Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 70
8. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 46
Guðmundur Franklín Jónsson, for-
maður Hægri grænna, fjölmiðla-
fólkið Björn Teitsson og Malín
Brand, myndlistarkonan Bjargey
Ólafsdóttir og flautuleikari Sin-
fóníuhljómsveitarinnar, Melkorka
Ólafsdóttir, eru meðal keppenda
á fyrsta Íslandsmeistaramótinu í
Scrabble, eða Skrafli, sem haldið
verður um helgina, af Skraflfélagi
Íslands.
„Leiknar verða sex umferðir
í riðlum hvorn daginn þar sem
einn keppir á móti einum. Keppn-
in hefst stundvíslega klukkan ell-
efu báða dagana,“ segir Sigurður
Arent, einn skipuleggjenda skrafl-
mótsins sem haldið verður á veit-
ingastaðnum Happi á Höfðatorgi.
„Í tilefni af fyrsta mótinu hér
á landi barst okkur liðsauki frá
Noregi en Taral Guldahl frá
Norsk Scrabbleforbund mun sjá
um dómgæslu. Guldahl er algjör
kanóna í skraflheiminum,“ segir
Sigurður jafnframt.
„Fyrsta Scrabble-spil-
ið á Íslandi var Stafa-
spilið sem var gefið út
árið 1983 og svo Kross-
gátuspilið árið 1984.
Scrabble lét hins vegar
bíða eftir sér til ársins
1990 en hefur síðan þá
verið grundvallarspil í
safni sumarbústaðaeig-
enda og annarra
spilara,“ segir
Sigurður sem
sjálfur er mik-
ill áhugamað-
ur um leikinn.
„Að skrafla
hefur sömu
merkingu og
að skrafa eða
tala saman
og það er
svolítið góð
l ý s i n g á
þessu samtali sem á sér stað í hverj-
um leik, að minnsta kosti jafn góð
og sögnin „to scrabble“ sem þýðir
að róta eða fálma eftir einhverju,“
útskýrir Sigurður.
Verðlaun verða veitt fyrir tíu
efstu sætin auk vinninganna fyrir
stigahæsta leikinn og flest bónus-
orð (sjö stafa orð) en vinningarn-
ir eru frá Forlaginu, Hamborg-
arafabrikkunni og fleirum.
„Mest er þó auðvitað vert um
heiðurinn sem fylgir því að vera
Íslandsmeistari í þessari þjóðar-
íþrótt Íslendinga,“ segir Sigurður.
olof@frettabladid.is
Á föstudagskvöld spila ég á risa-
tónleikum með hljómsveitinni
minni, Atómskáldunum, á Selfossi. Á
laugardag ætla ég að fagna tveggja
ára afmæli dóttur minnar. Svo á
sunnudag verð ég á æfingum með
Todmobile og kammersveit.
Eyþór Ingi Gunnlaugsson, tónlistarmaður
HELGIN
„Við höfum gert þetta síðastliðin fimm til sex ár
og er eiginlega fyrsti hlutinn af jólaundarbúningn-
um hjá okkur,“ segir Alexía Björg Jóhannesdóttir
leikkona, sem hefur ásamt fjölskyldu sinni verið
dugleg við að styrkja verkefnið Jól í skókassa.
Jól í skókassa er alþjóðlegt verkefni sem felst í
því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja
önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfið-
leika með því að gefa þeim jólagjafir.
„Krakkarnir mínir hafa jafngaman af þessu og
ég. Þau læra margt af þessu og gefa gjafir í verk-
efnið,“ útskýrir Alexía. Fyrsta árið gáfu þau einn
kassa, svo tvo og nú gefa þau þrjá kassa í verk-
efnið.
Jól í skókassa er verkefni sem stofnað var af
ungu fólki innan KFUM og KFUK árið 2004 en þá
söfnuðust fimm hundruð kassar. Verkefnið hefur
stækkað síðustu ár og hafa undanfarin ár borist
um fimm þúsund gjafir sem fara svo til Úkraínu
þar sem ástand er víða bágborið.
Fram undan hjá Alexíu er uppistand sem hún
vinnur með hópi sem kallast Pörupiltar en verkið
verður sett á svið í Borgarleikhúsinu í febrúar.
Síðasti móttökudagur fyrir Jól í skókassa er
laugardagurinn 9. nóvember 2013 en opið er á
milli klukkan 11.00 og 16.00 á Holtavegi 28.
- glp
Leikkona lætur gott af sér leiða
Alexía Björg Jóhannesdóttir leikkona gefur jólagjafi r í verkefnið Jól í skókassa.
GJÖF SEM GLEÐUR Alexía Björg Jó -
hann esdóttir leikkona ásamt syni sínum
Jóhannesi Hermanni Guðmundssyni
gefa nokkrar gjafir til verkefnisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
„Þetta er í fyrsta skipti sem hún
kemur fram í Eldborgarsalnum í
Hörpu,“ segir tónleikahaldarinn
Kári Sturluson en Emilíana Torr-
ini kemur fram á tvennum tón-
leikum í Eldborg í tilefni af nýút-
kominni plötu sinni sem ber nafnið
Tookah. Tónleikarnir fara fram
þann 6. desember næstkomandi.
„Miðasalan hófst í gær og geng-
ur hún mjög vel,“ bætir Kári við.
Þetta eru fyrstu formlegu tón-
leikar Emilíönu síðan árið 2010,
en þá hélt hún þrenna tónleika í
Háskólabíói. Hún kom þó fram á
Iceland Airwaves-hátíðinni fyrir
skömmu við góðar undirtektir.
„Hún setti saman hljómsveit
sem er með henni á tónleikaferða-
lagi um Evrópu þessa stundina en
fyrstu tónleikar hennar með því
bandi voru á Airwaves.“
Tookah kom út 9. september og
hefur hlotið frábærar viðtökur.
Fyrsta útvarpslagið af plötunni,
Speed of Dark, hefur til að mynda
fallið afar vel í kramið hjá hlust-
endum landsins. - glp
Í fyrsta sinn í Eldborg
Emilíana Torrini kemur fram á tónleikum í desember.
EMILÍANA Í ELDBORG Emilíana flytur
lög af Tookah hinn 6. desember.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Norsk kanóna fengin
til að dæma í Skrafl i
„Þvílíkur heiður sem fylgir því að vera Íslandsmeistari í þessari þjóðaríþrótt,“
segir Sigurður Arent, einn skipuleggjenda Íslandsmótsins í Skrafl i um helgina.
SKRAFLSTUÐ Sigurður Arent og Jóhannes Benediktsson elska Skrafl. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
➜ Nýsjálendingurinn Nigel Richards er af mörgum talinn besti Scrabble-
spilari allra tíma. Richards er núverandi heims- og Bandaríkjameistari í
Scrabble. Hann er líka sá eini sem hefur hampað báðum titlum samtímis.
➜ „Óflokkaður“ er eitt af nokkrum orðum sem hægt er að búa til nýtt orð
úr með því að taka einn staf í burtu í einu þangað til að eftir standa
tveir stafir, minnsta einingin í Scrabble. Önnur orð eru til dæmis ástarfar,
aflgarpar, fjarðarála, hámarkaðir, sólundaðir og þjóðliðinu.
➜ RAÐFAIL er sú stafaruna sem inniheldur flest sjö stafa orð (bingó). Þau eru
alls átján: aðalrif, aflaðir, aflaðri, afliðar, afriðla, alfaðir, alfarið, alfiðra, al-
friða, falaðir, falaðri, fiðlara, lafraði, larfaði, lifaðra, lifaðar, lifraða og rafliða.
➜ Hægt væri að stafa yfir 120 orð með stafrununni ARINEST ef tekin eru öll
orð með tveimur til sjö stöfum.
Nokkrar staðreyndir um Scrabble
BJARGEY
ÓLAFSDÓTTIR
MALIN
BRAND
MELKORKA
ÓLAFSDÓTTIR
BJÖRN
TEITSSON
GUÐMUNDUR
FRANKLÍN
JÓNSSON
Við fögnum útgáfu matreiðslubókarinnar
eftir Svein Kjartansson og
Áslaugu Snorradóttur í Bókabúð Forlagsins,
Fiskislóð 39, föstudaginn 8. nóvember kl. 17.
„Hægt að mæla með þessu
vandaða og vel heppnaða verki …“
B J Ö R G V I N G . S I G U R Ð S S O N / P R E S S A N . I S