Fréttablaðið - 04.02.2014, Síða 38
4. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 30
3.000
virkir notendur eru á vef-
síðunni Makaleit sem var
opnuð í mars í fyrra.
„Uppáhalds Gíslinn minn er Gísli
Einarsson, oft kenndur við Nexus,
sem hefur flust í Nóatún. Hann er
mikill kaffiandstæðingur, en ég
vil að hann komi upp kaffihorni í
Nexus.“
Marteinn Þórsson kvikmyndagerðarmaður.
BESTI GÍSLINN
„Hugsunin á bak við vefinn er að
hjálpa fólki að komast út úr einver-
unni og hann er fyrir fólk á öllum
aldri frá átján ára,“ segir Björn Ingi
Halldórsson, hönnuður vináttusíð-
unnar vinur.is. Vefsíðan var opnuð
25. janúar en á vefnum geta einstak-
lingar fundið vini á svipuðum aldri
og með svipuð áhugamál.
„Viðbrögðin hafa verið vonum
framar. Á þessum fáu dögum hafa
150 notendur skráð sig,“ segir Björn
en hann er líka hönnuður stefnumó-
tasíðunnar Makaleit.
„Ég er búinn að vera með maka-
leit.is í bráðum ár. Ég hef feng-
ið nokkra tölvupósta frá fólki sem
hefur viljað skrá sig á Makaleit en
ekki gert það því það var að leita
meira að vini en ástarsambandi.
Þannig vaknaði hugmyndin að
vinur.is því það er fullt af einmana
fólki sem situr eitt heima hjá sér
og liggja þar alls konar ástæður að
baki,“ segir Björn.
Á vinur.is geta notendur skil-
greint hvernig vini þeir leita að og
aðeins séð þann hóp. Þá geta notend-
ur einnig sett inn smáauglýsingar ef
þeir leita sér að félaga á sérstakan
viðburð, í íþróttaiðkun eða í ferða-
lag svo dæmi séu nefnd. Það kostar
ekkert að skrá sig á vefinn en eins
og með makaleit.is fara allir notend-
ur í gegnum samþykktarferli til að
sporna gegn því að vefurinn sé mis-
notaður. Björn nýtur sín í starfinu,
bæði sem sambands- og vináttu-
miðlari.
„Ég hef fengið ófáa tölvupósta
frá notendum Makaleitar sem hafa
fundið ástina. Það er hvatning fyrir
mig að halda áfram á þessari braut
og tengja þá sem eru vinalausir.“
- lkg
Tengir einmana Íslendinga
Björn Ingi hefur opnað vefi nn Vinur þar sem landsmenn geta fundið sér vin.
„Við bjuggum til vélmennið okkar,
hann Krúttmund, úr legókubbum
og við forritum hreyfingar hans
í tölvu, í gegnum Mindstorms-
hugbúnaðinn sem Lego hannaði,“
segir Ingibjörg Ósk Jónsdóttir,
nemi í hugbúnaðarverkfræði við
Háskólann í Reykjavík. Ásamt
Ingibjörgu Ósk stofnuðu þær
Helga Guðmundsdóttir, Áslaug
Eiríksdóttir, Elísabet Guðrúnar-
og Jónsdóttir kvenfélagið /sys/tur
innan tölvufræðideildar Háskól-
ans í Reykjavík en fleiri stúlkur
eru í félaginu. Þær ætla að vera
með sýningarbás á UTmessunni
sem fram fer næsta laugardag í
Hörpu og kynna þar sínar hug-
myndir og verkefni.
Fólki býðst kostur á að stýra
vélmenninu Krúttmundi og getur
hann framkvæmt ýmislegt, hann
er til að mynda lipur dansari. „Við
erum með ýmislegt annað fyrir
utan Krúttmund. Við ætlum að
sýna magnaða hluti sem fram-
kvæmdir eru með Raspberry Pi-
smátölvum,“ útskýrir Ingibjörg
Ósk. Um er að ræða smátölvu
sem getur látið nánast allt gerast.
„Tölvan var upphaflega búin til til
þess að kenna börnum forritun í
Bretlandi.“
Einnig ætla þær að leyfa gestum
og gangandi að prófa Raspberry Pi-
tölvuna sem notast við stýrikerfið
Raspbian og þar er að finna leiki á
borð við Snake, Tetris og fleiri leiki.
„Við höfum einnig gert Raspberry
Pi-tölvuna að Nintendo-tölvuhermi,
þar verður hægt að spila marga af
vinsælustu NES- og SNES-leikjun-
um.“ Vélin verður tengd tölvuskjá,
ásamt því að leikjafjarstýringar
verða á staðnum og geta því gestir
fengið að spila leiki og um leið rifjað
upp æskuminningar sínar. - glp
Krúttmundur sigrar
hjörtu landsmanna
Kynna Krúttmund á UTmessunni sem fram fer næstu helgi.
DÁSTA AF KRÚTTINU Meðlimir kvenfélagsins /sys/tur f.v. Margrét Sesselja
Kristjánsdóttir, Ingibjörg Ósk Jónsdóttir, Áslaug Eiríksdóttir, Elísabet Guðrúnar- og
Jónsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og Guðrún Inga Baldursdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Við höfum einnig
gert Raspberry Pi-tölvuna
að Nintendo-tölvuhermi,
þar verður hægt að spila
marga af vinsælustu
NES- og SNES-leikjunum.
Ingibjörg Ósk Jónsdóttir
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GEFANDI STARF
Björn parar saman
fólk á öllum aldri.
Draumaferð á hverjum degi
Ef þú vilt sparneytinn og rúmgóðan fjölskyldubíl sem kemur skemmtilega á óvart er óþarfi
að leita lengra. Nýr Mercedes-Benz B-Class eyðir frá 4,1 l/100 km í blönduðum akstri og
mengar svo lítið að hann fær frítt í stæði í Reykjavík í 90 mínútur. Gerðu allar ferðir að
draumaferðum á Mercedes-Benz B-Class.
Hjá Öskju á Krókhálsi 11 bíður þín glæsilegur B-Class til sýnis og reynsluaksturs.
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Mercedes-Benz B-Class 160 CDI,
dísil, beinskiptur 6 gíra. Verð frá 4.790.000 kr.
Sjá myndband af Krúttmundi
dansa á Vísi.
visir.is
Íslenskri kvikmyndagerð var gert
hátt undir höfði á kvikmyndahátíð-
inni í Gautaborg.
Hross í oss, eftir Benedikt Er-
lingsson, var í aðalkeppni hátíðar-
innar ásamt myndinni Málmhaus
eftir Ragnar Bragason. Meðal
Íslendinga á hátíðinni var Þor-
björg Helga Dýrfjörð, aðalleikkon-
an í Málmhaus, en frammistaða
hennar á hvíta tjaldinu vakti sér-
staka athygli á hátíðinni.
„Ég var í Gautaborg til að fylgja
eftir myndinni. Bæði Málmhaus
og Hross í oss voru í aðalkeppninni
þannig að hér eru staddir aðstand-
endur beggja mynda sem og aðrir
Íslendingar sem komu að hátíðinni
á einn eða annan hátt,“ segir Þor-
björg.
Hún segir Gautaborgarhátíðina
hafa verið mjög skemmtilega en
Ísland var í brennidepli á hátíð-
inni í ár. „Hjaltalín hélt tónleika
á miðvikudagskvöldið sem voru
rosalega vel heppnaðir. Við Benni
[innskot blaðamanns: Benedikt
Erlingsson] fengum svo að stíga
okkar fyrstu skref sem plötusnúð-
ar og það var ekki leiðinlegt að sjá
Svíana dilla sér við Pamelu í Dall-
as,“ segir Þorbjörg, létt í bragði.
„Baltasar kom til að taka á móti
heiðursverðlaunum og hélt svo-
kallaðan „masterclass“ sem var
mjög áhugaverður,“ bætir Þor-
björg við og segir Ara Eldjárn
einnig hafa slegið í gegn sem
kynnir á verðlaunaafhendingunni
á lokakvöldinu.
Málmhaus og Hross í oss voru
sýndar þrisvar á hátíðinni, sem og
aðrar íslenskar bíómyndir, bæði
gamlar og nýjar. „Undirtektirn-
ar voru mjög góðar og margir
eru gáttaðir á því hvernig Íslend-
ingar ná að framleiða svona mikið
af góðum bíómyndum,“ segir Þor-
björg.
Málmhaus er nú komin með
dreifingaraðila í Svíþjóð. „Það er
auðvitað mjög gott út af fyrir sig.
Það var einmitt mikið rætt á hátíð-
inni hversu sorglega lítið væri um
dreifingu mynda frá Norðurlönd-
um innan Norðurlandanna. Svíar
eru mikil metal-þjóð og kunna
að meta gott sósíaldrama þann-
ig að ég er full tilhlökkunar að
frumsýna myndina hérna úti í lok
febrúar.“
Þorbjörg er tilnefnd til Edd-
unnar fyrir hlutverk sitt í Málm-
haus. „Það er mikill heiður að
vera tilnefndur til Eddunnar og
sérstaklega ánægjulegt af því að
mér þykir svo vænt um þetta hlut-
verk. Það verður gaman að hitta
Málmhaus-hópinn aftur og gleðj-
ast saman á þessari uppskeruhá-
tíð sjónvarps og kvikmyndagerð-
arfólks,“ segir Þorbjörg að lokum.
olof@frettabladid.is
Íslendingar áttu
Gautaborgarhátíðina
Þorbjörg Helga Dýrfj örð, Baltasar Kormákur, Benedikt Erlingsson og Ari Eldjárn
stálu senunni á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg sem lauk nýlega.
Í GAUTABORG Þorbjörg Helga er stödd
á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg til
að fylgja eftir kvikmyndinni Málmhaus.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ég og Benni fengum
svo að stíga okkar fyrstu
skref sem plötusnúðar og
það var ekki leiðinlegt að
sjá Svíana dilla sér við
Pamelu í Dallas.