Fréttablaðið - 08.11.2013, Page 12
8. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Bretland „Það er ljóst að andstæðingar okkar núa
saman höndum af kæti,“ sagði Iain Lobban, yfir-
maður bresku njósnastofnunarinnar GCHQ, spurður
um afleiðingar þess að fjölmiðlar víða um heim hafa
fjallað ítarlega um uppljóstranir Edwards Snowdens.
„Al Kaída drekkur þetta í sig með áfergju.“
Hann sat fyrir svörum ásamt félögum sínum, þeim
Andrew Parker og John Sawers, hjá breskri þing-
nefnd sem spurði út í hleranir og njósnir bresku
leyniþjónustustofnananna. Parker er yfirmaður MI5
en Sawers yfirmaður MI6.
Nefndin þótti fara mildum höndum um njósnafor-
ingjana þrjá, en stofnanir þeirra hafa orðið uppvísar
að víðtækum net- og símhlerunum, að því er fram
kemur í leyniskjölum frá bandarísku Þjóðaröryggis-
stofnuninni, sem Snowden lak í fjölmiðla í sumar.
Þremenningarnir sögðust þó ekkert hafa á móti því
að löggjöf um starfsemi þeirra verður endurskoðuð,
en slík endurskoðun er á dagskrá hjá nefndinni.
Þeir fullyrtu allir að stofnanir þeirra starfi innan
ramma laganna, og tilgangurinn sé sá einn að þefa
uppi aðsteðjandi hættu og fylgjast með athöfnum
grunaðra hryðjuverkamanna.
„Við eyðum ekki tíma okkar í að hlusta á símtöl eða
lesa tölvuskilaboð venjulegs fólks,“ sagði Lobban í
yfirheyrslunni, sem tók hálfan annan tíma.
Uppljóstranir Snowdens hafi hins vegar valdið
verulegum skaða og muni gera störf þeirra erfiðari á
næstu árum.
Víða var komið við og meðal annars kom fram að
stofnanirnar hafi einna mestar áhyggjur af nokkur
hundruð breskum ríkisborgurum, sem hafa farið
til Sýrlands að berjast með uppreisnarmönnum og
sumir þeirra komi síðan aftur til Bretlands.
gudsteinn@frettabladid.is
Mildum höndum
farið um foringjana
Yfirmenn bresku leyniþjónustunnar segja að uppljóstranir Snowdens hafi valdið
leyniþjónustunni miklum skaða og muni gera störf þeirra erfiðari. Þeir segjast þó
ekkert hafa á móti því að löggjöf um starfsemi þeirra verði endurskoðuð.
YFIRNJÓSNARARNIR YFIRHEYRÐIR Andrew Parker, John
Sawers og Iain Lobban svara opinberlega spurningum breskrar
þingnefndar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Öryggisþjónustan MI5
(The Security Service)
Sér um öryggiseftirlit innanlands, meðal annars við að
meta og bregðast við hættu á hryðjuverkum.
Yfirmaður: Andrew Parker
Leyniþjónustan SIS– betur þekkt sem MI6
(The Secret Intelligence Service)
Sér um njósnir erlendis, með það í huga að þefa uppi alla
hættu sem gæti steðjað að Bretum og Bretlandi að utan.
Yfirmaður: John Sawers
Fjarskiptaeftirlitið GCHQ
(Government Communications Headquarters)
Sér um fjarskiptaeftirlit, þar á meðal netnjósnir og
símhleranir.
Yfirmaður: Iain Lobban
Leyniþjónustustofnanir Bretlands
Kóngurinn fær ekki meira
1BELGÍA Belgíska stjórnin hefur neitað Albert Belgíukonungi, sem settist í helgan stein í sumar, um meira fé úr ríkissjóði. Þegar Albert hætti minnk-
uðu fjárframlög til hans úr jafnvirði 1.886 milljóna króna niður í 151 milljón.
Elio Di Rupo forsætisráðherra virðist vera harður á því að þetta eigi að duga
kónginum fyrrverandi til þess að standa straum af lúxuslífi sínu.
Nýr leiðtogi talibana
2PAKISTAN Talibanahreyf-ingin í norðvesturhluta
Pakistans hefur einróma sam-
þykkt að Mullah Fazlullah verði
leiðtogi hreyfingarinnar, en for-
veri hans var drepinn í sprengju-
árás um helgina. Nýi leiðtoginn
er einkum þekktur fyrir að hafa
á síðasta ári skipulagt hina ill-
ræmdu árás á Malölu Júsúfsaí,
stúlkuna sem hafði barist fyrir
menntun kvenna og gagnrýnt
ofbeldi talibana.
Styðja áætlun Írans
2ÍRAN Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Kína, Rússlands og Þýskalands hafa lýst yfir stuðningi við áform Írans um að draga að hluta
úr kjarnorkuáætlun sinni, en Íranar búast við að í staðinn verði smám saman
dregið úr alþjóðlegum refsiaðgerðum gegn þeim. Þetta fullyrti Abbas
Araghchi, aðalsamningamaður Írans í kjarnorkumálum.
ÁVARPAÐI ÞING SÞ Malala Yousafzai talaði
hjá Sameinuðu þjóðunum í sumar.
NORDICPHOTOS/AFP
HEIMURINN
1
23
NISSAN
QASHQAI
NISSAN QASHQAI DÍSIL 4WD
VERÐ FRÁ 4.990 ÞÚS. KR.
KAUPAUKI AÐ ANDVIRÐI
500 ÞÚS. KR.
· Vetrardekk
· Dráttarbeisli
· iPad 32 GB
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ
500 ÞÚS. KR. KAUPAUKI FYLGIR QASHQAI
Þeir sem kaupa Qashqai eru að leita að fallegum fjórhjóla-
drifnum bíl sem er hagkvæmur í rekstri og góður í endursölu.
Qashqai eyðir einungis frá 4,6 l/100 km
Qashqai 1,6 dCi beinsk.
Verð: 4.990 þús. kr.
Qashqai+2 1,6 dCi beinsk. 7 manna
Verð: 5.390 þús. kr.
Qashqai 2,0 bensín, sjálfsk.
Verð: 5.790 þús. kr.
Qashqai 2,0 dCi sjálfsk.
Verð: 6.090 þús. kr.
iPad 32GBfylgir með ásamt veglegri hlífðartösku
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
8
9
14