Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.11.2013, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 08.11.2013, Qupperneq 52
8. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 28 „Sagan fjallar um landskunnan veðurfréttamann sem verður fyrir rafrænum ofsóknum og ég er að stúdera áhrif þess á hann og hans tilveru. Síðan er ég svo- lítið að velta fyrir mér ofsækj- andanum og hvað það er sem knýr hann áfram.“ Sindri segist hafa lagst í þó nokkrar rannsóknir á fyrirbær- inu við vinnslu bókarinnar og komist að ýmsu sem hann ekki vissi fyrir. „Þegar ég kannaði þessi mál kom skýrt fram að fórnarlömb rafrænna ofsókna eða eineltis upplifa oft mikil sál- ræn áföll, sem og líkamleg og tilfinningaleg viðbrögð, vegna ofsóknanna. Þar á meðal geta verið breytingar á svefn- og matarvenjum, martraðir, kvíði, að finna til hjálparleysis, ofur- árvekni, ótti um eigið öryggi, áfall og vantrú,“ segir Sindri. „Ofsækjandinn heldur sig hins vegar til hlés, felur sig bak við dulnefni á netinu og reynir að virkja annað fólk, málinu óvið- komandi og óafvitandi, til að verða þátttakendur í ofsókn- unum.“ Það vekur líka athygli að ofsækjandinn er kona, má það? „Já, er það ekki? Í þessu fórn- arlambalitrófi sem við þekkj- um úr ýmsum áttum er því oft haldið fram að það séu eingöngu karlmenn sem séu gerendur í ofbeldismálum, en það er fjarri lagi. Ef maður skoðar niður- stöður rannsókna kemur í ljós að hlutföllin eru næstum 50/50. Mér fannst það þess vegna eigin lega of klisjukennt að kona væri fórnarlamb einhvers karl- pungs sem vildi henni illt.“ Sindri segist hafa tekið þá ákvörðun að láta sögutímann vera fyrir tíma Facebook, link- edin, google+ „og hvað þetta nú heitir allt saman“. Með tilkomu þeirra hafi varnarleysi fórnar- lamba rafrænna ofsókna orðið algert og allar gáttir opnast með skelfilegum afleiðingum eins og ítrekað hafi komið fram í fréttum undanfarið. En hvern- ig skilgreinir hann rafrænar ofsóknir? „Þær byrja kannski sem sakleysisleg samskipti en brjóta síðan af sér öll viðtekin mörk, verða óviðráðanlegar og þegar fram líður jafnvel hættu- legar. Rafræni ofsækjandinn getur síðan mætt á staðinn til að beita raunverulegu líkam- legu ofbeldi. Rafrænu ofsókn- irnar eru þá eins og forleikur að lokaárásinni. Hann eða hún eru rándýr klædd í rafrænan feld og svífast einskis. Ofsóknir geta staðið yfir árum saman og stig- magnast með hverri árás. Fórn- arlömbin einangrast oft, missa vinnuna, tengsl við fjölskyldu og vini rofna og svo framvegis. En ég tek það fram að þó að ég hafi lagt í heilmikla rannsókn- arvinnu á fyrirbærinu er Blind- hríð ekki nein fræðileg úttekt á rafrænum ofsóknum, þær eru bara bakgrunnur eða efnivið- ur sálfræðilegrar spennusögu, hreyfiafl atburðanna.“ Hvernig kviknaði þessi hug- mynd? Hefur þú sjálfur orðið fyrir slíkum ofsóknum? „Ja, án þess að ég vilji fara nánar út í það þá lenti ég í því fyrir langa löngu að manneskja sem ég kærði mig ekki um samskipti við tók ekkert mark á höfnun- inni og hélt áfram að hrella mig þar til ég ég skipti um síma- númer. Það má segja að það hafi orðið kveikjan að þessari sögu þótt hugmyndin hafi ekki fullmótast fyrr en löngu síðar. Sambandið á milli ofsækjandans og hins ofsótta vakti kannski fyrst áhuga minn á þessu efni. Kaldhæðnin er síðan sú að elti- hrellir sækist oftar en ekki eftir nánd, vill koma á nánu, ástríku sambandi við fórnarlamb sitt – en beitir þessum skæðu og kvalafullu aðferðum til að nálg- ast viðfang „ástsýki“ sinnar. Viðkomandi telur fórnarlamb- ið vera langþráðan sálufélaga og að þeim sé skapað að vera saman. Eltihrellirinn kann að túlka hvert einasta viðbragð frá fórnarlambinu, jafnvel nei- kvætt, sem hvatningu um að halda uppteknum hætti. Þannig missir skotspónn ofsóknanna öll vopn og alla von um að stöðva viðkomandi með hefðbundnum aðferðum. Það er þá sem fólk þarf að grípa til óvenjulegra vopna.“ fridrikab@frettabladid.is Spennutryllir um rafrænar ofsóknir Blindhríð, nýjasta skáldsaga Sindra Freyssonar, kemur út í dag. Sindri segir bókina á mörkum hefðbundinnar skáldsögu og spennutryllis, en viðfangsefnið er rafrænar ofsóknir, bæði út frá sjónarhóli geranda og fórnarlambs. RAFRÆN MARTRÖÐ Ofsækjandinn í Blindhríð er kona og Sindri segir rannsóknir staðfesta að 40% þeirra sem slíkt stunda séu konur. Það sé því ósönn klisja að gerendur í ofbeldismálum séu alltaf karlar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Listasafn ASÍ er á þremur hæðum og á hverri þeirra er sérstakt þema þessa dagana. Á þeirri efstu eru hjólhýsi allsráðandi, meðal annars myndir af sama hjólhýs- inu á mismunandi árstímum. Í arinstofunni gægjumst við inn í hús, alls konar hús þar sem sterk ummerki eru um yl og líf í lengri eða skemmri tíma og í kjallaran- um blasir við náttúran í nærmynd- um. Katrín Elvarsdóttir heitir lista- konan að baki þessum verkum. Hún segir þau beint framhald af því sem hún hafi verið að gera fyrir sýningarnar Hvergiland í Listasafni Reykjavíkur 2010 og EQuivocal í Gallerí Ágúst sama ár. Þessi sýning nefnist Horfið sumar. Sýningarstjórn er í höndum Hörpu Árnadóttur. Hún orðar það svo að þegar hún hafi komið fyrst inn á vinnustofu Katrínar hafi til- finningin verið svipuð og að stíga inn í verk Gyrðis Elíassonar rit- höfundar, þar sem verkin segja sögu sem þó er ósögð. Í tengslum við sýninguna í Lista- safni ASÍ gefur Crymogea út bók- ina Horfið sumar með myndunum sem eru á sýningunni og mörgum fleiri. Safnið er opið alla daga nema mánudaga. Sýning Katrín- ar stendur til 24. nóvember og aðgangur er ókeypis. gun@frettabladid.is Ummerki um yl og líf Ljósmyndir Katrínar Elvarsdóttur prýða veggi Lista- safns ASÍ við Freyjugötu 41. Þær skiptast í þrjá fl okka en sýningin í heild heitir Horfi ð sumar. KATRÍN ELVARSDÓTTIR Hún hefur sýnt verk sín í Þýskalandi, Frakklandi, Finn- landi, Svíþjóð og Rússlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL MENNING
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.