Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 8. nóvember 2013 | FRÉTTIR | 13
LANDBÚNAÐUR Áratugabið eftir
alhliða riti um sauðfé og sauðfjár-
rækt er á enda með bókinni, „Sauð-
fjárrækt á Íslandi“. „Um málið
hefur verið ályktað hjá Landssam-
bandi sauðfjárbænda og búið að tala
um það mjög lengi,“ segir Ragnhild-
ur Sigurðardóttir, ritstjóri bókar-
innar og lektor við LBHÍ.
Árin 2009 til 2011 veitti hún
forstöðu verkefninu Sheepskills
(sheepskills.eu) sem styrkt var af
menntaáætlun Evrópusambands-
ins. „Við bjuggum til fræðsluefni
í fimm löndum og fórum fyrst af
stað með þá hug-
mynd að efnið
yrði rafrænt,“
segir hún, en hér
hafi skilaboð frá
bændum verið
á þá leið að þeir
vildu almenni-
lega bók. „Við
byggðum á því
sem til var og
uppfærðum, en
mjög mikið var skrifað frá grunni.“
Þrátt fyrir að umræða um inn-
göngu í Evrópusambandið hafi verið
heit á þessum tíma og ákveðna and-
stöðu sem verið hafi hjá hópi bænda
segir Ragnhildur að á fundum með
bændum og ráðgjöfum í sauðfjár-
rækt hafi komið fram skilningur á
því að bæði bæri að gefa og þiggja
inn í svona verkefni.
„Íslendingar taka þátt í mennta-
áætlun Evrópusambandsins í gegn
um EES-samninginn. Gaman var
að finna hversu miklu við höfum
að miðla þótt við séum lítið land og
eigum margt sammerkt með öðrum
löndum þótt aðstæður séu að mörgu
leyti ólíkar.“ - óká
RAGNHILDUR
SIGURÐARDÓTTIR
NÝ BÓK Á lokametrunum var bætt við
kafla um smalahunda.
Sauðfjárbændur sýndu skilning á mikilvægi þátttöku í menntaverkefnum Evrópusambandsins:
Ný bók um sauðfjárrækt eftir áratuga bið
TÆKNI Nýjasti leikurinn í tölvu-
leikjaröðinni Call of Duty mok-
selst en leikurinn fór í sölu á
þriðjudaginn. Eintök af leikn-
um, sem ber heitið Call of Duty:
Ghosts, seldust fyrir meira en
einn milljarð Bandaríkjadala, en
það samsvarar rúmlega 121 millj-
arði íslenskra króna. Inni í þeirri
upphæð eru aðeins þeir leikir sem
selst hafa í verslunum svo talan
mun að öllum líkindum hækka
töluvert. Um er að ræða met,
en fyrra met átti tölvuleikurinn
Grand Theft Auto V, sem kom út í
september. - hva
Nýjasti leikur Call of Duty:
Mokseldist á
fyrsta söludegi
UTANRÍKISMÁL Gunnar Bragi
Sveinsson utanríkisráðherra átti
fund með Arkady Dvorkovich
varaforsætisráðherra Rússlands
á miðvikudag, en Dvorkovich
hafði viðkomu í
Keflavík.
Fóru ráðherr-
arnir yfir stöðu
fríverslunar-
viðræðna EFTA
og tollabanda-
lags Rússlands,
Kasakstans og
Hvíta-Rúss-
lands.
Utanríkisráð-
herra lagði áherslu á mikilvægi
þess að tryggja framgang í við-
ræðunum á næstu misserum. Ráð-
herrarnir ræddu einnig tvíhliða
samskipti ríkjanna, meðal annars
á sviði jarðhita og fjarskipta. - ka
GUNNAR BRAGI
SVEINSSON
Utanríkisráðherra í Keflavík:
Fundaði með
Dvorkovich
RÚSSLAND, AP Rússar skutu í
morgun upp geimfari, sem er með
Ólympíukyndilinn innanborðs.
Ferðinni er heitið út í alþjóð-
legu geimstöðina, sem er á braut
umhverfis jörðu.
Bandaríkjamenn flugu einnig
með Ólympíukyndil út í geim fyrir
Ólympíuleikana í Atlanta árið
1996, en Rússar ætla í þetta skipt-
ið að fara með kyndilinn út fyrir
geimfarið í fyrsta sinn í sögunni.
Allt er þetta partur af undirbún-
ingi eða auglýsingaherferð fyrir
Vetrarólympíuleikana í Sotsjí.
Kyndillinn verður um borð í geim-
stöðinni í fimm daga.
Af öryggisástæðum verður þó
slökkt á kyndlinum á meðan hann
er um borð í geimfarinu. - gb
Fimm dagar í geimstöð:
Ólympíukyndill
farinn út í geim
Á LEIÐ ÚT Í GEIMINN Af öryggisástæð-
um verður slökkt á eldinum meðan
hann er úti í geimnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Myndbandaleigunni
Blockbuster í Bandaríkjunum
verður endanlega lokað í janúar.
Blockbuster-keðjan hefur verið
leiðandi á myndbandaleigumark-
aði í fjölda ára en þarf nú að lúta í
lægra haldi fyrir myndveitum, eða
stafrænum myndbandaleigum, á
borð við Netflix. Síðasta tilraunin
til að forða fyrirtækinu frá lokun
var að bjóða upp á heimsendar
DVD-myndir. Slíkum heimsend-
ingum verður einnig hætt. - ka
Búið spil hjá Blockbuster:
Blockbuster
hættir í janúar
Ég vil lifandi og heilbrigða borg sem er
full af valkostum í húsnæðismálum,
samgöngukostum og skólamálum. Það
er tímabært að hlúa að starfsumhverfi og
aðstöðu eldri Reykvíkinga en sá mála-
flokkur mun vaxa mikið á næstu árum.
Tækifærin til að efla og stækka borgina
okkar eru óþrjótandi. Eftir að hafa starf-
að að borgarmálum í áratug þekki ég
Reykjavík og hef skýrar hugmyndir
um hvernig við getum gert hana að
enn betri borg fyrir okkur öll.
Ég óska eftir stuðningi ykkar til að leiða
Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í borgar-
stjórnarkosningunum næsta vor.
Kosningaskrifstofa Ármúla 7 » thorbjorghelga.is » thorbjorghelga
Þorbjörg
Helga
1. sæti Reykjavík