Fréttablaðið - 20.03.2014, Page 52

Fréttablaðið - 20.03.2014, Page 52
20. mars 2014 FIMMTUDAGUR | MENNING | 40 FIMMTUDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Leiklist 20.00 Leiksýningin Stóru börnin, eftir Lilju Sigurðardóttur, sem frum- sýnt var 2. nóvember síðastliðinn og naut gríðarlega vinsælda gagn- rýnenda sem áhorfenda, snýr aftur í Tjarnarbíó í mars vegna mikillar eftirspurnar. Stóru börnin er líflegt og skemmtilegt sviðsverk sem hreyfir við tilfinningunum og hugsuninni. Í uppsetningu Lab Loka fer úrvalslið leikara með hlutverkin undir stjórn Rúnars Guðbrandssonar: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Árni Pétur Guðjóns- son, Birna Hafstein og Stefán Hallur Stefánsson. Fræðsla 17.15 Annað erindið af þremur um Nýtni og nægjusemi verður flutt. Þá talar Margrét Sigfúsdóttir húsmæðra- kennari um hvernig við getum sparað í heimilishaldinu. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir. Sýningar 12.10 Grafíski hönnuðurinn Lance Wyman heldur erindið A Design Career í dag kl. 12.10 í húsnæði hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskólans að Þverholti 11. Allir velkomnir. 19.30 Margrómuð verðlaunaleik- sýning sem hefur farið sigurför um allan heim. Byggt á hinum frábæru sjónvarpsþáttum Fawlty Towers. Þú kemur í mat í leikhússal Iðnó og færð frábæran þriggja rétta málsverð ásamt því að kitla hláturtaugarnar allsvakalega, því á meðan á borðhaldi stendur mun hinn stórskrýtni Basil, ásamt konu sinni, Sybil og þjóninum frá Barcelona, Manuel þjóna gestum á sinn einstaka hátt. Miðasala á miði. is. Hátíðir 21.00 Friðarsúlan verður tendruð í Viðey. Ljós hennar mun skína öll kvöld vikuna þar á eftir, til 26. mars. Yoko Ono valdi dagsetninguna 20. mars því þann dag árið 1969 gengu þau John Lennon í hjónaband. Dansleikir 12.00 Skelltu þér í Edinborg í hádeg- inu þar sem þér gefst tækifæri á að dansa af gleði yfir vetrinum sem er og vorinu sem er á næsta leiti. Kenn- ari er Annska Arndal sem er einn af tveimur kennurum í 5Rytma dansi á Íslandi. Dansinn hefst kl. 12:00 og stendur til kl. 13:00. Leikrit 19.30 Bróðir minn Ljónshjarta í upp- setningu Leikfélags Selfoss eftir Ast- rid Lindgren. Sýnt fimmtudaginn 20. mars kl. 19.30 í Litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi. Miðaverð 2.000 kr. Tónlist 19.30 Brunnur snilldarverka Mozarts er nær ótæmandi. Hrífandi flautu- konsert hans einkennist af yfir- lætislausum þokka og tækifærum einleikarans til að sýna snilli sína umbúðalaust. Tilhlökkunarefni verður að heyra konsertinn í flutningi Hall- fríðar Ólafsdóttur, fyrsta flautuleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en Hallfríður hefur til margra ára verið leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi. Tónleikarnir fara fram kl 19.30 í Eldborg í Hörpu. Miðasala fer fram á miði.is. 19.30 Sálmari spilar á tónleikum í Háteigskirkju fimmtudaginn 20. mars kl 20:00. Húsið opnar kl 19:30 og er miðasala við inngang. Miðaverð er 1.500 kr. Sálmari er tónlistarhópur ungs fólks sem áður var þekktur sem hljómsveitin Tilviljun?. Markmið hópsins er að styðja við og styrkja kristilegt starf á Íslandi með áherslu á ungt fólk. Hópurinn er því ekki bundinn neinum söfnuði né samtök- um, en flestir meðlimir hópsins til- heyra Þjóðkirkjunni og tengjast mörg okkar starfsemi KFUM og KFUK. 20.00 Sætabrauðsdrengirnir Garðar Thór Cor- tes, Gissur Páll Gissur- arson, Bergþór Pálsson og Viðar Gunnarsson, ásamt Jóhanni G. Jóhannssyni, píanóleikara, slógu rækilega í gegn í Hörpu á Menningar- nótt með bráðskemmtilegri dagskrá og glæsilegum flutningi. Það er því mikið tilhlökkunarefni að þeir munu halda tónleika í Salnum í kvöld. Þeir hefjast klukkan 20.00 og fer miða- sala fram á miði.is. 20.00 Hlómveitinni Bellstop heldur tónleika á Hlemmur Square, Hjónin Elín og Rúnar fara fyrir sveitinni, en þau hafa spilað saman svo árum skiptir. Platan þeirra Karma kom út á Íslandi sumarið 2013 og munu þau flytja lög af henni í bland við önnur eldri lög sveitarinnar og jafnvel ein- hver brakandi ný. Tónlist Bellstop flokkast undir þjóðlagaskotið rokk. 20.00 Tónleikaferð Friðriks Ómars hefst í Grafarvogskirkju í kvöld. Sálmar og saknaðarsöngvar af plöt- unni Kveðja fluttir í kirkjum landsins. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30, nema annað sé tekið fram, en húsið opnar kl. 20.00. Miðaverð er aðeins 2.500 krónur en miðasala er einungis við innganginn. 21.00 Hits&Tits halda uppi hinu margrómaða og víðfræga brjálæðis- stuði á Harlem 20. mars. Konfettir- igning, búningar, props, vindvél og allt samkvæmt stuðbókinni. Vegna mikilla anna hjá stöllunum mun þetta vera síðasta syngjóið í örlítinn tíma. Það er því um að gera að sækja dívubúninginn og byrja að hita radd- böndin. Hits&Tits nota youtube svo það er best að athuga sjálfur hvort að lagið sé til í karókíútgáfu þar. Síðast komust MUN færri að en vildu og því hvetjum við ykkur til þess að mæta snemma. 21.00 Styrktartónleikar fara fram á Gauknum í kvöld. Þar koma fram Morðingjarnir, Strigaskór nr. 42, For a Minor Reflection, Smári Tarfur, LITH og Pandemic Addiction. Tón- leikarnir hefjast klukkan 21.00 og kostar 1.000 krónur inn. Kristinn Arinbjörn Guðmundsson lenti í þeirri hræðilegu lífsreynslu fyrir stuttu að fá heilablóðfall í kjölfar flókinnar heilaskurðaðgerðar. Hann er nú lam- aður í öðrum helmingi líkamans eftir heilablóðfallið og því hafa vinir hans ákveðið að efna til styrktartónleika. 21.00 Tónlistarveisla á Víkinni. Víkin Sjóminjasafnið Í Reykjavík ÍRiS - Útgáfutónleikar PENUMBRA, ásamt Árna Guðjónssyni, Frank Aarnink og Söndru Ósk Snæbjörnsdóttur. Einnig spila Hymnalaya og Minor Times. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00. 1000 kr inn. 21.00 Listakonan Lilja Birgisdóttir heldur tónleika í Mengi ásamt Stein- dóri G. Kristinssyni raftónlistarmanni. Tónleikarnir verða allsherjar tón- listarupplifun þar sem öll skilningar- vit verða virkjuð. Mengi, Óðinsgötu 2. Aðgangseyrir er 2.000 kr. 21.30 Magn- ús R Einarsson heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La- Da, Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis. 22.00 Fimmtudagskvöld á Dillon eru góðir tónleika- dagar. Fram koma, Pungsig og Black Desert Sun. Tónleikarnir hefj- ast klukkan 22.00 og það er frítt inn. 22.00 Hljómsveitirnar Hudson Wayne og Knife Fights koma fram á tón- leikum á Café Ray Liotta (áður Celtic Cross) að Hverfisgötu 26, 101 Reykja- vík. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 22 og það kostar litlar 500 kr. inn. Fyrirlestrar 12.00 Opinn fyrirlestur sem fjallar um þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Í erindinu verður endur- mótunarferlið skoðað og þær hug- myndir um hvað taka skuli við af markmiðunum eftir árið 2015. Guðrún Helga Jóhannsdóttir, doktors- nemi í þróunarfræðum við Háskóla Íslands Fundarstjóri: Svanhvít Aðal- steinsdóttir, sérfræðingur á þróunar- samvinnuskrifstofu utanríkisráðu- neytisins. Fyrirlesturinn fer fram í Oddi 101 í Háskóla Íslands og hefst klukkan 12.00. 12.00 Málstofan Hælisleitendur segja frá verður haldin í dag kl.12:00- 13:00 í stofu 101, Lögbergi í Háskóla Íslands. Málstofan mun fara fram á ensku og aðgangur er öllum opinn. Á málstofunni segja tveir hælisleit- endur frá reynslu sinni af því að vera hælisleitandi á Íslandi. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is Platan Kveðja með Friðriki Ómari Hjörleifssyni kom út í nóvember og varð hún ein sú mest selda á landinu fyrir jólin. Á henni eru sálmar og sakn- aðarsöngvar fluttir af Friðriki Ómari í frábærum útsetningum hans sjálfs og Þóris Úlfarssonar píanóleikara. Vegna mikillar eftir spurnar hefur verið ákveðið að fylgja velgengni plötunnar eftir í kirkjum víðs vegar um landið í mars og apríl. Til að auka á upplifun gesta hefur grafíski hönnuðurinn Ólöf Erla Einarsdóttir hannað hreyfimyndir sem sýndar verða meðan á tónleikunum stendur. Ólöf Erla hefur hlotið ýmsar viðurkenningar hérlendis og erlendis fyrir draumkennda og ævintýralega grafík sína. Saman munu þau sjá til þess að gestirnir upplifi tilfinningaríka stund þegar lög eins og Hærra minn guð til þín, Heyr mína bæn, Kveðja, Söknuður, Í bljúgri bæn og Ave Maria verða flutt af Frið- riki Ómari og félögum. Tónleika- ferð Friðriks Ómars um kirkjur landsins hefst í Grafarvogskirkju í kvöld klukkan 20.30 og er miða- sala við innganginn. - glp Friðrik kveður í kirkjum landsins Friðrik Ómar Hjörleifsson heldur í dag í tónleikaferðalag, þar sem hann heim- sækir fi mmtán kirkjur um allt land. Syngur hann þar sálma og saknaðarsöngva. FERÐALAG FRIÐRIKS Allir tónleikarnir hefjast kl. 20.30 en húsið er opnað kl. 20.00: 20. mars Grafarvogskirkja 26. mars Keflavíkurkirkja 27. mars Hafnarfjarðarkirkja 2. apríl Laugarneskirkja 3. apríl Lágafellskirkja 8. apríl Blönduóskirkja 9. apríl Siglufjarðarkirkja 10. apríl Dalvíkurkirkja 11. apríl Húsavíkurkirkja 12. apríl Vopnafjarðarkirkja (kl. 16.00) 12. apríl Þórshafnarkirkja 13. apríl Norðfjarðarkirkja 14. apríl Seyðisfjarðarkirkja 16. apríl Hafnarkirkja SÁLMAR OG SAKNAÐARSÖNGVAR Friðrik Ómar Hjörleifsson kemur fram á fimmtán tónleikum í fimmtán kirkjum út um land allt. MYND/GASSI Kristinn Arinbjörn Guðmunds- son lenti í þeirri hræðilegu lífsreynslu fyrir stuttu að fá heilablóðfall í kjölfar flókinnar heilaskurðaðgerðar. Hann er nú lamaður öðrum megin í líkam- anum eftir heilablóðfallið og hafa því vinir hans ákveðið að efna til styrktartónleika á Gauknum í kvöld, til að létta undir með Kristni, Helgu Gunnarsdóttur konu hans og Kristjönu Bellu dóttur þeirra í þessum erfið- leikum. Áður hafði hann lengi átt við mjög erfið veikindi að stríða. Á tónleikunum í kvöld koma fram hljómsveitirnar Morð- ingjarnir, Strigaskór nr. 42, For a Minor Reflection, Smári Tarfur, LITH og Pandemic Addiction. Miðaverð á tónleikana er 1.000 krónur og mun allur ágóði af tón- leikunum renna beint til Kristins og fjölskyldu hans. Einnig verða til sölu diskar með hljómsveitinni KAbear, en þar syngur Kristinn og semur hann einnig öll lögin. Plata hans er einnig fáanleg á gogoyoko. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 og eru eins og fyrr segir á Gauknum. - glp Styrkja vin sinn í kvöld Frábærir listamenn koma fram á tónleikum á Gauk- num í kvöld til að styrkja vin sinn og fj ölskyldu hans. KOMA FRAM Í KVÖLD Hljómsveitin Strigaskór nr. 42 kemur meðal annars fram í kvöld. MYND/EINKASAFN ➜ Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 á Gauknum og það kostar 1.000 kr. inn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.