Fréttablaðið - 02.11.2013, Qupperneq 50
FÓLK|| FÓ K | HELGIN4
Eva Ólöf Hjaltadóttir segir að sér hafi ekki liðið vel í langan tíma áður en hún kynntist Femarelle. „Ég er
á lyfjum vegna sykursýki og sjúkdóms í
skjaldkirtli. Ég þyngdist vegna lyfjanna,
hef auk þess þjáðst af gigt með tilheyr-
andi verkjum. Mér fannst óþægilegt að
vera innan um margt fólk og var farin að
finna fyrir þunglyndi. Einnig átti ég erfitt
með að vera í hávaða og var að einangr-
ast gagnvart félagslífi,“ segir Eva Ólöf.
„Ég er 71 árs og var ekki sátt við
hvernig mér leið, vildi geta tekið meiri
þátt í lífinu. Ég las umfjöllun um Fem-
arelle og leist vel á að prófa náttúrulega,
hormónalausa meðferð, sérstaklega þar
sem sagt var að hylkin gætu minnkað
verki. Núna hef ég tekið Femarelle inn
í fjóra mánuði og hef endurheimt mitt
fyrra líf. Mér líður svo vel að nú get ég
farið daglega út að ganga með hundinn
minn, fer í sund á hverjum degi og sæki
félagsvist og bingó,“ segir Eva glöð í
bragði.
„Mig er hætt að verkja um allan
líkamann. Ég nota Femarelle sem nátt-
úrulega verkjameðferð því ef ég er með
verk tek ég aukalega inn af því. Það
besta við þetta allt er að börnin mín og
tengdabörn segja að ég sé aftur orðin
lífleg og hress. Þá finnst mér mun meira
gaman að hitta barnabörnin mín, því ég
get veitt þeim alla athygli. Ég hef misst
ellefu kíló án þess að hafa haft fyrir því
vegna þess að mér líður betur og get
hreyft mig óhindrað. Ég er ánægð með
Femarelle-hylkin, mér líður vel af þeim
og hef mælt með þeim við vinkonur
mínar.
DREGUR ÚR VERKJUM
OG VANLÍÐAN
ICECARE KYNNIR Femarelle er náttúruleg lausn fyrir konur á breytingaaldri.
Femarelle er gert úr jurtaefnum og rannsóknir sýna að það slær á einkenni
tíðahvarfa og hefur hjálpað mörgum konum að öðlast betri líðan.
FEMARELLE
ÖRUGGUR
KOSTUR
Femarelle fæst
í apótekum,
heilsubúðum
og heilsuhillum
stórmarkaða. sjá
www.icecare.is
ÁNÆGÐ
Eva Ólöf er ánægð með
Femarelle og segist nota
það sem náttúrulega
verkjameðferð.
MYND/STEFAN
Þetta er eitthvert eyðimerk-urpönk og mér sýnist fólk verða svolítið skrítið á
svipinn þegar það setur nýju plöt-
una okkar á fóninn,“ segir Jónas
Sigurðsson um tónlist hljóm-
sveitarinnar Dranga sem skipuð er
Jónasi, Mugison og Ómari Guð-
jónssyni.
„Drangar urðu til um þetta leyti í
fyrra þegar við Ómar túruðum um
landið og komum við hjá Mugison
í Súðavík. Þá spiluðum við þrír á
tónleikum á Flateyri og ákváðum
að setja hljómsveitina á fót,“ út-
skýrir Jónas sem verður á gömlum
heimaslóðum þegar hann stígur á
svið með Dröngum í Tryggvaskála
á Selfossi annað kvöld.
Jónas er fæddur og uppalinn í
Þorlákshöfn og þekkir Suðurlandið
eins og lófann á sér.
„Í gamla daga keyrði ég þrot-
laust þvers og kruss um Suður-
landið og klassískur hringur á
góðum degi var að fara í Fjöl-
brautaskóla Suðurlands að
morgni, síðan heim í Þorláks-
höfn og á sveitaball í Njálsbúð um
kvöldið. Að sjálfsögðu var tekinn
hamborgari með öllu og rauð-
káli í pulsuvagninum á Selfossi í
heimleiðinni og farið í gott partí í
Hveragerði á eftir,“ segir Jónas og
hlær dátt að minningunni.
Honum finnst erfitt að setja
Sunnlendinga undir sama hatt.
„Suðurlandið er svo víðfeðmt og
mismunandi menning á hverjum
stað. Þannig er stór munur á Selfossi
og Eyrarbakka þótt stutt sé þar
á milli og mikill munur á Þorláks-
höfn og Hveragerði, eins og Hellu
og Stokkseyri. Eystri bæirnir eru í
meiri tengslum við landbúnaðinn en
bæirnir við ströndina eru í tengslum
við sjávarútveginn. Hver og einn
staður hefur sitt sérkenni og það
finnur maður vel á menningu bæjar-
ins,“ segir Jónas, sem í dag unir hag
sínum vel í höfuðstaðnum.
„Ég elska borgir jafn mikið og ég
elska að vera í litlum þorpum með
góðu mannlífi. Í miðbæ Reykjavíkur
eru enn leifar af gömlu þorpi og
mikið mannlíf og þar finnst mér
ótrúlega gott að vera,“ segir Jónas
sem þó fer oft og iðulega heim í
Þorlákshöfn.
„Þar búa foreldrar mínir enn og
margir vina minna. Eftir því sem ég
eldist finn ég meira og meira hversu
Þorlákshöfn togar sterkt í mig og
þangað sæki ég innblástur fyrir
tónlist mína og margt fleira. Þorláks-
höfn stendur á mörkum mikillar
sandfjöru og bjargs sem Atlants-
hafið lemur með sínu þunga fargi.
Þar er samankomin gríðarleg orka
og þar er engu líkt að vera.“
■ thordis@365.is
ELSKAR LÍTIL ÞORP
SUNNLENDINGUR Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson ætlar að gera víðreist austur á heimaslóð-
ir á morgun þegar hann stígur á svið með nýrri hljómsveit í Tryggvaskála á Selfossi.
DRANGAR
„Þetta verða notalegir
sunnudagstónleikar,“
segir Jónas um tón-
leikana í Tryggvaskála.
Hann segir ávallt sérstakt
að spila á Selfossi og
hlakkar mikið til. Drangar
spila líka í Máli og menn-
ingu klukkan 15 í dag og
hálffimm í Slippnum. Frá
vinstri: Mugison, Ómar
og Jónas.
MYND/VALLI
TÓNLEIKAR DRANGA
í Tryggvaskála hefj-
ast klukkan 21 ann-
að kvöld.
Tónleikar Dranga í Tryggvaskála eru
hluti af viðamikilli menningarupplifun á
Safnahelgi á Suðurlandi nú um helgina.
Dagskráin er í alla staði heillandi og
snýr að mat og menningu úr héraði, allt
austur að Höfn í Hornafirði. Hvar sem
drepið er niður fæti tekur spennandi
dagskrá á móti gestum í hverjum bæ frá
morgni til kvölds.
Svo fátt sé upptalið má nefna tónlist
Marlene Dietrich í Eyjum, einleikinn
Eldklerkinn á Kirkjubæjarklaustri, söng
og upplestur Þórðar Tómassonar í
Skógum, saumamaraþon í Njálurefl-
inum á Hvolsvelli og gómsætar matar-
uppskriftir í heitu pottum Sundhallar
Selfoss. Í Flóanum verður gengið að
Flóðgáttinni með Guðna Ágústssyni,
opið verður í Draugasafninu á Stokks-
eyri, í Vík verður fýlaveisla og Horna-
fjarðarsöfnin heimsótt. Sjá dagskrá á
www.sunnanmenning.is
SAFNAHELGI
Á SUÐURLANDI
Ævintýri og gestrisni Sunn-
lendinga bíða ferðalanga um
Suðurland alla helgina.
KK OG MAGGI Söngelskar sálir verða ekki sviknar
af ljúfri kvöldstund í félagsskap KK og Magga Eiríks
í Þingborg í kvöld. MYND/VILHELM
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is