Fréttablaðið - 02.11.2013, Side 76
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 48
Hann er mættur aftur til leiks, eini maðurinn sem hefur verið valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar frá árinu 2008 og heitir ekki
LeBron James. Þangað til nýlega
hafði Derrick Rose ekki spilað
körfubolta síðan hann sleit kross-
band í hné í byrjun úrslitakeppn-
innar 2011, þá nýbúinn að hljóta þá
eftirsóttu upphefð að vera valinn
verðmætasti leikmaður deildar-
innar.
Sú leiktíð fór því út um þúfur hjá
Bulls en af nýafstöðnu undirbún-
ingstímabili að dæma hefur Rose
ekki gleymt miklu síðan – jafnvel
lært eitt og annað nýtt. Hann hefur
farið á kostum, og þótt honum hafi
fatast flugið í fyrsta leik tímabils-
ins gegn meisturum Miami Heat
á þriðjudag og tapað stórt þá hafa
sumir spekúlantar, til dæmis Bill
Simmons, engu að síður spáð því að
Chicago Bulls, með Rose í broddi
fylkingar, muni verða sterkara lið
en Miami í ár – að minnsta kosti
fram að úrslitakeppni í vor.
Það verður enginn hægðarleikur
fyrir nokkurt lið að skáka LeBron
James og félögum í Miami í ár,
frekar en undanfarin tvö. Liðið
hefur styrkt sig og því er spáð enn
einum meistaratitlinum af öllum
veðbönkum. Það kom því nokkuð á
óvart (og „nokkuð“ er hér nokkuð
vægt ákvæðisorð) þegar Miami-
liðar tóku upp á því að tapa fyrir
Philadelphia 76‘ers á miðvikudags-
kvöld. Furðan stafaði ekki hvað síst
af því að engu liði hafði verið spáð
verra gengi í deildinni í vetur en
einmitt Philadelphiu, sem losaði sig
við sterka menn í sumar og fékk
lítið í staðinn.
Stórveldi í lægð
Ekki er búist við að tvö helstu veldi
NBA-sögunnar, Boston Celtics og
Los Angeles Lakers, verði til stór-
ræðanna í vetur. Celtics er höfuð-
laus her – hefur misst Paul Pierce
og Kevin Garnett, auk þess sem
leikstjórnandinn snjalli, Rajon
Rondo, mun sitja meiddur á hliðar-
línunni fyrstu vikurnar eða mán-
uðina.
Lakers er í svipuðu tjóni, með
Kobe Bryant borgaralega klæddan
að vinna sig upp úr meiðslum og
búið að senda Dwight Howard til
Houston. Steve Nash yngist ekki
og fæstir eiga von á að Lakers nái í
úrslitakeppnina þennan vetur.
Það er reyndar til mikils að
vinna fyrir þau lið sem standa sig
hvað verst á leiktíðinni sem nú er
nýhafin. Nýliðavalið næsta sumar
stefnir í að verða það kræsileg-
asta í áraraðir, og jafnvel talið að
þar verði fimm, sex – ef ekki fleiri
– leikmenn sem geti haft afger-
andi áhrif til langtíma á liðin sem
hreppa fyrstu valréttina.
Allra stærsta hnossið er Kanada-
maðurinn Andrew Wiggins, sem
sagður er mesta efni sem sést hefur
síðan kóngurinn LeBron James var
valinn árið 2003.
Ef Lakers hefur í hyggju að
blanda sér í slaginn um feitustu bit-
ana á nýliðamarkaðnum á næsta ári
með því að standa sig herfilega þá
byrjaði liðið reyndar ekki nógu vel
á þeirri vegferð, því öllum að óvör-
um lagði það nágranna sína í Los
Angeles Clippers að velli í fyrsta
leik á þriðjudag.
Fyrirfram höfðu menn spáð því
að Clippers yrðu meðal bestu liða
deildarinnar, enda eru þeir komnir
með almennilegan þjálfara, Doc
Rivers frá Boston, í stað Vinny Del
Negro, sem margir töldu örgustu
liðleskju, og hafa auk þess bætt
leikmannahópinn.
Galopin vesturdeild
Lakers var kippt hressilega niður á
jörðina eftir sigurinn gegn Clippers
með rassskellingu af hendi Golden
State Warriors, öðru liði sem menn
spá miklum frama í Vesturdeild-
inni þetta árið.
Warriors komust í aðra umferð
úrslitakeppninnar í fyrra með sjóð-
heitan Stephen Curry fremstan í
flokki og þeir verða varla verri
eftir að hafa nælt sér í Andre
Iguodala, landsliðsmann Banda-
ríkjanna, frá Denver Nuggets í
sumar.
Önnur lið sem venju sam-
kvæmt munu blanda sér í topp-
baráttuna vestan megin þetta
árið eru mennirnir sem aldur-
inn virðist ekki bíta á í San
Antonio Spurs og orkuboltarn-
ir í Oklahoma City Thunder,
sem misstu reyndar sjötta
mann liðsins og þriðja stiga-
hæsta leikmann, Kevin
Martin, til Minnesota
Timb erwolves án þess að
fá neitt í staðinn. Það gæti
reynst þeim dýrt.
Svo má ekki gleyma
Houston Rockets. Þeir
sömdu við miðherjann
Dwight Howard í sumar
og hann hóf leiktíðina á
að rífa niður hvorki fleiri
né færri en 26 fráköst
á móti Charlotte Bob-
cats á miðvikudag. Með
hann, James Harden,
Omer Asik, Jeremy Lin,
Chandl er Parsons og fleiri
innanborðs eru Houston-
menn til alls líklegir.
Memphis Grizzlies og Denver
Nuggets eru lið sem menn hafa
áður farið flatt á að vanmeta og
brenna sig ekki á því aftur.
Væringar í austrinu
Austan megin spá menn sem áður
segir Miami og Chicago góðu gengi,
og auk þeirra Indiana Pacers, sem
hafa verið á miklu flugi síðustu ár,
og Brooklyn Nets, sem nánar er
fjallað um hér til hliðar. Svo er víst
ekki hægt að afskrifa New York-
liðið þótt það hafi, ef eitthvað er,
veikst frá fyrra ári.
Þá verður spennandi að fylgjast
með því hvernig Cleveland Caval-
iers pluma sig með stappfullt lið
af ungum mönnum – Kyrie Irving,
Dion Waiters, Tristan Thompson
og fyrsta valréttinn í nýliðaval-
inu þetta árið, Anthony Bennett, að
ógleymdum miðherjanum sterka
Andrew Bynum, sem er reyndar
aldrei hægt að treysta á að verði
heill heilsu mikið meira en hálfan
leik.
Detroit Pistons teflir einnig
fram breyttu liði og hefur bætt
við sig framherjan-
um Josh Smith frá
Atlanta Hawks og
Brandon Jenn-
ings frá Mil-
waukee Bucks og
þyir eiga góða
möguleika á að
komast í úrslita-
keppnina.
Stígur
Helgason
stigur@frettabladid.is
HANN ER SNÚINN AFTUR
Búið er að blása til leiks í NBA-deildinni í körfubolta. LeBron James og félagar í Miami Heat þurfa
nú að mæta Derrick Rose aft ur– hann hefur ekki spilað í eitt og hálft ár en virðist í feiknagóðu
formi. Nokkur óvænt úrslit hafa þó litið dagsins ljós í blábyrjun leiktíðar.
Patrick Beverly 25 ára leikstjórnandi
HOUSTON ROCKETS
Beverly hefur leikið utan Banda-
ríkjanna, í Úkraínu, Grikklandi
og Rússlandi, frá því að Lakers
valdi hann númer 42 í nýliða-
valinu 2008. Nú er hann búinn
að hirða byrjunarliðssætið hjá
Rockets af engum öðrum en Jeremy Lin.
Eric Bledsoe 23 ára leikstjórnandi
PHOENIX SUNS
Bledsoe náði aldrei að blómstra
hjá Clippers en verður í
töluvert stærra hlutverki hjá
slöku liði Phoenix Suns í vetur
og er til alls líklegur.
Jimmy Butler 24 ára skotbakvörður
CHICAGO BULLS
Butler, sem varð heimilislaus
þrettán ára gamall, sýndi hvað
í honum bjó á síðari hluta
síðustu leiktíðar, þegar hann
spilaði stórkostlegan varnar-
leik og hóf að skora þriggja stiga
körfur af miklum móð. Verður lykilmaður í
ógnarsterku liði Bulls í vetur.
Michael Carter-Williams
22 ára leikstjórnandi
PHILADELPHIA 76‘ERS
Carter-Williams er hávaxinn og
slánalegur leikstjórnandi sem
hefur ákaflega næmt auga fyrir
því hvert best er að senda boltann. Hann var
valinn ellefti í nýliðavalinu í sumar og hóf NBA-
ferilinn í vikunni með ótrúlegum leik– skoraði
22 stig, gaf 12 stoðsendingar, tók sjö fráköst og
stal níu boltum.
Andre Drummond 20 ára miðherji
DETROIT PISTONS
Hinn tröllslegi Drummond var
valinn níundi í nýliðavalinu í
fyrra og hefur síðan vaxið jafnt
og þétt. Menn gera ráð fyrir því
að hann verði meðal frákasta-
hæstu leikmanna deildarinnar
þetta árið.
Reggie Jackson 23 ára leikstjórnandi
OKLAHOMA CITY THUNDER
Reggie Jackson hefur verið
frekar aftarlega í goggunarröð-
inni hjá Oklahoma síðan hann
var valinn 24. í nýliðavalinu
2011, en það mun breytast í ár
með brotthvarfi Kevins Martin og
meiðslum Russells Westbrook. Hann hefur sýnt
í undirbúningsleikjum að hann getur staðið
undir ábyrgðinni.
Victor Oladipo 21 árs skotbakvörður
ORLANDO MAGIC
Oladipo var valinn annar í
nýliðavalinu í sumar og gera
má ráð fyrir að hann fái mikið
að spila þennan fyrsta vetur
sinn í deildinni. Hann er frábær
varnarmaður og lunkinn skorari.
Kelly Olynyk 22 ára miðherji
BOSTON CELTICS
Þessi stóri Kanadamaður, sem
Boston valdi 13. í nýliðavalinu
í sumar, sýndi í æfingaleikjum í
sumar að hann getur vel spilað
körfubolta. Hann ætti að fá nóg
að gera í þunnskipuðu liði Boston Celtics.
Klay Thompson 23 ára skotbakvörður
GOLDEN STATE WARRIORS
Thompson er á meðal bestu
þriggja stiga skyttna deildar-
innar. Hann spilaði mikið á
síðustu leiktíð og stóð sig
vel. Hóf þessa með því að slá
persónulegt stigamet á móti
Lakers, skoraði 38 stig og hitti úr 15 af 19
skotum sínum.
Tristan Thompson 22 ára kraftframherji
CLEVELAND CAVALIERS
Menn hafa beðið eftir að
Tristan Thompson springi út
og réttlæti að Cleveland hafi
valið hann fjórða í nýliðavalinu
2011. Upphafið á þessu tímabili
bendir til þess að kannski ætli
hann loksins að láta verða af því núna.
Jonas Valanciunas 21 árs miðherji
TORONTO RAPTORS
Þessi stóri og stæðilegi Lithái
hefur ekki staðið undir
væntingum enn sem komið er,
en bundnar eru vonir við að
það breytist loksins í ár. Hann
hefur verið sprækur á undirbún-
ingstímabilinu.
Fá lið leggja meira undir á komandi leiktíð en Brooklyn Nets. Liðið
er með nýjan þjálfara – goðsögnina Jason Kidd, sem lagði skóna á
hilluna í vor eftir magnaðan feril og síðbúinn meistaratitil með Dallas
Mavericks árið 2011.
Kidd er reyndar algjörlega óskrifað blað í þjálfunarfræðunum, en
sér til fulltingis hefur hann fengið mikla reynslubolta í liðið; þrefalda
sendingu frá Boston Celtics sem allir hafa unnið meistaratitil á um-
liðnum árum. Þetta eru þeir Kevin Garnett, Paul Pierce og Jason Terry,
sem auk Andrei Kirilenko munu styrkja Brooklyn-liðið til mikilla muna.
Byrjunarliðið verður ógnarsterkt; skipað þeim Deron Williams, Joe
Johnson, Pierce, Garnett og Brook Lopez, og bekkurinn er ekki ónýtur
heldur, með Terry, Kirilenko, Mirza Teletovic, Andray Blatche, Reggie
Evans og Shaun Livingston í aðalhlutverkum.
Þessir menn eru fæstir nein unglömb og það er ljóst að í Brooklyn
er tjaldað til einnar nætur– eða einnar leiktíðar– með þennan mann-
skap. Þar á bæ ætla menn einfaldlega að gera atlögu að titlinum. Allt
annað verður álitið ósigur.
ALLT UNDIR HJÁ ENDURBÆTTU
BROOKLYN-LIÐI
NÝJU
MENNIRNIR
Kevin Garnett
hefur sagt að
nú sé stefnt
á titil. Það er
enda leynt og
ljóst markmið
Brooklyn-búa.
Það er því
mikil ábyrgð á
herðum Jasons
Kidd.
NORDICPHOTOS/AFP
FYLGIST MEÐ ÞESSUM
➜ Hann er
mættur aftur
til leiks, eini
maðurinn sem
hefur verið val-
inn besti leik-
maður NBA-
deildarinnar
frá árinu 2008
og heitir ekki
LeBron James.