Fréttablaðið - 28.11.2013, Page 18
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 18
„Innbrot sitja oft lengi í fólki og
getur það til að mynda lýst sér í
því að viðkomandi líði ekki vel
heima hjá sér. Fólk er hrætt og
veltir því fyrir sér hvort inn-
brotsþjófurinn eða þjófarn-
ir komi aftur en líkurnar á því
eru í raun ekki meiri heldur en
að brotist sé inn annars staðar.
Fólk veltir því líka fyrir sér hvað
þjófarnir hafi verið að gera inni
á heimilinu og finnst það mengað
og óhreint eftir innrásina. Marg-
ir fara í það að þrífa húsið hátt og
lágt og þvo allan fatnað auk þess
sem þeir henda ýmsum munum
til daglegra nota,“ segir Sigrún
A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur
í forvörnum hjá tryggingafélag-
inu VÍS.
Þótt innbrotum og þjófnuð-
um sem tilkynnt eru til VÍS hafi
fækkað um helming frá árinu
2009 þegar tilkynningarnar
voru 1.100 vekur það áhyggjur að
þjófnuðum inni á heimilum sem
ekki eru mannlaus hefur fjölgað,
að sögn Sigrúnar.
Hún getur þess að innbrots-
þjófar sæti ekki hvað síst færis
í úthverfum, sér í lagi á jarðhæð
þar sem gluggar eru opnir. „Það
er ekki bara myrkrið sem auð-
veldar þjófum að brjótast inn,
heldur geta gróður og skjólvegg-
ir gert þeim sama gagn.“
Þjófar sæta sérstaklega færis
á því að brjótast inn í bíla á
aðventunni og hafa á brott með
sér nýinnkeyptar jólagjafir. Sig-
rún bendir á að mikilvægt sé að
gleyma ekki að loka gluggum og
dyrum á bílnum og leggja honum
þar sem lýsing er góð.
Að sögn Sigrúnar hefur lög-
reglan upplýst um fimmtung
innbrota sem framin hafa verið
á árinu. „Þetta hlutfall sýnir
glöggt hversu erfitt er að hafa
uppi á þrjótunum og oft þýfinu
líka. Í innbrotum er einkum sóst
eftir verðmætum sem auðvelt er
að koma í verð eins og tölvum,
farsímum, sjónvörpum og skart-
gripum. Af og til sér fólk stoln-
ar eigur sínar falboðnar á sölu-
síðum.“
Til þess að auka líkur á að end-
urheimta verðmæta muni eins og
reiðhjól og rafmagnstæki er gott
að skrá niður raðnúmer þeirra,
að því er Sigrún bendir á. „Jafn-
framt hjálpar að eiga myndir af
verðmætum, eins og málverkum
og skartgripum. Mikilvægt er
einnig að kynna sér hvort verð-
mæti til dæmis úra og skartgripa
er meira en fjölskyldutryggingin
bætir. Ef svo er þarf að tryggja
slíka gripi sérstaklega.“
Ef brotist er í ólæst, mannlaus
íbúðarhús, ólæsta bíla eða fyrir-
tæki getur skaðinn alfarið lent á
tjónþola. ibs@frettabladid.is
Innbrot á heimili valda fólki
oft langvarandi vanlíðan
Fólk er hrætt og finnst heimilið óhreint, segir sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS. Það veltir því fyrir sér hvort
brotist verði inn aftur. Þjófar sæta sérstaklega færis á því að brjótast inn í bíla á aðventunni og stela gjöfum.
ÞÝFI Þjófar sækjast einkum eftir verðmætum sem auðvelt er að koma í verð.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Börn hlaupa ekki jafnhratt og for-
eldrar þeirra gerðu þegar þeir voru
börn. Þetta eru niðurstöður nýrrar
umfangsmikillar rannsóknar sem
kynntar voru á ársfundi samtak-
anna American Heart Association.
Á vef BBC segir að vísindamenn
hafi skoðað gögn sem náðu yfir 46
ára tímabil. Voru gögnin um rúm-
lega 25 milljónir barna í 28 löndum.
Rannsóknin leiddi í ljós að börn
í dag eru að meðaltali 90 sekúnd-
um lengur að hlaupa 1,6 km en börn
sem hlupu sömu vegalengd fyrir 30
árum. Þetta á við bæði stúlkur og
drengi á aldrinum níu til 17 ára.
Telja vísindamenn að offita sé
skýringin í 30% til 60% tilfellanna.
Vandinn er einkum á Vesturlöndum
en hans verður einnig vart í sumum
Asíulöndum, eins og til dæmis Suð-
ur-Kóreu, Kína og Hong Kong.
Haft er eftir stjórnanda rann-
sóknarinnar, dr. Grant Tomkin-
son, að afleiðingarnar fyrir þau
börn sem hlaupa hægar en for-
eldrar þeirra gerðu fyrir 30 árum
geti orðið alvarlegar þegar þau
verða fullorðin. Hættan á að þau
fái hjartasjúkdóma síðar á ævinni
verði meiri.
Sérfræðingar segja að börn og
unglingar eigi að hreyfa sig í að
minnsta kosti eina klukkustund
á dag samtals þannig að verulega
reyni á líkamann.
Rannsókn á gögnum um 25 milljónir barna:
Börn hlaupa
sífellt hægar
Af og til
sér fólk stoln-
ar eigur sínar
falboðnar á
sölusíðum.
Sigrún A. Þorsteins-
dóttir, sérfræðingur í
forvörnum hjá tryggingafélaginu VÍS.
Á sunnudögum kl. 15 er alltaf eitt-
hvað um að vera í aðalsafni Borg-
arbókasafnsins, Tryggvagötu 15,
fyrir börn og fjölskyldur.
1. desember er sögustund, Mektar-
kötturinn Matthías og orðastelp-
an. Kristín Arngrímsdóttir les úr
nýrri bók sinni.
8. desember er Þrjú bíó. Sýnd
verður skemmtileg jólamynd.
15. desember verður föndursmiðja
í umsjá Kristínar Arngrímsdóttur
myndlistarkonu.
Laugardaginn 30. nóvember verð-
ur létt jólaföndur fyrir alla fjöl-
skylduna í Foldasafni.
Sunnudaginn 1. desember frum-
sýnir Stoppleikhópurinn leikverkið
Sigga og skessan í jólaskapi kl. 14
í Ársafni.
Sunnudaginn 8. desember kemur
Bjöllukórinn kl. 14 í Ársafn og flyt-
ur gestum jóladagskrá sína.
Frá og með 1. desember og fram
að jólum er hægt að fara inn á
jóladagatal Borgarbókasafnsins og
svara léttri spurningu. Þeir krakk-
ar sem taka þátt fara í sameigin-
legan pott og eftir jólin er dregið
úr og fá nokkrir heppnir glaðning.
Viðburðir fyrir
fjölskyldur á
bókasöfnum
Neysla á hráum rauðrófum eða kald-
pressuðum rauðrófusafa getur haft
jákvæð áhrif á blóðþrýsting og blóð-
flæði, að því er Steinar B. Aðalbjörnsson
næringarfræðingur skrifar á bloggsíðu
sinni.
Hann segir niðurstöður allmargra
rannsókna benda til þess að neysla á
rauðrófusafa geti haft veruleg áhrif
til lækkunar á blóðþrýstingi. Enn sem
komið er séu vísindamenn ekki alveg
sammála um hversu mikið magn sé
nauðsynlegt til að ná fram mælanlegum
breytingum en margar rannsóknir hafi
sýnt fram á að neysla á 500 ml af rauð-
rófusafa á dag hafi veruleg og mælanleg
áhrif. Þessi mælanlegu áhrif hafi komið
fram hvort sem rannsóknirnar hafi verið
gerðar á venjulegum einstaklingum eða
íþróttamönnum í toppformi.
Tekið er fram að nítratið í rauðrófun-
um skemmist við hitun. Þess vegna komi
ávinningur fyrir hjarta- og æðakerfi
einungis í ljós þegar hrárra rauðrófa eða
kaldpressaðs rauðrófusafa sé neytt.
Lögð er áhersla á að þeir sem eru með
háþrýsting og taki inn lyf prófi sig áfram
með rauðrófusafann í samráði við lækni.
Steinar B. Aðalbjörnsson næringarfræðingur gefur ráð um hollan lífsstíl á vefsíðu sinni:
Rauðrófur sagðar geta lækkað blóðþrýsting
RAUÐRÓFUSAFI
Ávinningur fyrir
hjarta- og æðakerfi
kemur einungis í ljós
þegar hrárrar rauðrófu
eða kaldpressaðs rauð-
rófusafa er neytt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sunnudagar
Á sunnudögum kl. 15
er alltaf ei hvað um að vera í aðalsafni, Tryggvagötu 15
fyrir börn og ölskyldur. þeirra
www.borgarbokasafn.is
eru barnadagar
1. desember
Sögustund,
Mektarkö urinn Ma hías og orðastelpan.
Kris n Argrímsdó r les úr nýrri bók sinni.
8. desember
Þrjú bíó
Við horfum saman á skemm leg jóla-
mynd.
15. desember
Föndursmiðja
í umsjá Kris nar Arngrímdó ur
myndlistarkonu.
Í FÓTBOLTA Börn
þurfa að reyna á sig
í að minnsta kosti
eina klukkustund á
dag samtals.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
lÍs en ku
ALPARNIR
s
www.alparnir.is
GLERÁRGÖTU 32, AKUREYRI, SÍMI 461 7879 • KAUPVANGI 6, EGILSSTAÐIR, SÍMI 471 2525 • FAXAFENI 8, REYKJAVÍK, SÍMI 534 2727
Góð gæði
Betra verð
Tökum notaðan skíða- og
brettabúnað upp í ný
Skíða- og snjóbrettapakkar
20% afsláttur
• Svigskíði
• Fjallaskíði
• Gönguskíði
• Snjóbretti