Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 63
| ATVINNA |
Leikskólakennarar
Verkefnastjórar með umsjón þróunarverkefna óskast til starfa við leikskólann Aðalþing. Stöðu
leikskólakennara með umsjón þróunarverkefna svipar til stöðu verkefnastjóra í kjarasamningi
leikskólakennara við sveitarfélögin en staðan er þó ekki tímabundin. Verkefnastjóri starfar á deild með
a.m.k. þremur öðrum leikskólakennurum og nýtur launakjara sem svipar til hefðbundinna kjara
deildarstjóra.
Leikskólinn Aðalþing starfar í anda hugmyndafræði Loris Malaguzzi sem gjarnan
er kennd við bæinn Reggio Emilia. Þangað sækjum við hugmyndir um skapandi starf,
uppeldisfræðilegar skráningar og lýðræðisleg vinnubrögð.
Er ekki kominn tími til að komast út úr þessu endalausa álagi
og fara að vinna með öðrum leikskólakennurum?
í verkefnastjórastöður óskast til starfa í Aðalþingi
LEIKSKÓLINN
AÐALÞING
Ef að kjör, starfsandi
og fagmennska skipta máli....
...og ef þú vilt
vinna með öðrum kennurum.
Umsóknarfrestur er eftir samkomulagi. Hafðu samband við Hörð skólastjóra ef þig
langar að forvitnast um starfsmöguleika í Aðalþingi. Síminn er 7703553 og netfangið
er hordur@adalthing.is
Leikskólakennarar
Við bjóðum grunnlaun sem jafnast á við kjör deildarstjóra hjá sveitarfélögunum. Starfið er því tilvalið fyrir
leikskólakennara sem hyggjast einbeita sér að sérkennslu í framtíðinni án þess að lækka í launum.
Teymisvinnan veitir stuðning og öryggi, er hvetjandi og til þess fallin að gera faglegar aðstæður betri.
Fyrir þá sem eru nýir í sérkennslu er teymið mikilvægt, fyrir þá sem hafa sérhæft sig er teymið
grundvallaratriði.
Viðbótarkennsla:
Við tölum reyndar ekki um sérkennslu í Aðalþingi. Okkur finnst orðið vera
aðgreinandi = flestir eru saman og sumir eru sér. Við störfum í anda hugmyndafræði
um skóla fyrir alla og viljum sjá einstaklinginn sem barn sem hefur fyrst og fremst
þarfir eins og önnur börn en kann svo að hafa einhverjar þarfir til viðbótar. Við tölum
því um viðbótarkennslu í Aðalþingi, ekki sérkennslu og sérkennslubörn því við viljum
ekki sjá greininguna koma labbandi þegar barnið kemur til okkar.
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember eða eftir samkomulagi. Hafðu samband við
Hörð skólastjóra ef þig langar að forvitnast um starfsmöguleika í Aðalþingi. Síminn er
7703553 og netfangið er hordur@adalthing.is
Við leitum að leikskólakennara sem vill vinna með öðrum leikskóla-
kennurum í teymi um það sem lög og reglugerð kalla sérkennslu
LEIKSKÓLINN
AÐALÞING
Ef að kjör, starfsandi
og fagmennska skipta máli....
...og ef þú vilt
vinna með öðrum kennurum.
Við óskum eftir starfsmanni
í stöðu verslunarstjóra
í Deres Kringlunni
Hæfniskröfur:
- Reynsla af verslunarstörfum
- Áhugi á tísku
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Rík þjónustulund
- Frumkvæði og metnaður í starfi
- Skipulagshæfni
- Góð tölvukunnátta
- Jákvætt hugafar
Áhugasamir sendi umsókn ásamt
ferilskrá á helga@ntc.is
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember
VERSLUNARSTJÓRI
LAUGARDAGUR 2. nóvember 2013 13