Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 104

Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 104
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 76 Autumn Skies Snorri Helgason RECORD RECORDS Autumn Skies er þriðja plata Snorra Helgasonar og jafnframt sú fyrsta sem hann gerir með hljómsveitinni Snorri Helgason. Auk forsprakkans skipa hana Sigurlaug Gísladóttir (Mr. Silla), Guðmundur Óskar Guð- mundsson og Magnús Tryggvason Eliassen og færa þau aukna og kær- komna fjölbreytni inn í tónlistina. Snorri heldur sig við árstíð- irnar því síðasta plata hans hét Winter Sun og kom út fyrir tveimur árum. Þessi fyrrverandi liðsmaður Sprengjuhallarinnar er sérfræð- ingur í að semja melódískt þjóð- lagapopp þar sem kassagítarinn er í fyrirrúmi ásamt angurværri rödd- inni og er þessi nýja plata þar engin undantekning. Besta lagið er Summer Is Almost Gone með fínum texta um ástarþrá þar sem Sigurður Guðmundsson á góða innkomu á píanóið. Einnig er hið fallega upphafslag Autumn Skies II vel samið, rétt eins og hið hlýlega Calling sem fjallar um mann sem leitar að kærustu til að kúra hjá þegar hann vaknar á morgnana. Freyr Bjarnason NIÐURSTAÐA: Fín þriðja plata Snorra Helgasonar þar sem ást og ástarþrá eru yrkisefnin. Ástarþrá að hausti til Hljómsveitin Kings of Leon legg- ur af stað í tónleikaferð um Banda- ríkin hinn 5. febrúar næst komandi og hefst ferðalagið í Atlanta. Sveitin er að fylgja eftir nýjustu plötu sinni sem heitir Mechani- cal Bull en hún kom út fyrir skömmu. Trommuleikari sveitar- innar, Nathan Followill, sagði í samtali við Rolling Stone- tímaritið að hljómsveitin hefði aldrei hljómað betur en núna og sagði meðlimi hlakka mikið til að byrja að spila aftur saman. Hljómsveitin hefur í nokkur ár verið ein sú vinsælasta í heiminum en platan Only By The Night kom sveitinni heldur betur á kortið árið 2008 með lögum eins og Sex On Fire og Use Somebody og seldist í rúmum sex milljónum eintaka í heiminum. Kóngarnir í ferðlag Rokkararnir í Kings of Leon eru á leið í tónleikaferð. SNÝR AFTUR Kings of Leon snýr aftur og hefur tónleikaferðalag í febrúar. NORDICPHOTOS/GETTY „Það verður mjög mikið um að vera, við ætlum vekja upp tónlistar áhuga fólksins í bænum,“ segir Bjarmi Skarphéðinsson. Hann er annar af skipu- leggjendum Tónlistarvikunnar sem fram fer á Selfossi í vikunni en mikil og skemmtileg dagskrá einkennir hana. „Við á Selfossi ættleiðum tón- listarmanninn Eyþór Inga Gunn- laugsson þessa viku og mun hann spila, fræða og tjá hug sinn til tónlistar á ýmsum samkomum,“ útskýrir Bjarmi. Eyþór Ingi kemur fram í öllum leikskólum og grunnskólum í sveitarfélaginu Árborg, þar sem hann mun spila og eiga skemmtilega stund með krökkunum og fólkinu. „Þetta leggst mjög vel í mig og verður forvitnilegt og skemmti- legt,“ segir Eyþór Ingi um tónlistar vikuna. Ásamt því að skemmta og spjalla við krakkana í skólunum heldur hann fyrirlestur í félags- miðstöðinni Zelsíuz. „Ég ætla bara að spjalla við fólkið, eiga góða stund með þeim og skapa umræðu um tónlist og gildi hennar,“ bætir Eyþór Ingi. Þá mun söngvarinn dæma bæði í söngvakeppni Fjölbrautaskóla Suðurlands og söngvakeppni félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuz, sem báðar fara fram í vikunni. Selfoss hefur getið sér gott orð sem einn fremsti tónlistarbær Íslands, en er þó í mikilli sam- keppni við Keflavík. „Það er blóm- legt tónlistarlíf hérna á Selfossi og mörg þekkt nöfn eiga rætur að rekja hingað. Við viljum endilega vekja enn meiri athygli á tónlist- inni með þessari Tónlistarviku,“ bætir Bjarmi við. Margar þekktar sveitir á borð við Skítamóral, Ingó og Veður- guðina og Mána eru allar frá kaupstaðnum. Allt frá poppi yfir í rokk, og allt þar á milli. Tónlistarvikunni lýkur með stórtónleikum í íþróttahúsinu IÐU, þar sem Eyþór Ingi og hljómsveit hans, Atómskáldin, koma fram, ásamt kór FSU og fleiri sveit- um frá Selfossi. „Það verður öllu tjaldað til, þarna verð- ur ljósa- og hljóð- búnaður á heims- mælikvarða,“ bætir Bjarmi við að lokum. gunnarleo@fretta- bladid.is Eyþór Ingi ættleiddur Eyþór Ingi Gunnlaugsson verður í stóru hlutverki á Tónlistarviku á Selfossi. SKIPULEGGJANDI Bjarmi Skarp- héðinsson, annar skipuleggjenda Tónlistarvikunnar. MYND/EINKASAFN STÓRTÓNLEIKAR Á SELFOSSI Eyþór Ingi og Atómskáldin slá botn í Tónlistarvikuna á föstudagskvöldið á Selfossi. MYND/JESSICA GOW TÓNLISTARBÆRINN SELFOSS HEFUR GETIÐ AF SÉR FJÖLDA ÞEKKTRA HLJÓMSVEITA Skítamórall Stofnuð árið 1989. Hljómsveitin hefur verið ein allra vinsæl- asta popphljómsveit íslenskrar tónlistar- sögu og gaf okkur smelli á borð við Nákvæmlega, Myndir, Fljúgðu áfram og Farin. Ingó og veðurguðirnir Stofnuð árið 2003. Hljómsveitin hefur undanfarin ár verið ákaflega vinsæl og hefur gefið út smelli á borð við Bahama, Gestalistinn, Vinurinn og Argentína. Mánar frá Selfossi Stofnuð 1967. Hljómsveitin var vinsæl á árunum 1967 til 1975 en sveitin sendi frá sér lög eins og Leikur að vonum Á kránni, Frelsi og Útlegð. Benny Crespo‘s Gang Stofnuð árið 2003. Hljómsveitin hefur undanfarin ár verið með betri og virtari rokkhljómsveitum landsins en þekktustu lög sveitarinnar eru Next Weekend, Johnny‘s Got a Baby, Night Time og Shine.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.