Fréttablaðið - 02.11.2013, Síða 112
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 84
LAUGARDAGUR
12:45 Newcastle - Chelsea S2 Sport 2
12:50 Abu Dhabi - Tímataka S2 Sport
14:35 Laugardagsmörkin S2 Sport 2
15:00 Fulham - Man. Utd S2 Sport 2
15:00 Man. City - Norwich S2 Sport 3
15:00 Hull - Sunderland S2 Sport 4
15:00 West Ham - A. Villa S2 Sport 5
15:00 Stoke - Southampton S2 Sport 6
15:00 WBA - Crystal Palace S2 Sport
17:00 Laugardagsmörkin S2 Sport 2
17:30 Arsenal - Liverpool S2 Sport 2
19:00 Vallecano - Real Madrid S2 Sport
02:00 Box(Golovkin-Stevens) S2 Sport
SUNNUDAGUR
12:30 Abu Dhabi kappakstur S2 Sport
13:30 Everton - Tottenham S2 Sport 2
16:00 Cardiff - Swansea S2 Sport 2
16:00 Atl. Madrid - Bilbao S2 Sport
Það verða fimmtán beinar útsendingar á sport-
stöðvum Stöðvar 2 um helgina, frá ensku og
spænsku deildinni, Formúlu eitt og boxi.
FÓTBOLTI Þegar eigandi enska
úrvalsdeildarfélagsins Southamp-
ton, Nicola Cortese, rak stjórann
Nigel Adkins í janúar héldu marg-
ir að hann væri genginn af göfl-
unum. Adkins hafði farið með
Dýrlingana upp um tvær deildir
á tveimur árum og það sem meira
var, liðið var í þægilegri fjarlægð
frá fallbaráttunni.
Í stað Englendingsins 48 ára var
41 árs gamall Argentínu maður,
Mauricio Pochettino, fenginn í
stjórahlutverkið. Pochettino hafði
gert þokkalega hluti með Espanyol
en látinn taka poka sinn þegar liðið
var í langneðsta sæti deildarinnar
eftir þrettán leiki. Þess utan var
enskukunnátta hans lítil og þekk-
ing á enskri knattspyrnu lítil.
Stór nöfn mættu á svæðið
Pressa á Pochettino var mikil
en hann stóðst hana. Hann gerði
engin kraftaverk með Southamp-
ton út leiktíðina. Skilaði liðinu í 14.
sæti sem vel má vera að Adkins
hefði einnig gert. Sumarið nýtti
fyrrverandi miðvörður argen-
tínska landsliðsins hins vegar vel.
Cortese hafði sagt við ráðn-
inguna á Pochettino að nú ætti að
taka félagið á næsta stig. Hann
væri vel til þess fallinn að telja
sterka leikmenn á að ganga til liðs
við Southampton sem er nákvæm-
lega það sem gerðist. Dejan
Lovren, Victor Wanyama og Pablo
Osvaldo voru allt í einu mættir á
St. Mary‘s og hjólin fóru að snúast
líkt og nýsmurð væru.
Að loknum níu umferðum í
úrvalsdeildinni situr Southamp-
ton í 5. sæti deildarinnar. Liðið
er þremur stigum á eftir toppliði
Arsenal og fyrir ofan bæði stór-
liðin frá Manchester. Hvernig í
ósköpunum má það vera? Stutta
svarið er gríðarlega agaður
varnar leikur alls liðsins sem
Pochettino mun eiga mikinn
heiður af. Þá virðast markvarðar-
vandræði liðsins úr sögunni
með tilkomu Arturs Boruc sem
Pochettino hefur sýnt mikið traust.
„Rickie Lambert er okkar
fremsta varnarlína þegar við erum
ekki með boltann. Við verjumst
allir á sama tíma,“ segir Pochett-
ino við breska fjölmiðla.
„Við viljum halda boltanum og
þegar við erum án hans vinnum
við hörðum höndum, allir sem
einn, að ná honum aftur.
Aðeins Roma hefur gert betur
Sigurinn á Fulham á St. Mary‘s um
síðustu helgi var fjórða skiptið í
röð sem liðið hélt hreinu á heima-
velli. Lundúnaliðið átti tvö skot í
öllum leiknum og hvorugt hitti
markið. Áður hafði liðið aðeins
haldið hreinu þrisvar á heimavelli
í 24 leikjum. Liðið hefur fengið
á sig fæst mörk allra í deildinni,
aðeins þrjú. Ef horft er til stóru
deildanna í álfunni er aðeins
Roma á Ítalíu sem hefur fengið á
sig færri mörk en Dýrlingarnir af
suðurströndinni.
Króatíski miðvörðurinn Lovren,
sem er vanur Meistaradeildar-
fótbolta með Lyon og baráttu um
titla í Frakklandi, er án nokkurs
vafa ein bestu kaup sumarsins.
„Ég átti ekki von á því að læra
að spila svona,“ segir landsliðs-
maður Króata. „Við tökum áhættu
en við uppskerum vel.“
Keníabróðir á leiðinni?
Eins og svo oft áður er það sóknar-
maður liðsins sem fær mesta
athygli. Rickie Lambert er í lykil-
hlutverki í sóknarleiknum og
frammistaðan skilaði honum sæti
í landsliði Englands á dögunum.
Framherjinn 31 árs gamli er þó
aðeins einn fjölmargra sem hafa
blómstrað. Samvinna Frakkans
Morgans Schneiderlin og Victors
Wanyama í stöðu afturliggjandi
miðjumanna gerir það að verkum
að stundum virðist búið að múra
fyrir vítateig Southampton.
Reiknað var með því að Kenía-
maðurinn Wanyama héldi á vit
merkilegri ævintýra eftir dvöl hjá
Celtic en Pochettino náði að kló-
festa kappann. Svo ánægður er
Pochettino með Wanyama að hann
horfir hýru auga til bróður hans,
McDonald Mariga hjá Inter, sem
spilar með Wanyama með lands-
liði Kenía. Þá hefur Lovren verið
ofurlímið sem vantaði í vörnina
og ungir enskir bakverðir hlaupa
óþreytandi upp og niður kantinn.
Hvort Southampton tekst að
halda uppteknum hætti og landa
Evrópusæti verður að koma í ljós.
Ótrúlegri hlutir hafa gerst og
segja sumir að sóknarmennirnir
fjölbreyttu, Lambert, Osvaldo auk
Adams Lallana og Jays Rodrig-
urez, séu rétt að hita upp. Liðið
mætir Stoke í dag þar sem ólíklegt
er að mörg mörk líti dagsins ljós.
kolbeinntumi@frettabladid.is
England
1. Southampton (5. sæti) 3
2. Tottenham (4.) 5
3. Chelsea (2.) 6
4. Liverpool (3.) 8
5. West Ham (15.) 8
Þýskaland
1. Bayern München (1.) 6
2. Dortmund (2.) 8
3. Leverkusen (3.) 10
4. Hertha Berlin (5.) 12
5. Wolfsburg (6.) 12
Spánn
1. Barcelona (1. sæti) 7
2. Atletico Madrid (2.) 8
3. Villarreal (4.) 12
4. Getafe (6.) 12
5. Real Sociedad (9.) 12
6. Granada (14.) 12
Ítalía
1. Roma (1. sæti) 1
2. Napoli (2.) 7
3. Juventus (3.) 10
4. Udinese (8.) 11
5. Internazionale (4.) 12
Frakkland
1. Lille (3. sæti) 4
2. Paris St-Germain (1.) 7
3. Mónakó (2.) 8
4. Nantes (4.) 9
5. Reims (10.) 10
FÆST MÖRK FENGIN Á SIG Í FIMM STÓRU DEILDUNUM Í EVRÓPU
Skrýtin stjóraskipti
sem gengu upp
Southampton situr í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eft ir níu umferðir og hefur
fengið á sig fæst mörk allra liða. Evrópusæti er ekki svo fj arlægur draumur.
BREYTTI ÖLLU Á ST. MARY’S
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri
Southampton. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
FRÁBÆRT GENGI
Rickie Lambert og
félagar fagna einu
marka sinna.
MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Rauði herinn mætir Skyttunum í London á laugardag
í baráttunni um toppsætið í deildinni. Arsenal eru
efstir en Liverpool ætlar sér hinsvegar að endur-
heimta toppsætið með þá sjóðheitu Sturridge og
Suarez fremsta í flokki.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Fáðu þér áskrift
512 5100
stod2.is
ARSENAL
LIVERPOOL
LAUGARDAG KL. 17:20
ENSKI BOLTINN,
NET OG HEIMASÍMI Á 8.990 KR.Gegn 3 mánaða samningi
SEX STIGA LEIKUR Á EMIRATES
Ekki missa af þessum stórleik á Stöð 2 Sport 2!
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is