Fréttablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 18
1. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Okkar ástkæra
STEINUNN KRISTÍN ÁRNADÓTTIR
Vatnaseli 3, Reykjavík,
lést 27. mars sl. á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi. Hún verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju föstudaginn 4. apríl kl 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
hjálparstarf fyrir börn í þróunarlöndum.
Sigurður Guðmundsson
Guðrún Steingrímsdóttir
Árni Steingrímur Sigurðsson Pálína Erna Ásgeirsdóttir
Guðmundur Orri Sigurðsson Lilja Sóley Pálsdóttir
Unnar Darri Sigurðsson Stella Rögn Sigurðardóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur og bróðir,
VALGEIR BIRGISSON
Hlíðarhjalla 51, Kópavogi,
lést 26. mars á sjúkrahúsi í Molde í Noregi.
Jarðarförin auglýst síðar.
Valgerður Jóhannesdóttir
Helgi Fannar Valgeirsson Guðrún Þorgerður Jónsdóttir
Jóhannes Ingi Valgeirsson
Birgir Kristjánsson Elín Ellertsdóttir
Helgi Birgisson
Kristján Birgisson
Guðmunda Birgisdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
RAGNA GUÐMUNDSDÓTTIR
Smárahlíð 1d, Akureyri,
lést laugardaginn 22. mars. Útför hennar
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á lyflækningadeild Sjúkrahúss Akureyrar.
Eygló Antonsdóttir
Rúnar Guðmundur Antonsson Hildur Heba Theodórsdóttir
Sigurjón Antonsson
Heiðar Már Antonsson Ellen Rós Baldvinsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra
sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GEIRS KONRÁÐS BJÖRNSSONAR
Kveldúlfsgötu 12, Borgarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar
í Borgarnesi og Sjúkrahússins á Akranesi,
fyrir góða umönnun og hlýju.
Hanna Carla Proppé
María Erla Geirsdóttir Theodór Þórðarson
Ástráður Eysteinsson Anna Jóhannsdóttir
Kristín I. Geirsdóttir Guðgeir Eyjólfsson
Jón Þór Geirsson Kristín Anna Hjálmarsdóttir
Sigríður Lísa Geirsdóttir Marinó Már Marinósson
Gunnar Már Geirsson Dagmar Jóhannesdóttir
afa- og langafabörn.
Elsku konan mín,
BERGLJÓT ÓLAFS
er látin. Útför fór fram í kyrrþey.
Ólafur Björgúlfsson
og fjölskylda.
„Þetta er annað árið sem þessir tón-
leikar eru haldnir. Fyrstu tónleik-
arnir af þrennum fara fram í kvöld
en svo verða þeir næstu tvo mán-
uðina, fyrsta þriðjudaginn í mán-
uðinum,“ segir Ingibjörg Guðjóns-
dóttir, sópransöngkona og listrænn
stjórnandi. „Þetta er hugmynd
sem fæddist hjá mér því ég tengist
bænum. Ég er bæði búsett þar og er
með kvennakór svo ég tengist menn-
ingunni hér í Garðabæ og langaði að
efla hana enn frekar. Þessir tónleikar
eru eitthvað sem er gaman fyrir
bæjarbúa sem og alla á höfuðborgar-
svæðinu.“ Tónleikarnir sem bera
nafnið Þriðjudagsklassík eru haldnir
í tónleikasal bæjarins sem Ingibjörg
segir vera ótrúlega skemmtilegan
fyrir kammertónleika því salurinn
hafi yndisfagran hljómburð. Menn-
ingar- og safnanefnd Garðabæjar
standa að tónleikunum en fram koma
þau Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleik-
ari og konsertmeistari Sinfóníunnar,
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari
og Domenico Codispoti píanóleikari.
„Listamennirnir sem eru í öndvegi
á tónleikunum hafa allir einhvers
konar tengingu við Garðabæ, en á
fyrstu tónleikunum er frekar mikið
dúndur. Sigrún Eðvaldsdóttir og
Bryndís Halla Gylfadóttir hafa fengið
með sér ítalskan heimsklassa píanó-
leikara sem er margverðlaun aður
píanisti úti um allan heim,“ segir
Ingibjörg, um leið og hún hvetur alla
til að mæta og njóta einnar klukku-
stundar og hlusta á fagra hljóma áður
en gengið er út í vorkvöldið á ný. Tón-
leikarnir eru haldnir í sal Tónlistar-
skóla Garðabæjar, Kirkjulundi 11, í
Garðabæ kl. 20. Miðasala er við inn-
ganginn og aðgangseyrir er 1.500
krónur. marinmanda@frettabladid.is
Þriðjudagsklassík
í klukkustund
Sigrún Eðvaldsdóttir fi ðluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Domenico
Codispoti píanisti spila á tónleikum í Tónlistarskóla Garðabæjar í kvöld.
Foreldrar Þorsteinn Guðmundsson
f. 16.10. 1895, d. 22.05. 1957. Kristín
Sigríður Sigurgeirsdóttir f. 08.10.
1898, d. 10.05. 1976. Systkini eru
Guðrún f. 08.10. 1920, d. 18.07. 1921,
Steinunn f. 28.06. 1922, d. 28.03.
2004, Sigurður f. 16.01. 1926, d.
28.09. 1998.
Börn Geirs og Eygerðar eru Þor-
steinn f. 30.09. 1956, kona hans er
Ragnheiður Gunnarsdóttir og eiga
þau þrjú börn, Birnu, Berglind og Geir; Örn f. 06.11.
1959, kona hans er Steinunn Hreinsdóttir og eiga þau
tvö börn, Örn Geir og Eygerði Sunnu. Örn átti áður
þrjú börn, Erlu Dís, Lovísu og Hafdísi; Kristín Sigríður
f. 05.03. 1968, maður hennar er Ársæll Þorleifsson og
eiga þau tvö börn, Gunnar Óla og Hilmar Þór.
Geir lærði húsasmíði við Iðnskólann í Reykjavík, fékk
sveinsbréf 16. nóvember 1952 og meistararéttindi í
húsasmíðum 14. desember 1955. Hann vann fyrst um
sinn í Ólafsvík en kom svo suður og byrjaði að vinna
í Skipasmíðastöðinni Dröfn í Hafnarfirði hjá tengda-
föður sínum, Bjarna Erlendssyni. Hann stofnaði síðan
sinn eigin rekstur ásamt Gunnari Bjarnasyni mági
sínum, unnu þeir við smíðar á hinum ýmsu byggingum
í Hafnarfirði, þar á meðal við stækkun St. Jósefsspít-
ala. Eftir að þeir slitu rekstri fyrirtækisins vann Geir
á trésmíðaverkstæði Byggðarverks.
Útför Geirs Þorsteinssonar fer fram frá Hafnar-
fjarðarkirkju í dag kl. 13.
Elsku pabbi, þín verður sárt saknað, fram undan eru okkar samverustundir í Efstabæ í Vaðnesi um
páska eins og áður. Uppáhaldstónlistin þín í spilaranum
og góður matur með þér og mömmu.
Á þessum tímamótum koma okkur systkinum í huga
allar samverustundirnar í sumarbústaðnum, frásagnir
þínar af uppruna þínum og æskuárum í Ólafsvík, sögur
af sveitastörfum, vinnu í vegavinnunni og margt fleira.
Pabbi okkar kom til Hafnarfjarðar 1957 frá Ólafsvík,
þar sem hann og mamma höfðu búið um tíma hjá for-
eldrum hans.
Þegar pabbi kom suður bjuggu hann og mamma fyrst
um sinn hjá ömmu og afa á Suðurgötu 49. Með vinnu
sinni í Dröfn hóf hann smíðar á heimili okkar að Álfa-
skeiði 54. Við bjuggum í kjallaranum en efri hæðina
seldi hann. Það lýsir honum vel hve harður hann var
alla tíð við sjálfan sig til vinnu. Efnið í húsið flutti hann
að mestu leyti á bakinu eða á reiðhjóli frá Dverg upp
á Álfaskeið. Við bræðurnir minnumst góðra stunda á
Álfaskeiðinu. Árið 1964 flutti fjölskyldan að Þrasta-
hrauni 2, þar fæddist litla systir. Þar byggði pabbi
okkur heimili og þar fór vel um okkur öll. Síðar fluttu
pabbi og mamma á Hringbraut 2a.
Áhugamál fjölskyldunnar voru meðal annars útileg-
ur og veiðitúrar í Gíslholtsvatni. Ekki má gleyma ferð-
um okkar til Ólafsvíkur á sumrin að heimsækja ömmu
Kristínu og fjölskyldu.
Tæplega fimmtugur fór pabbi að glíma við hjarta-
sjúkdóm. Árið 1981 fór hann til London í sína fyrstu
hjartaaðgerð sem heppnaðist vel og síðan 13 árum síðar
í aðra hjartaaðgerð á Landspítalanum. Hann glímdi við
þessi veikindi frá þeim tíma en bar sig alltaf vel. Þessi
veikindi voru til þess að honum var ráðlagt að hætta að
vinna um 63 ára aldur.
Pabbi hefur alltaf þurft að hafa eitthvað fyrir stafni
þannig að árið 1991, þegar hann átti að fara að slaka á,
keyptu mamma og pabbi sumarbústaðalóð í Vaðnesi í
Grímsnesi og draumur hans um afdrep í sveitinni varð
að veruleika. Fjölskyldan hefur síðan átt mjög góðar
stundir í Vaðnesi þar sem gamli klappaði hverri spýtu
og hélt öllu við eins og honum var einum lagið. Páskar,
verslunarmannahelgi og fleiri góðar stundir eru góðar
minningar með pabba og mömmu í Vaðnesi.
Ferðin til Portúgals þegar pabbi varð sjötugur er sér-
staklega góð minning fyrir okkur öll og oft talað um
þá ferð hjá okkur systkinunum, mikið hefur verið horft
á myndbönd frá þeirri ferð með mömmu og pabba í
bústaðnum.
Við þökkum fyrir allt sem þú kenndir okkur í lífinu,
elsku pabbi.
Hvíldu í friði.
Þorsteinn, Örn og Kristín
Geir Þorsteinsson
f. 13. september 1931 í Ólafsvík.
Minning
Elsku maðurinn minn, pabbi, tengdapabbi
og afi,
FRIÐRIK THEODÓRSSON
lést föstudaginn 28. mars.
Þeim sem vilja minnast hans er
vinsamlegast bent á að styrkja Lúðrasveit
Reykjavíkur, kt. 440269-1929, reikn.nr. 0137-26-10090.
Edda Völva Eiríksdóttir
Hildur Friðriksdóttir Jóhannes Albert Sævarsson
Hrefna Friðriksdóttir Hörður Sigurðarson
Halla Rún Friðriksdóttir Jón Benóný Reynisson
barna- og barnabarnabörn.
TÓNLEIKAR Í GARÐABÆ Bryndís Halla Gylfadóttir, Domenico Codispoti og Sigrún Eðvalds-
dóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR