Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 28
FÓLK|FERÐIR
SKEMMTUN Góð stund í Baar. Sigríður Inga til hægri ásamt systur sinni, Þórhildi, og börnum sínum, Hildi Björgu, Leifi Má og Hauki Frey.
HÖLLGROTTEN
Merkilegir dropasteins-
hellar hjá Zug.
Áður en þau hjónin fluttu til Sviss bjuggu þau í Danmörku í tvö ár og höfðu áður búið
í Þýskalandi og eru því komin með
mikla reynslu af búsetu í útlöndum.
Sigríður var spurð hvernig það væri
að búa í Sviss en í Baar búa um 25
þúsund manns og þar af er um fjórð-
ungur útlendingar. Sigríður og fjöl-
skylda hafa búið þar í tvö og hálft ár.
Er gott að búa og starfa á þessum
slóðum?
Já, ekki síst vegna þess að Sviss er
mjög miðsvæðis og stutt í allar áttir.
Veðurfarið er líka afar gott.
Við hvað starfar þú?
Ég er heimavinnandi húsmóðir en
skrifa viðtöl og greinar fyrir tímaritið
Í boði náttúrunnar í fjarvinnu. Eftir
að ég flutti út notaði ég tímann til að
ljúka við BA-ritgerð í þjóðfræði, sem
hafði setið á hakanum í mörg ár. Þá er
ég á samtalsnámskeiði í þýsku einu
sinni í viku. Skólakerfið hér í Sviss
gerir það að verkum að erfitt er fyrir
báða foreldra að vera útivinnandi og
það kemur oftast í hlut okkar kvenna
að vera heima að sinna börnum og
búi.
Hvað er mest spennandi fyrir
ferðamenn að skoða í bænum?
Höllgrotten en það eru merkilegir
dropasteinshellar sem eiga fáa sína
líka í heiminum. Zug er stutt frá Baar,
þar er fallegur miðbær sem vert er að
skoða. Síðan má sigla um Zuger-vatn á
ferju eða hjólabát en hér er mikil nátt-
úrufegurð. Skammt frá Baar er vatns-
rennibrautagarðurinn Alpamare sem
hentar fjölskyldufólki. Stórborgirnar
Zürich og Luzern eru í hálftímafjar-
lægð og þar er ótalmargt að skoða. Þá
er stutt að fara upp í Alpana á skíði
eða í fjallgöngur.
Hvað hefur komið þér á óvart í
Baar?
Hvað þetta er mikil sveit. Hér eru
bóndabæir inni í miðjum bæ þar sem
sjá má kýr á beit og oft mæti ég hest-
vögnum í umferðinni. Það kom mér
líka á óvart hvað það er mikið logn
hérna. Einnig tók tíma að venjast því
hvað Svisslendingar eru skipulagðir
og plana allt langt fram í tímann. Ég er
til dæmis búin að fá lista yfir skólafrí
barnanna minna til ársins 2018.
Er gott að vera með börn á þessum
stað?
Já, mjög svo, enda Baar rólegur og
vinalegur bær. Hér eru góðir skólar,
tónlistarskóli og fjölbreytt íþróttalíf.
Er hagstætt að kaupa í matinn og
lifa í þessari borg?
Nei, matvara er ótrúlega dýr, ekki
síst fiskur og kjöt, og því fer ég oft
yfir til Þýskalands til að gera stórinn-
kaup. Almennt er dýrt að lifa í Sviss en
launin eru líka góð.
Færðu heimþrá?
Já, stundum og ég kann líka betur
að meta Ísland eftir að hafa búið í
útlöndum.
KÝR Á BEIT OG HEST-
VAGNAR Á FERÐ
GOTT AÐ BÚA Sigríður Inga Sigurðardóttir blaðamaður býr ásamt eiginmanni
sinum, Jóni Áka Leifssyni, og þremur börnum í Baar í Sviss. Eiginmaður Sig-
ríðar starfar hjá Actavis en hún er heimavinnandi.
VETUR Skíðaparadís er skammt undan. „Myndina tók Hörður Þórhallsson vinur okkar.“
GAMALDAGS Oft má sjá hestvagn á ferð innan um bíla og aðra umferð í Baar.
handhægi
D-vítamín
úðinn,
hámarksnýting
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum.
Eru ekki allir
örugglega
að fá sér
D vítamín
núna?
3
mánaða
skammtur
www.gengurvel.is
Barnaheillum
Jól með
AUÐVELT
AÐ VERA MEÐ
www.jolapeysan.is
Kemur út
26. nóvember
Atli Bergmann
atlib@365.is
S. 512 5 457
897 9144
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbirgir@365.is
S. 512 5432
694 9150
Kolbeinn Kolbeinsson
kolli@365.is
S. 5 12 5447
663 4055
Bryndís Hauksdóttir
bryndis@365.is
S. 512 5 434
695 4999
Ívar Ö rn Hansen
ivarorn@365.is
S. 512 5429
615 4349
Bókið auglýsingar
tíma ln ega:
Meðal efnis
í blaðinu:
Jólaljósin, kökur, sætindi,
skraut, föndur, matur, borðhald,
jólasiðir, jólagjafir og venjur.
JÓLAGJAFAHANDBÓK
FRÉTTABLAÐSINS
Ábendingahnappinn
má finna á
www.barnaheill.is