Fréttablaðið - 20.03.2014, Síða 25

Fréttablaðið - 20.03.2014, Síða 25
FIMMTUDAGUR 20. mars 2014 | SKOÐUN | 25 Í leiðara Fréttablaðsins 11. mars sl. „Hreinleikinn reynist goðsögn“ er fjallað um niðurstöðu úttektar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) á opinberu eftirliti með alifuglasláturhúsum og -afurðastöðvum. Það sem fram kemur í leiðaran- um er rétt varðandi úttekt- ina en því miður dregur leiðarahöfundur ranga ályktun í lok leiðarans þegar hann skrifar „Skýrsla ESA er hins vegar enn ein staðfesting þess að hreinleiki íslenzka ofur- kjúklingsins er bara goðsögn“. Hér að neðan eru færð rök fyrir því að þessi fullyrðing er röng. Ísland hefur tekið upp matvæla- löggjöf ESB og því gilda sömu regl- ur hér og í ESB um sláturhús og afurðastöðvar. ESA kemur fimm til sex sinnum á ári til Íslands og kannar hvort opinberir aðilar framfylgi matvælareglum ESB. Úttektirnar koma misvel út og ætíð er brugðist við athugasemdum ESA og hefur Matvælastofnun þegar lagt fram aðgerðaráætlun þar um. Almenn regla við innleiðingar ESB-reglugerða er að landið getur nýtt sér að setja eða viðhalda strangari reglum en ESB-reglurn- ar kveða á um og það gerði Ísland þegar matvælalöggjöfin var inn- leidd að fullu 1. nóvember 2011. Varðandi framleiðslu alifugla- afurða gilda hér á landi strangari reglur um salmonellu og kampýló- bakter og stuðla þær að örugg- ari alifuglaafurðum á markaði en tíðkast hjá ESB. Þessar séríslensku reglur færa vöktun og varnir vegna súnu- sjúkdóma (sjúkdómar sem berast milli dýra og manna) framar í framleiðslukeðjuna, þ.e. betur er fylgst með uppeldi kjúklinganna á búunum og harðari viðbrögð eru við uppkomu smits en reglur ESB gera ráð fyrir. Af þessari ástæðu var minni áhersla lögð á heilbrigðisskoðun kjúklinga hér á landi síðar í fram- leiðslukeðjunni (alifuglaslátur- húsum og –afurðastöðvum), því tekið hefur verið á málum varðandi matvælaöryggi framar í keðjunni. Þetta skýrir flestar athugasemdir sem ESA gerði í sinni úttekt, en afsakar þær ekki. Hér fyrir neðan er gerð grein fyrir hvers vegna það er staðreynd, að íslenskur kjúklingur er öruggari matvara en ESB fram- leiddur kúklingur, en ekki bara goðsögn. Kampýlóbakter Hjá ESB gilda engar reglur um kampýlóbakter í kjúklingum sem þó er algengasta orsök iðrasýk- inga í fólki í Evrópu, en vitað er að smitaðir kjúklingar eru helsta orsök sýkinga. Á Íslandi eru mjög strangar reglur um kampýlóbakter og sýkingar í fólki hér á landi eru fátíðar. Kampýlóbakter í íslenskum kjúklingum hefur verið vel undir 5% undanfarin ár en er yfirleitt 30–50% og allt upp í 80% í kjúk- lingum á markaði í Evrópu. Áður en íslensku reglurnar voru sett- ar var íslenskur kjúklingur álíka smitaður og ESB-kjúklingur og mikill fjöldi fólks sýktist, minni í því sambandi á faraldurinn 1999. Íslensku reglurnar eru einfald- ar, allir eldishópar kjúklinga eru rannsakaðir fyrir slátrun, ef hópur reynist smitaður af kampýlóbakter þá verður að frysta allar afurðir þess hóps því frysting fækkar bakt- eríunni um 90%. Íslendingar vilja hins vegar kaupa ófrysta kjúklinga, því gera alifuglabændur allt sem þeir geta til að framleiða kampýló- bakterfría kjúklinga. Það er erfitt verk. Alifuglabændum hefur tek- ist svo vel upp að Ísland er fyrir- mynd annarra Evrópuþjóða. Leit- að er í íslenska smiðju um hvernig í ósköpunum við höfum farið að þessu, okkur er boðið til annarra landa til að kynna íslensku „frysti- regluna“ sem skilað hefur svo mikl- um árangri í að fækka sýkingum í fólki. Salmonella Hjá ESB gilda viðamiklar reglur um salmonellu, í Skandinavíu gilda enn strangari reglur og hér á landi eru reglurnar strangastar hvað varðar kjúklinga. Ísland fylgir sömu sýnatökuáætlunum og ESB-reglur segja til um, en mismunurinn liggur í viðbrögðum við niður stöðum rann- sóknanna. Yfir tvö þúsund tegund- ir eru þekktar af salmonellu, sumar hættulegri en aðrar. ESB-reglurn- ar fyrirskipa viðbrögð við aðeins tveimur tegundum í kjúklingum (S. typimurium og S. enteritidis), en þær eru taldar valda um 70% salmonellusýkinga í fólki. Finnist þessar tegundir í ESB-sláturhúsi eða afurðastöð þá ber að leita skýr- inga, þrífa og sótthreinsa, en finnist þær í kjúklingum á markaði ber að innkalla (nýlega tekið gildi). Hér á landi er hins vegar brugð- ist við öllum tegundum salmonellu (ekki bara tveimur) og brugðist hart við á öllum stigum framleiðslunnar. Finnist salmonella í eldishópi hér á landi er óheimilt að senda hann til slátrunar og öllum fuglum í hópnum er fargað og allt urðað. Finnist salmonella í sýnum teknum í slátur- húsi hérlendis eru afurðir hópsins innkallaðar og það sama gildir ef salmonella finnst á markaði. Svipaðar reglur eru í skandi- navísku löndunum en ekkert þeirra bannar þó slátrun salmonellu- smitaðra hópa eins og tíðkast hér. Það er rétt að aukning hefur orðið á salmonellu í alifuglum undan farin ár, en íslensku reglurnar koma að mestu í veg fyrir að hóparnir kom- ist alla leið á markað, en aldrei er hægt að koma algerlega í veg fyrir það. Með vísan til þess sem að ofan greinir er hreinleiki íslenska kjúklingsins engin goðsögn, það er einfaldlega staðreynd sem Íslend- ingar ættu að standa vörð um. Að framleiða örugg matvæli sparar þjóðarbúinu kostnað sem til fellur vegna sýkinga í fólki, að ónefndum þjáningum sem fólk verður fyrir. Fyrir áhugasama er nánari upplýsingar að finna í ársskýrslum Matvælastofnunar og ársskýrslum EFSA um súnur (Matvælaöryggis- stofnun Evrópu). Hreinleikinn er staðreynd – ekki goðsögn Orðið fötlun segir okkur að sá sem hefur hana hefur ekki sömu getu og sá sem hefur hana ekki. Þó er ekki þar með sagt að þeir sem hafa fötlun sem sinn lífs- förunaut séu allir með sömu getu eða vangetu. Þ.a.l. megum við ekki fest- ast í þeirri hugsun hver sé þeirra réttur, heldur vinna út frá því hver þörf viðkomandi sé. Gott dæmi um þetta er NPA, notenda- stýrð persónuleg aðstoð. Sú þjón- usta hentar sumum en þó alls ekki öllum. Sumir fatlaðir geta t.d. verið einir og að stórum hluta bjargað sér sjálfir. Svo eru líka hinir sem hafa alls enga getu til þess. Þann hóp þurfum við að líta betur á og hlúa betur að. Þegar einstaklingur getur ekki verið einn þýðir það að hann þarf að þiggja aðstoð frá öðrum aðila, ekki bara stundum heldur alltaf. Hann hættir ekki að vera fatl- aður þegar t.d: ■ skammtímavistanir loka á dag- inn ■ frí er í skólum ■ hann verður fullorðinn í augum kerfisins ■ ófyrirséðir atburðir gerast eins og t.d. verkföll hjá hans umönnun- araðilum ■ málefni hans flytjast milli ríkis og sveitarfélaga Við sem erum svo lánsöm að fá leyfi til að fara í gegnum þetta líf án þess að vera svona gífurlega háð öðrum eigum að sinna þessum þörfum þeirra. En ábyrgðin liggur fyrst og fremst hjá þeim aðilum sem hafa sína skrifstofu og funda um þessi málefni á fullum launum. Ekki hjá foreldrum þessara einstaklinga né umönnunaraðilum. Þessir aðil- ar eiga að fá leyfi til að sinna sínu hlutverki eftir bestu getu, þ.e. að létta þeim fatlaða lífið. Það er ill- framkvæmanlegt ef öll orkan fer alltaf í baráttu við kerfið. Að loka í sífellu augunum fyrir þessum vanda og lifa í þeirri trú að fötlunin hverfi má líkja við: ■ að glæpir hverfi verði fangels- um lokað ■ að slys og sjúkdómar hverfi fari læknar í verkfall ■ að börnin okkar standist PISA- könnun láti kennarar sig hverfa. Fötlunin er og mun vera til stað- ar. Nú spyr ég formann velferðar- ráðs Reykjavíkur, Björk Vilhjálms- dóttur, hvað ætlið þið að gera til að leysa þennan vanda? Nú er verk- fall og mörg fötluð ungmenni hafa enga þjónustu, a.m.k. hluta úr degi. Þau geta heldur ekki nýtt sér skammtímavistunina sína til fulls. Að vera fatlaður í verkfalli Hvert og eitt okkar sem fylgist með stjórnmálum spyr sig fyrr eða síðar hvort lýðveldið virki eins og vera ber. Hvort þing- bundna stjórnin sé jafnan skilvirk, heiðarleg, sann- gjörn og hliðholl almenn- ingi. Hvort hátt í sjötíu ára vegferð sem endaði næstum í þjóðargjaldþroti beri vitni um nægilega lýðræðis lega stjórnarhætti. Hvort þá þurfi að bæta. Eflaust eru skoðanir harla skiptar og svörin margvísleg. Ómöguleikinn er flókinn Nú hefur hugtak bæst í lýðræðis- umræðuna: Ómöguleiki. Hann á við sumt en ekki annað. Það er til dæmis ekki ómögulegt að líta svo á að tveir flokkar hafi fengið óskorað umboð allra kjósenda sinna til þess að slíta viðræðum um aðildarsamn- ing að Evrópusambandinu. Þar með er ómögulegt að kjósendur hafi kosið flokkana út á stök önnur mál en ekki andstöðu við EB-aðild, í ljósi þess að flokkarnir lofuðu fyrir kosningar (og framámenn þeirra eftir kosningar) að við öll mættum velja hvort viðræðum væri haldið áfram eða ekki. Um leið er ómögu- legt að útskýra af hverju óþægilega margir kjósendur sömu flokka eru nú að fjasa um að fá að kjósa um hvort viðræðunum skuli haldið áfram eða ekki. Auðvitað er ómögulegt að kjós- endur sem vilja láta ljúka við- ræðunum (eða geyma í salti) geti verið fleiri en þeir sem vilja slíta þeim. Líka er ómögulegt að horfa til nokkurra skoðanakannanna í einu og draga rökréttar ályktanir. Enn ómögulegra er að kanna vel vilja landsmanna með þjóðarat- kvæðagreiðslu. Hún gæti farið á ómögulegan veg. Betra er að velja þá skoðanakönnun eina sér til stuðnings sem styður ómöguleik- ann í því að ljúka langt komnum alþjóðasamningum er varða fyrir- sjáanlega framtíð. Enda ómögu- legt að nýta sömu samninganefnd og áður, gæta hagsmuna landsins, fylgja næstu samnings- atriðum eftir í nefndum og á fundum Alþingis, í ríkis- stjórn og með hagsmuna- samtökum, stöðva samn- ingsferlið ef allt er í hnút eða klára það ella. Hafa svo aðra þjóðar- atkvæðagreiðslu um aðildarsamn- ing sem þá lægi fyrir. Ómöguleiki myndi blasa við, væri samningur samþykktur með skýrum meiri- hluta atkvæða, eða honum hafnað. … og enn flóknari Enn fremur væri ómögulegt að skila stjórnartaumum ef flokk- arnir treystu sér ekki til að þjóna meirihluta sem veldi áframhaldandi aðildarviðræður. Lýðræði getur ómögulega falist meðal annars í því að stjórnvöld sinni málum á skjön við upphaflega ætlan sína ef nógu margir vilja það. Stjórnmálamenn geta ómögulega kunnað það; hvað þá sætt sig við slík ósköp. Samhliða öllu þessu er líka ómögulegt að hlusta á rök forsvars- manna úr mörgum atvinnugreinum, meðal annars mikilvægra sprota- fyrirtækja, sem vilja ekki slíta þessum ómögulegu EB-viðræðum. Og ómögulegt væri að bíða eftir fleiri háskólastofnanaskýrslum sem geta ómögulega verið gagnlegar. Þær er best að merkja sem ómögu- legar vegna hlutdrægni enda pant- aðar með fyrirfram gefnum niður- stöðum. Fyrirliggjandi skýrslu er síðan ómögulegt að skilja nema á einn veg. Tugþúsundir undirskrifta gegn slitum aðildarviðræðna og með kröfu um þjóðar atkvæðagreiðslu geta loks ómögulega breytt neinu af því að búið er að taka ákvörðun um málslok. Ómöguleikhúsið er enginn farsi þegar á reynir og leikfléttan kann að verða dýr. Ómöguleikhúsið VELFERÐ Kristín Guðmundsdóttir móðir fatlaðs drengs ➜ Sumir fatlaðir geta t.d. verið einir og að stórum hluta bjargað sér sjálfi r. Svo eru líka hinir sem hafa alls enga getu til þess. Þann hóp þurfum við að líta betur á og hlúa betur að. EVRÓPUMÁL Ari Trausti Guðmundsson jarðvísindamaður og rithöfundur ➜ Og ómögulegt væri að bíða eftir fl eiri háskólastofnana- skýrslum sem geta ómögulega verið gagnlegar. LANDBÚNAÐUR Sigurborg Daðadóttir yfi rdýralæknir ➜ Alifuglabændum hefur tekist svo vel upp að Ísland er fyrirmynd annarra Evrópuþjóða. Coke - 2 lítrar 279 punktar Bílasápa með bóni - 1 lítri 399 punktar Kaffibolli 149 punktar Partítilboð á punktaprís á völdum þjónustustöðvum Punktapartí á þjónustustöðvum N1 um allt land. 10 punktar með hverjum lítra af bensíni og dísel. ÍSLE N SK A /SIA .IS E N N 68315 03/14

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.