Fréttablaðið - 04.02.2014, Page 33

Fréttablaðið - 04.02.2014, Page 33
Höfundur flytur erindi um efnivið bókarinnar í útgáfuhófi fimmtudaginn 6. febrúar kl. 16:00, á Reykjavíkurskrifstofum Bifrastar, Hverfisgötu 4-6 (5. hæð). Allir eru velkomnir. Bókin er m.a. fáanleg í Bóksölu stúdenta og á Amazon. Í nýrri bók frá hinni virtu alþjóðlegu útgáfu, Palgrave Macmillan, fjallar dr. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, um aðdraganda efnahagshrunsins árið 2008 og atburðarásina frá þeim tíma. Dr. Eiríkur rekur hvernig Ísland reis í alþjóðlegum viðskiptaheimi og hvernig hrunið hafði áhrif langt út fyrir landsteinana. Kafað er ofan í grundvöll íslenskra stjórnmála og efnahagslífs en í bakgrunni eru stórar spurningar um hagkerfi þjóðríkja í alþjóðavæddum heimi. „... meistaraleg tök á efnivið sem nær frá fjármálabólum til póst- módernískrar sjálfsmyndar ... Sannarlega frumlegt framlag til stjórn- málahagfræðilegs skilnings á fjármálakrísunni.“ Dr. Magnus Ryner, prófessor í stjórnmálahagfræði við Lundúnaháskóla, Kings College. „... skyldulesning fyrir hvern þann sem reynir að skilja nýliðna atburði á Íslandi en hefur einnig mun víðari skírskotun, grundvallar- rannsókn á alþjóðlegu fjármálakrísunni og því hvernig lýðræðisríki geta brugðist við henni.“ Dr. Fredrik Sejersted, prófessor í Evrópurétti við Oslóarháskóla. „... nauðsynleg lesning til skilnings á efnahagskrísunni sem enn hefur áhrif á mest allt Atlantshafssvæðið.“ Dr. Federiga Bindi, prófessor í stjórnmálafræði við Rómarháskóla. Ísland og fjármálakreppan Ris, hrun og endurreisn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.