Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 72
22. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 36
BAKÞANKAR
Kjartans Atla
Kjartanssonar
„Hann á sinn þátt í að starta ferli
mínum,“ segir raftónlistarmað-
urinn Jóhann Steinn Gunnlaugs-
son sem hefur fengið hjálp frá
heimsþekkta raftónlistarmannin-
um hollenska Armin van Buuren
í að koma sér á framfæri. Jóhann
Steinn er 23 ára gamall og hóf raf-
tónlistarferilinn árið 2009. „Ég
er upphaflega rokktrommuleik-
ari en svo fékk ég áhuga á raftón-
list. Það er líka fínt að vera bara
sinn eigin herra í þessu, núna
hefur það engin áhrif ef einhver
hljómsveitar meðlimur skrópar á
hljómsveitaræfingu því ég er bara
einn.“
Hollenska stjarnan Armin van
Buuren, sem er með yfir sex millj-
ón læk á fésbókarsíðu sinni, er
með útvarpsþátt sem heitir A State
of Trance og er honum útvarpað
á tugum stöðva um allan heim og
á netinu.
„Hann er mjög stór í raftón-
listarheiminum og ég held ég sé
fyrsti Íslendingurinn sem hann
gefur út og er spilaður í útvarps-
þættinum hans,“ segir Jóhann.
Lög hans hafa þrisvar verið spil-
uð í útvarpsþætti Van Buurens
en hlustað var á síðasta lagið sem
spilað var í þættinum tíu þúsund
sinnum á Soundcloud á tveim-
ur dögum sem telst ansi gott. Þá
var búið að skoða lagið, sem heit-
ir Volcano, þrjú þúsund sinnum
á YouTube á tveimur dögum, en
lagið er ekki komið út formlega.
„Það er mjög gaman að þessu og
ég bíð spenntur.“
Jóhann skrifaði undir samning
við Abstractive Music, sem er í
eigu Sony, í sumar og mun fyrsti
afrakstur samningsins líta dagsins
ljós í næstu viku. „Það er að koma
út plata með nokkrum tónlistar-
mönnum og ég á tvö lög á þeirra
plötu. Samningurinn hljóðar einn-
ig upp á nokkrar smáskífur þannig
að ef allt gengur vel verður jafn-
vel gefin út breiðskífa,“ útskýrir
Jóhann.
Fyrsta EP-platan hans, Stone
Cold, kom út árið 2009 hjá
íslenska útgáfufyrirtækinu Air-
port Route Recordings. „Ég fór
svo að gefa út reglulega árið
2010 þegar sænski raftónlistar-
maðurinn Stana uppgötvaði mig
og hann fékk mig til að gera lag
fyrir Detox Records í Hollandi
sem hefur alltaf verið eitt af
mínum uppáhaldsútgáfufyrir-
tækjum.“
Út frá því kynntist Jóhann hol-
lenskum raftónlistarmanni sem
kallar sig Setrise og gerðu þeir
lag, sem á endanum barst til
Armins van Buuren. „Armin spil-
aði lagið mitt á stórum tónleik-
um í Kiev sem voru teknir upp
og gefnir út og það var frábært.“
gunnarleo@frettabladid.is
Rísandi í raft ónlistinni
Jóhann Steinn segir vanta allan pung í íslenska raft ónlist og vill breytingu.
ÚR FIM-
LEIKUNUM Í
TÓNLISTINA
Jóhann Steinn
Gunnlaugsson
raftónlistarmaður
var knár fimleika-
kappi á yngri
árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
■ Horft var á lag Jóhanns Steins, Volcano, sem unnið er ásamt raftón-
listarmanninum Eminence, tíu þúsund sinnum á tveimur dögum á
Soundcloud og þrjú þúsund sinnum á YouTube.
■ Jóhann Steinn er fyrrverandi fimleikastjarna og trommuleikari.
■ Fram undan eru stórir tónleikar í Mexíkó á vegum Sony og þá eru fleiri
lög væntanleg frá Jóhanni.
■ Hann hefur verið að semja lög og selt þau erlendis og kallast það á
tónlistartungumálinu „ghost production“.
Jóhann Steinn í hnotskurn
Fallega dóttir mín
Ég er stoltur pabbi. Dóttir mín er fjög-urra ára gömul og hefur glatt mig
mjög mikið frá því hún kom í heiminn.
Hún er hnyttin í tilsvörum og orðheppin.
Mig langar að deila með ykkur samræð-
um sem við áttum ekki alls fyrir löngu.
VIÐ vorum tvö í bílnum á laugardags-
eftirmiðdegi á leiðinni úr Smáralind.
Þorsti og löngun í sykur sótti að
henni: „Pabbi, má ég fá kók?“ Hún
hefur ekki fengið mikið gos hingað
til, nema rétt á tyllidögum, svo ég
svaraði henni um hæl: „Nei, ástin
mín, það er ekki í boði núna.“ Ég
bjóst við því að þurfa að rökstyðja svar
mitt betur, en sú stutta var jákvæðari í
svörum en mann hefði grunað: „Allt í
lagi,“ sagði hún hugsandi.
VIÐ sátum í þögn í nokkra
stund en ég fann á mér að
hún var í miklum pæling-
um. Niðurstaða þanka-
gangsins var svo nokk-
uð hnitmiðuð spurning:
„Pabbi er ekki laugar-
dagur í dag?“ Þessu var auðsvarað,
vissulega var laugardagur. Hún var fljót
með næstu spurningu: „Laugardagar
eru nammidagar, er það ekki?“ Pabbinn
gat ekki svarað þessu öðruvísi en ját-
andi. Eins og margir aðrir foreldrar hef
ég ákveðið að laugardagar séu svokall-
aðir nammidagar. Aftur fór hugur þeirr-
ar litlu af stað.
MÉR var farið að líða eins og fórnar-
lambi rándýrs. Dóttir mín var yfirveg-
uð og virtist vera með fast lokamark-
mið í huga, þessar spurningar og svör
mín leiddu hana greinilega nær einhvers
konar fullnaðarsigri. „Pabbi, myndir þú
segja að kók sé nammi?“ Pabbanum þótti
þetta góð samlíking: „Jú, það má segja
að kók sé eiginlega fljótandi nammi.“
Búmm. Þarna var hún með svarið sem
hún þurfti. Nú kom rothöggið: „Þú sagð-
ir að það væri nammidagur og þú sagðir
að kók væri nammi. Þannig að ég má fá
kók.“
ÉG gat ekki annað en stoppað í næstu
sjoppu. Og keypt ískalda kók.
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
EMPIRETOTAL FILM
M.S. WVAI RADIO J.B – WDR RADIO
JOBLO.COM
ROLLING STONE
GQ
DEADLINE HOLLYWOOD
ENTERTAINMENT WEEKLY
VAR ÍSLENSKUR ÞINGMAÐUR Í INNSTA HRING WIKILEAKS?
MÖGNUÐ MYND SEM VAR TEKIN AÐ HLUTA TIL Á ÍSLANDI
HUNGER GAMES 2 4, 6, 7, 9, 10
THE COUNSELOR 8, 10:30
PHILOMENA 3:50, 5:50
FURÐUFUGLAR 3:50 2D
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
5%
DR. WHO 50TH
ANNIVERSARY SPECIAL
PARADÍS: VON
SUN: 20.00 (16)
“IT COULD BE HIS BEST FILM
SO FAR” - THE GUARDIAN
SÍÐASTA MYNDIN Í PARADÍSARÞRÍLEIK ULRICH SEIDL
FYRRI MYNDIRNAR TVÆR ERU EINNIG SÝNDAR
Q&A MEÐ LEIKSTJ. ULRICH SEIDL
SJÁ SÝNINGATÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
THE HUNGER GAMES 2 KL. 6 - 9 -10.10
THE COUNCELOR KL. 8
FURÐUFUGLAR 3D KL. 6 Miðasala á: og
„DJÖ RF, HNÍFBEITT OG
ÓFYRIRSJÁANLEG ÚT Í GEGN.“
T.V. - BÍÓVEFURINN.IS„ELDFIM & ÖGRANDI“
- ROLLING STONE
„FYRSTA FLOKKS ÞRILLER“
- GQ
THE HUNGER GAMES 2
THE HUNGER GAMES 2 LÚXUS
THE COUNCELOR
THE STARVING GAMES
CARRIE
CAPTAIN PHILIPS
FURÐUFUGLAR 2D
TÚRBÓ 2D ÍSL.TAL
KL. 4 - 5 - 6 - 8 - 9 - 11
KL. 5 - 8 - 11
KL. 8 - 10.30
KL. 6
KL. 10.45
KL. 8
KL. 3.30
KL. 3.30
THE HUNGER GAMES 2
THE FIFTH ESTATE
PHILOMENA
CAPTAIN PHILIPS
ÁM LMHAUS
HROSS Í OSS
KL. 5 - 6 - 8 - 9 - 11
KL. 8 - 10.40
KL. 8
KL. 10.15
KL. 5.45
KL. 6