Fréttablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 01.04.2014, Blaðsíða 38
1. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 34 „Hann kemur hingað frá Noregi, búinn að vera þar að gigga í nokk- ur ár, svo eftir sumarið fer hann aftur heim,“ segir Margrét Erla Maack í Sirkus Íslands. Sirkusinn mun ferðast um landið í sumar og með í för verður sirkusbjörn, sem getur húlað og hjólað. Í dag verður ókeypis í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn milli klukkan 16 og 17 fyrir alla þá sem mæta með bangsana sína og geta gestir barið sirkusbjörninn augum. „Hann getur líka ýmislegt fleira en við þurfum að sjá til hversu vel hann treystir okkur, og hvern hann velur til að verða vin sinn. Ég vona að það verði ég, en ætli það verði ekki Daníel (Hauksson, sirkus- listamaður) sem hann velur,“ bætir Margrét Erla við. Þjálfari og eig- andi bjarndýrsins kemur með og kynnir hann fyrir sirkusmeðlim- um. Björninn kemur úr sóttkví í dag, þriðjudag, og þar til ferðalagið hefst í júní verður hann í Húsdýra- garðinum. „Við erum í samstarfi við Fjölskyldu- og húsdýragarð- inn með björninn okkar. Það hent- ar okkur mjög vel, við æfum þarna í næsta nágrenni,“ segir Margrét. Tómas Óskar Guðjónsson hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er spenntur fyrir verkefninu. „Við höfum verið að víkka aðeins sjóndeildarhringinn með til dæmis eðlum og einum snák. Þetta er stórt verkefni og er ágæt- is æfing fyrir þennan ísbjörn sem var lofað fyrir nokkrum árum. Sirkusbjörn er þó mun gæfara og viðráðanlegra dýr en ísbjörn, enda taminn.“ „Það hefur verið erfitt að halda þessu leyndu, en við vildum ekk- ert segja fyrr en það væri alveg hundrað prósent á tæru að björn- inn væri unninn,“ segir Lee Nelson sirkusstjóri. „Bæði hefði ýmislegt getað komið fyrir á ferðalaginu til landsins og síðan var mikill reglu- gerðartangó við Matís.“ TVG Zim- sen flutti björninn til landsins og líka sirkustjaldið sem verður nýtt á ferðalaginu í sumar. „Þetta er án efa eitt óvenjuleg- asta og skemmtilegasta verkefni sem TVG-Zimsen hefur tekið þátt í. TVG-Zimsen mun sjá um alla skipulagningu, framkvæmd og flutning á búnaði og birni fyrir sirkusinn,“ segir Björn Einarsson, framkvæmdastjóri TVG-Zimsen. En fær björninn íslenskt nafn? „Hann heitir Bamse, en ætli við köllum hann ekki bara Bangsa,“ segir Margrét. Bangsi er mikil félagsvera og er búinn að vera ein- mana í sóttkvínni að sögn hennar. Því vill Sirkus Íslands kynna hann fyrir ungum sem öldnum í Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum í dag. liljakatrin@frettabladid.is Fyrsti íslenski sirkus- björninn til sýnis Sirkus Íslands býður fólki að sjá björninn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag. Björninn kemur frá Noregi og heitir Bamse en verður kallaður Bangsi. EINMANA Í SÓTTKVÍ Björninn kemur úr sóttkví í dag og því vill Sirkus Íslands kynna hann fyrir landsmönnum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá klukkan 16 til 17. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL The Coocoo‘s Nest á Grandagarði 23 er í uppáhaldi og þar eru falar myndir eftir kærustu mína, Hörpu Einars. Snorri Engilbertsson leikari BESTI BITINN Hann getur líka ýmislegt fleira en við þurfum að sjá til hversu vel hann treystir okkur, og hvern hann velur til að verða vin sinn. Ég vona að það verði ég. Margrét Erla Maack „Þetta var nú bara Facebook-áskor- un frá Hanna trommara, ég legg það nú ekki í vana minn að klæð- ast svona Buffalo-skóm,“ segir Her- bert Viðarsson, bassaleikari Skíta- mórals, en hann stal senunni með því að vera í hvítum Buffalo-skóm á dansleik sem sveitin kom fram á um liðna helgi á skemmtistaðnum Spot. Skórnir, sem voru skjanna- hvítir, vöktu mikla athygli enda talsverður tími síðan Buffalo-skór voru í tísku en þeir voru alls ráð- andi í skótísku landsmanna um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. „Ég keypti skóna í Þýskalandi fyrir um tveimur árum. Við Gunni Óla vorum þar í menningarferð og keyptum þá á sígaunamarkaði í Frankfurt, þeir voru allavega ónot- aðir og lúkka vel,“ segir Herbert um skóna en hann fékk þó engan kjánahroll yfir að vera í þeim um helgina. Voru meðlimir Skítamórals ekki allir miklar Buffalo-aðdáendur á sínum tíma? „Við vorum aldrei í Buffalo-skóm en við vorum meira í Swear-skóm úr Gallabuxnabúð- inni, þeir voru sverari en Buffalo- skór og voru líka háir.“ Herbert segir allt geta gerst næst þegar Skítamórall kemur fram. „Það er aldrei að vita hvað gerist næst, þetta var bara áskor- un sem ég tók, kannski skora ég á Hanna að spila í bleikum netbol á næsta balli,“ segir Herbert léttur í lundu. - glp Hvítir buff alo skór stela senunni Herbert Viðarsson, bassaleikari Skítamórals, stal senunni þegar sveitin kom fram á Spot á laugardagskvöld, þegar hann klæddist hvítum Buff alo-skóm. GEGGJAÐIR SKÓR Herbert Viðarsson er hér í glæsilegu hvítu Buffalo-skónum sínum. MYND/DJ ATLI PAAPAAAAAPAAAPAPPPAAPAPPPPP RRRRRRRRRRR \\\\\\\\\\T BW A TB W A A W A W A W A TB W A BWBWWWTB WWBWTBT •• AAA AAAAAAAAAAAAAAAAAAAA S ÍAAASÍ A SÍ A S ÍA SS •••••••••••• 30 95 30 95 13 09 5 13 09 5 13 09 5 30 9 1313 444 11 IP A R\ PI PA R\ PA R\ PI PA R\ A R\ PI PA R PI PA R PI PA R PA PI PA PI PA PI PIPI PIPIIPIPIPIIPIIPIPIPIPPPPPP TT AAAAAAAA BW A W AA BW AA BW AA • SÍ A ••• S A • SÍSÍ A SÍ A • •• S ÍA • S ÍAÍÍÍSÍ A •• SÍ A • Í •••••••••• PI PPPPPIPPI P PI P PI PP PI PPPPP PI PPPIPIPPI P PI P PI PIIIIIPPPPPPI PPPIPPI P PI PP PI PPP PI PPIPPI P PI P PI PIIPPP PAAAAPAPAAAAAPAPAPAPAAAAPAPAPAPAPAPAAAAAAAA 111111 RRRRRRR 44444444 \\\\\\\\\\\\\\T BW A TB W A W A W A W A W A BWWWTB W TB W TBTBTTTB W A TB W A W A W A W A W A BWWWBWTB W TBTBTT Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS „Það er búið að vera ýmislegt í gangi,“ segir Dísa Jakobs tónlistarkona en hún er með mörg járn í eld- inum í Danmörku. „Ég var að setja saman nýja hljóm- sveit,“ segir Dísa en hún hitaði upp fyrir Ellie Gould- ing fyrr á árinu. „Það var rosalega skemmtilegt, við spiluðum á stað sem heitir Tap1,“ segir Dísa, en um síðustu helgi hitaði hún líka upp fyrir Ásgeir Trausta. „Síðan er ég náttúrulega með efni í svona þrjár plöt- ur,“ segir Dísa. Það er útgáfufyrirtækið Tigerspring sem gefur út tónlist hennar en hún einbeitir sér að því að gefa út smáskífur frekar en stórar plötur. „Það er einhvern veginn meira frelsi í því. Annars verður það svo stór pakki að gefa út eina stóra plötu,“ segir Dísa en hún er að leggja lokahönd á nýjasta lag sitt, Marry You. „Þetta er popplag með pakistönsku ívafi og hörðum takti.“ Dísa stefnir að því að gefa út lagið ásamt tón- listarmyndbandi á næstu vikum. Máni Sigfússon gerði myndbandið fyrir síðasta lag hennar, Stones. „Hann Máni er algjör snillingur, myndbandið var rosalega flott,“ segir Dísa en ásamt því að semja og spila tónlist þá er hún í lagasmíðanámi við Tónlistar- akademíuna í Kaupmannahöfn. „Mér finnst ég samt búin að vera hérna aðeins of lengi. Ég ætla að klára námið og síðan er ég mjög til í að prófa eitthvað nýtt.“ - bþ Hitaði upp fyrir Ellie Goulding Dísa Jakobs kann vel við sig hjá danska útgáfufyrirtækinu Tigerspring. LÍKAR VEL FRELSIÐ Dísa einbeitir sér frekar að smáskífum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.