Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 102
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 74
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER
TÓNLIST ★★★★★
Jagwar Ma
Iceland Airwaves-hátíðin
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
Ástralska hljómsveitin Jagwar Ma
er án efa ein sú áhugaverðasta sem
hefur komið fram á árinu og er plata
hennar, Howlin, til marks um það.
Það voru því örugglega margir sem
biðu eftir þessum tónleikum sveit-
arinnar með mikilli eftirvæntingu.
Tónlist Jagwar Ma hefur gríðar-
sterkar vísanir í Madchester-senuna
svokölluðu og koma hljómsveitir á
borð við Happy Mondays strax upp
í hugann. Þeir eru þó langt frá því
að vera einhvers konar ábreiðuband
og eru algjörlega með sinn eigin stíl.
Um leið og fyrstu tónar komu
af sviðinu var ljóst að um góða
tónleika yrði að ræða. Meðlimir
Jagwar Ma, sem eru þrír, voru afar
líflegir og virtust skemmta sér vel.
Það sama má segja um þá áhorfend-
ur sem voru á staðnum, en þeim
hafði fækkað talsvert áður en að
yfir lauk og var salurinn einungis
hálffullur þegar hljómsveitin steig
af sviðinu.
Segja má að allt við tónleikana
hafi verið nánast fullkomið, hvort
sem það snýr að tónlistinni sjálfri,
flutningnum, hljóði eða ljósum.
Vissulega hefði þó verið gaman að
sjá hljómsveit á borð við Jagwar
Ma í ögn minni sal sem hefði
mögulega hentað henni betur.
Þeir áhorfendur sem horfðu á tón-
leikana hafa þó eflaust áttað sig
á því að um alvöru Iceland Air-
waves-viðburð var að ræða og það
verður afar erfitt að toppa þessa
tónleika. Orri Freyr Rúnarsson
NIÐURSTAÐA: Stórkostlegir
tónleikar þar sem allt gekk upp.
Allt að því fullkomið
TÓNLIST ★★★★★
Yo La Tengo
Iceland Airwaves-hátíðin
HARPA-SILFURBERG
Það voru margir búnir að bíða
lengi eftir að sjá bandarísku
hljómsveitina Yo La Tengo en
hún hefur verið starfandi frá
árinu 1984. Sveitin lék á Iceland
Air waves í Hörpu á fimmtudags-
kvöld og voru þetta fyrstu tón-
leikar hennar hér á landi.
Yo La Tengo á sér marga aðdá-
endur hér á landi. Sveitin gaf
nýverið út plötuna Fade og er að
fylgja henni eftir á tónleikaferða-
lagi um þessar mundir.
Tónleikarnir byrjuðu vel og
troðfullt var út úr dyrum þegar
sveitin hóf leik. Yo La Tengo skipa
hjónin Ira Kaplan og Georgia
Hubley sem stofnuðu sveitina á
sínum tíma og James McNew sem
gekk til liðs við hana árið 1989.
McNew leikur aðallega á bassa en
greip líka í gítarinn. Hann gerði
sér lítið fyrir og sleit tvo strengi
á miðjum tónleikunum, fipaðist þó
ekkert og kláraði lagið.
Hátindur tónleikanna var þegar
hljómsveitin lék lagið Ohm af
nýjustu plötu sinni. Þægilegt og
skemmtilegt lag. Að því lagi loknu
sigu tónleikarnir heldur niður á
við. Langir gítarkaflar reyndu
á þolinmæði tónleikagesta og
heldur fór að fækka í salnum sem
áður var troðfullur. Jón Júlíus Karlsson
NIÐURSTAÐA: Fín tónlist en óþarf-
lega langir gítardjammkaflar báru
athygli tónleikagesta ofurliði.
Of mikið tangódjamm
YO LA TENGO Bandaríska hljómsveitin
reyndi á þolinmæði tónleikagesta.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
JAGWAR MA Hljómsveitin Jagwar Ma stóð sig frábærlega í Listasafni Reykjavíkur.
NORDICPHOTOS⁄GETTY
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á
Kanaríeyjum þann 3. desember í 16 nætur
á frábæru stökktutilboði.
Þú bókar flugsæti og 4 dögum fyrir brottför látum við þig/ykkur
vita á hvaða gististað dvalið er á. Ekki missa af þessu
einstaka tilboði. Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta í boði.
Verð getur hækkað án fyrirvara.
Stökktu tilboð
Verð frá kr. 99.900
Netverð á mann m.v. 2 - 4 fullorðna í íbúð/studio/herbergi í 16
nætur. Aukagjald á einbýli 39.000 kr.
Stökktu tilboð - með allt innifalið!
Verð frá kr. 179.900
Netverð á mann m.v. 2 í tvíbýli í 16 nætur.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 80.000.
Frá kr. 99.900
Stökktu
til Kanarí
3. des í 16 nætur
HYDROXYCUT
WILDBERRY 21 BRÉF
KR
PK
ÁÐUR 5.990 KR
www.netto.is
| Mjódd · Salavegur · Grandi· Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær ·
Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |
Kræsingar & kostakjör
TÓNLIST ★★★★★
Eldar
Iceland Airwaves-hátíðin
IÐNÓ
Hljómsveitin Eldar úr Keflavík
spilaði fyrir þægilegan fjölda tón-
leikagesta í Iðnó í gærkvöldi.
Tónlistin var í rólegri kantinum
en stórskemmtileg. Söngur Valdi-
mars Guðmundssonar var í einu
orði sagt: Frábær. Hann var einnig
skemmtilega vandræðalegur og
feiminn á milli laga. Áhorfendur
hlógu að mjög svo bókstaflegum
þýðingum lagaheita Elda yfir á
ensku. Þegar Valdimar var að
kynna síðasta lagið fór íslenskur
maður upp á svið og bað meðlimi
hljómsveitarinnar um að gefa sér
eiginhandaráritun. Valdimar benti
honum á að spyrja þau frekar að
tónleikunum loknum.
Eldar er greinilega mönnuð
góðum tónlistarmönnum og heppn-
uðust tónleikarnir mjög vel. Ekki
var vart við eitt óánægt andlit á
meðal gesta. Samúel Karl Ólason
NIÐURSTAÐA: Hinir fínustu tón-
leikar. Að mestu rólegar melódíur og
raddir söngkonunnar og Valdimars
virkuðu vel saman.
Eldar loguðu
á sviðinu
GAMAN
Gestir á
Iceland
Airwaves-
hátíðinni,
þar á meðal
Danni í Maus,
skemmtu
sér vel á
tónleikunum
á fimmtu-
dagskvöld
eins og sjá
má.
AIRWAVES 2013
Hljómsveitin vinsæla
Hjaltalín spilaði við góðar
undirtektir á fimmtu-
dagskvöldið og sýndi
söngvarinn Högni Egils-
son eins og oft áður góð
tilþrif á sviðinu.