Fréttablaðið - 28.11.2013, Síða 8
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
VIÐSKIPTI Breski auðkýfingurinn
Sir Richard Branson mun taka við
stafræna gjaldmiðlinum bitcoin
frá þeim sem ætla að kaupa ferð
út í geiminn í gegnum fyrirtæki
hans Virgin Galactic.
Í samtali við fréttastofuna NBC
sagði hann þetta „nýjan og spenn-
andi gjaldmiðil“ en hann var
kynntur til sögunnar árið 2008.
Miðinn út í geim kostar 250 þús-
und dali, eða um þrjátíu milljónir
króna.
Branson hefur tilkynnt að fyrsta
farþegaflugið út í geim verði farið
á næsta ári. Branson og börn hans
Holly og Sam verða um borð í
geimfarinu SpaceShipTwo sem
þýtur af stað frá Nýju-Mexíkó í
Bandaríkjunum.
NBC mun fylgjast með förinni í
beinni útsendingu. „Virgin Galac-
tic er himinlifandi með að NBC
Universal fari með okkur í þessa
fyrstu ferð út í geiminn,“ sagði
Branson. „Í þessum fyrsta kafla
geimferða viljum við gera geim-
inn aðgengilegri og fá almenning
úti um allan heim til að taka þátt
í könnun alheimsins og til að vera
hluti af nýjungum í vísindum.“
Sharon Scott, forseti og fram-
kvæmdastjóri Peapock Produc-
tions sem er hluti af NBC News,
er spennt fyrir beinu útsending-
unni. „Þátttaka Sir Richards og
barnanna hans í fyrsta farþega-
fluginu út í geiminn verður einn
eftirminnilegasti atburður sjón-
varpssögunnar.“ - fb
Hægt að borga fyrir geimferðir Virgin með bitcoin:
Styttist í fyrsta flugið
RICHARD BRANSON Auðkýfingurinn segir bitcoin nýjan og spennandi gjaldmiðil.
NORDICPHOTOS/AFP
FJÖLMIÐLAR Starfsmönnum Ríkis-
útvarpsins fækkar um sextíu í
kjölfar fjöldauppsagna á dag-
skrárgerðarfólki og tæknimönnum
stofnunarinnar í gær. Alls var 39
sagt upp, flestum á útvarpsdeild
stofnunarinnar.
Stærstur hluti uppsagnanna
kemur til framkvæmda nú þegar. Í
öðrum tilvikum voru gerðir starfs-
lokasamningar eða tímabundnir
samningar ekki endurnýjaðir. Þá
var nokkrum verktakasamningum
einnig sagt upp.
Í tilkynningu frá útvarpsstjóra
var farið yfir helstu ástæður upp-
sagnanna. Þar kom fram að draga
þurfi árlegan rekstrarkostn-
að Ríkis útvarpsins saman um
500 milljónir króna. Einnig kom
fram að fjárlagafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar fæli í sér tæplega
300 milljóna króna raunlækkun
á tekjum Ríkisútvarpsins sam-
anborið við síðasta ár. Skerðing-
in sé 400 milljónir, sé miðað við
það sem gert hafi verið ráð fyrir
í gildandi fjárlögum. Þá lækki
áætlaðar auglýsingatekjur um
rúmlega 100 milljónir króna milli
ára vegna samdráttar á markaði.
Jafnframt muni útvarpsgjald, sem
rennur óskert til Ríkisútvarpsins
frá og með árinu 2016, lækka um
500 milljónir króna. Til viðbótar
kemur til framkvæmda um næstu
áramót lækkun á tekjum af kost-
un og auglýsingum sem nemur 400
milljónum króna.
Átta fréttamönnum var sagt upp
á fréttastofu RÚV, þar af tveimur
íþróttafréttamönnum. Um áhrif-
in segir Hallgrímur Indriðason,
formaður Félags fréttamanna,
að fréttaþjónusta muni minnka í
kjölfarið. „Einhverjir fréttatímar
verða aflagðir og einhverjir stytt-
ir. Þess munu sjást merki í frétta-
þjónustunni að fréttamönnum
hefur fækkað. Íþróttaumfjöllunin
er löskuð líka. Fólk mun taka eftir
þessu í dagskránni, sérstaklega á
Rás 1 og Rás 2.“
Illugi Gunnarsson menntamála-
ráðherra segir að það hafi staðið til
í nokkurn tíma að segja upp starfs-
fólki hjá RÚV og að niðurskurður-
inn komi til vegna stöðu ríkissjóðs.
Hann segist ekki eiga von á því að
breytingar verði gerðar á fjárlaga-
frumvarpinu í meðförum þingsins.
Uppsögnunum var mótmælt
harðlega og í gærkvöldi höfðu
tæplega sjö þúsund manns skrif-
að undir ákall til menntamála-
ráðherra um að afturkalla upp-
sagnirnar og niðurskurðinn. Þá
voru auglýst mótmæli fyrir utan
Útvarpshúsið í hádeginu dag.
eva@frettabladid.is
Skorið niður á RÚV
Niðurskurður hjá Ríkisútvarpinu leiðir til þess að starfsmönnum verður fækkað
um 60. Beinar uppsagnir eru 39. Draga þarf rekstrarkostnað saman um 500 millj-
ónir. Fréttamenn segja uppsagnir leiða til minni fréttaþjónustu en áður.
RÍKISÚTVARPIÐ Niðurskurður leiðir til fjöldauppsagna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
■ Fækkað um 60 starfsmenn.
■ 39 beinar uppsagnir.
■ 500 milljóna króna samdráttur í
rekstrarkostnaði.
■ 100 milljóna króna lækkun
kostunar- og auglýsingatekna.
Uppsagnir á RÚV
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
NISSAN LEAF VAR FYRSTI RAFBÍLLINN Í HEIMINUM
sem hlaut 5 stjörnur í Euro NCAP árekstrarprófunum árið 2012.
Öllum Nissan Leaf sem BL selur fylgir 5 ára
ábyrgð á rafhlöðu og tengdum háspennuhlutum.
HANNAÐUR FYRIR ÍSLAND
Nýja EURO LEAF gerðin af þessum vinsælasta rafbíl í heimi er hönnuð fyrir íslenskar aðstæður.
Nissan EURO LEAF
VERÐ 4.990 ÞÚS. KR.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
0
3
5
7
• 5 ára ábyrgð á rafhlöðu
• Upphitaða rafhlöðu fyrir örugga drægni á köldum dögum
• Fullan aðgang að hraðhleðslustöðum Orkuveitu Reykjavíkur
• Funheitan bíl á hverjum morgni með íslausum rúðum
• Öll sæti upphituð auk hita í stýri
• USB-tengi fyrir íslenska tónlist
• 5,8" snertiskjá með bakkmyndavél
• Fullkomnasta rafbílaverkstæði landsins og aðgang
að sérþjálfuðum starfsmönnum fyrir NISSAN EURO LEAF rafbíla
Við bjóðum viðskiptavinum okkar: