyrst fengið hina einu sönnu Grænlandsupp- lifun til fjalla við veiðarnar. Það hafi verið engu líkt, enda manna- byggðir í órafjarlægð og fegurð- in ólýsanleg. Þau hjónin segja skemmtilegt að upplifa þessa framandi veiðimenningu. Sóley: „Við höfum til að mynda borðað hreindýr í öll mál undanfarið, eftir að Jakob kom af hreindýra- veiðum, sem annars var aðeins á boðstólum yfir hátíðarnar. Það er sérstakt að borða hreindýra-las- anja á mánudegi.“ Þá er Óli farinn að leika sér mikið í veiðimanna- leikjum og fylgist vel með verk- un allra þeirra dýra sem komið er með á heimilið. Lærir hundasleðasmíði Jakob hefur einnig tekið þátt í knattspyrnu með bæjarliðinu. Jakob: „Það kom á óvart hversu vel mér var tekið, þó ég hafi fljótt þurft að koma því að að ég er ekki Dani, en Grænlendingar kunna betur við Íslendinga en Dani,“ sem þau útskýra með stirðu sambandi Grænlands og Danmerkur. Jakob stefnir einnig á heilmikla þolraun næstu páska, þar sem hann mun taka þátt í hinni þriggja daga, 160 kílómetra löngu skíðagöngukeppni Arctic Circle Race. Jakob er virki- lega spenntur enda er um að ræða stóran viðburð og stolt bæjarins. Þau hafa nýlega skráð sig á nokkur námskeið, Sóley er að læra grænlenskan skinnsaum og notar skinnin af dýrunum sem Jakob veiðir til að gera flíkur á fjölskylduna. Jakob er að læra hundasleðasmíði og hyggst smíða göngusleða sem fjölskyldan getur notað í ferðir milli staða yfir háveturinn. Þau hjónin segja það mikinn lærdóm að komast úr því eilífa áreiti sem einkenni líf þeirra kyn- slóðar. Jakob: Við erum hvorki með sjónvarp né internet-tengingu og oft og tíðum er símasamband- ið lélegt. Svo höfum við varla séð neina auglýsingu af nokkru tagi neins staðar síðan við komum, maður uppgötvar það eftir á hvað það er mikið áreiti.“ Lífið gangi hægar á Grænlandi og þau njóta þess í botn að lesa bækur, upplifa Grænland og vera saman. Stórkostlegt land Sóleyju og Jakobi finnst stór- merkilegt hversu lítið Íslendingar vita almennt um Grænland. Sóley: „Sér í lagi í ljósi nálægðar land- anna tveggja. Landið er stórkost- legt og við erum alveg gripin af öllu sem það hefur upp á að bjóða, en áður en við fluttum vissum við lítið sem ekkert um land og þjóð. Grænlendingar eru svo hógvær- ir, þeir eru ekki enn þá búnir að uppgötva hvað það er töff að vera Grænlendingur,“ og líkir því við Íslendinga fyrir nokkrum árum. Jakob: „Þessi litla þjóð er einstök og vonandi uppgötvar hún það fyrr en síðar.“ www.a4.is / sími 580 0000 A4 Skeifunni 17 / A4 Smáratorgi 1 / A4 Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði A4 Dalsbraut 1, Akureyri / A4 Miðvangi 13, Egilsstöðum / A4 Austurvegi 65, Selfossi Sjá má afgreiðslutíma verslana A4 á www.a4.is MIKIÐ ÚRVAL AF FÖNDUR- PAKKNINGUM BÚÐU TIL PERSÓNULEG KERTI Jólasería „Glær jarðaber“ 10 ljósa LED sería, notar 2 x AA rafhlöður. Jólasería „Glært hjarta“ 10 ljósa LED sería, notar 2 x AA rafhlöður. Jólasería „Glær stjarna“ 10 ljósa LED sería, notar 2 x AA rafhlöður. Jólaföndursett „Partý jól“ úr vattkúlum. Hæð 3,5–13,5 sm. Efni í 5 manna fjölskyldu. Jólaföndursett „Litlir jólasveinar“ Hæð 6 sm. Efni í 12 stk. Jólaföndursett barna „Jólafígúrur“ Efni í 1 stk. Hentar frá 5 ára aldri. Jólasveinn, piparkökukarl, jólatré eða hreindýr. Hæð 15 til 20 sm BÚÐU TIL ÞÍNAR EIGIN JÓLASKREYTINGAR ertalím fyrir pappír.K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.