Fréttablaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 54
9. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 26 Sjónvarpskonan og fyrirsætan Peaches Geldof fannst látin rétt eftir hádegi á heimili sínu í Wrot- ham í Kent á Englandi á mánu- dag, aðeins 25 ára að aldri. Peac- hes var dóttir tónlistarmannsins Bobs Geld of og fyrirsætunnar og sjónvarpskonunnar Paulu Yates en móðir hennar lést úr ofneyslu fíkni- efna þegar Peaches var aðeins ell- efu ára. Peaches skilur eftir sig eiginmann, söngvarann Thomas Cohen, og tvo unga syni, Astala Dylan Willow, 23ja mánaða og Phaedra Bloom Forever, sem verð- ur eins árs þann 24. apríl. Engin fíkniefni eða sjálfsmorðs- bréf undust á heimili hennar að sögn lögreglu og engir sýnileg- ir áverkar voru á líki hennar. Því telur lögreglan að andlát hennar hafi ekki borið að með grunsam- legum hætti. Peaches á tvær alsystur, Fifi og Pixie, 23 ára, og eina hálfsyst- ur, Tiger Lily, sem Paula átti með INXS-rokkaranum Michael Hutch- ence heitnum. Bob og Paula skildu árið 1996 og í kjölfarið byrjaði Paula með Micha- el. Í viðtali við Elle fyrir tveimur árum sagði Peaches að skilnaður- inn hefði tekið mikið á sig. „Móðir mín breyttist úr því að vera undraverð kona sem skrifaði bækur um uppeldi og gaf okkur friðsæla barnæsku í Kent yfir í niðurbrotna konu sem þurfti að neyta lyfja til að komast í gegn- um daginn. Ofan á það var faðir minn mjög þunglyndur vegna þess og andrúmsloftið var ómögulegt fyrir okkur börnin. Við vorum í viku í senn með móður okkar sem var algjör óreiða og síðan viku hjá föður okkar sem var í anda Dickens – heimavinna, kvöldmatur, svefn – því hann var á sinn hátt að reyna að vega upp á móti því sem gerðist heima hjá mömmu,“ sagði Peaches. Michael Hutchence hengdi sig í hótelher- bergi í Sydney í Ástralíu árið 1997 og þrem- ur árum seinna lést Paula úr of stórum lyfja- skammti. Þegar Peach- es var þrett- án ára dundu enn ein ósköpin yfir þegar hún var greind með fjölblöðrueggja- stokkaheilkenni og sögðu læknar að ólíklegt væri að hún gæti eign- ast börn. Á unglingsaldr- inum var hún þekkt sem aðalpartípí- an í London og neytti mikils áfengis og vímuefna. Hún var handtekin fyrir búðar- þjófnað og var aðeins nítján ára þegar hún giftist tónlistarmann- inum Max Drummey í Las Vegas. Þau skildu hálfu ári síðar. Árið 2008 þurfti hún aðstoð sjúkra- liða þegar hún tók of stór- an skammt eiturlyfja og hætti að anda um tíma. Sama ár viðurkenndi hún fíkniefnaneyslu sína. „Þetta er eitthvað sem fólk fer í gegn- um á lífsleiðinni, sérstaklega þegar það elst upp í Lond- on. Ég datt í það og fór í partí en ég var ekki það villt. Ég hefði getað verið það. Þetta hefði getað farið úr böndunum en ég hafði alltaf hugfast það sem kom fyrir móður mína.“ Þrátt fyrir þessi orð Peach es héldu margir að hún myndi feta í fótspor móður sinnar allt þar til hún giftist tónlistarmanninum Thomas Cohen í september árið 2012 í kirkju í Davington, þeirri sömu og foreldrar hennar létu gefa sig saman í 26 árum áður. Þá voru þau búin að eign- ast eitt barn og annað á leiðinni sem Peaches taldi vera mikla blessun. Hún var í viðtali við tímaritið Mother & Baby innan við mánuði áður en hún lést þar sem hún talaði mikið um fjöl- skyldulífið. „Ég ætla ekki að bregðast sonum mínum, ekkert mun fá mig til þess. Þegar ég varð móðir var eins og ég væri ég, loksins.“ Thomas sendi frá sér yfirlýsingu stuttu eftir að tilkynnt var um and- lát Peaches á mánudag. „Mín elskulega eiginkona Peach- es var dáð af mér og sonum sínum tveimur, Astala og Phaedra, og ég el þá upp með móður sína í hjarta á hverjum degi. Við munum elska hana að eilífu.“ „Við munum elska hana að eilífu“ Peaches Geldof, dóttir tónlistarmannsins Bobs Geldof og Paulu Yates, fannst látin á heimili sínu á mánudag, 25 ára að aldri. Peaches var þekkt sem mikil partípía á sínum yngri árum en eft ir að hún gift ist tónlistarmanninum Thomas Cohen og eignaðist með honum tvo syni breyttist hún í mikla fj ölskyldumanneskju. Lögreglan telur ekki að andlát hennar hafi borið að með grunsamlegum hætti. „Greyið elsku Peaches Geldof. Við töluðum saman fyrir aðeins mánuði síðan og hún leit út eins og engill. Þetta er virkilega dapurlegt. Greyið Bob! R.I.P.“ - Boy George „Hugsanir mínar eru hjá fjölskyldu Peaches á þessum hræðilega tíma. Ég vona að þau geti syrgt í friði. Peaches, hvíl í friði fallega stúlka.“ - Lily Allen „Peaches! Þú fallega vera. Hvíl þú hjá englunum. Hugsanir mínar og bænir fara til allra sem þekktu og elskuðu þig.“ - Alyssa Milano „Sumt er ekki hægt að útskýra eða skilja þó maður haldi að maður sé með allt á hreinu. Tvö falleg börn. RIP Peaches.“ - Ellie Goulding „Þú varst sindrandi, yndisleg manneskja sem sýndir mér svo mikla vinsemd. Hvíl í friði Peaches.“ - Lorde „Mjög sorglegt að heyra um andlát Peaches Geldof, 25 ára að aldri. Þvílík synd. Ég sendi góðar hugsanir og ást til allrar fjölskyldu hennar.“ - Jamie Oliver. STJÖRNURNAR MINNAST PEACHES Síðasta myndin sem Peaches deildi á Instagram-síðu sinni var gömul mynd af henni og móður hennar, Paulu Yates, og við hana skrifaði hún einfaldlega „ég og mamma“. Paula var sjónvarpskona líkt og dóttirin og lést úr of stórum heróínskammti árið 2000. Þá var Peaches aðeins ellefu ára. Paula var 41 árs þegar hún lést og fannst á heimili sínu í Notting Hill í London. Peaches talaði um dauða móður sinnar við tímaritið Elle fyrir ekki svo löngu og sagðist muna vel eftir þessum örlagaríka degi. „Ég man eftir deginum þegar móðir mín dó og það er enn erfitt að tala um hann. Ég lokaði bara á þennan atburð. Ég fór í skólann næsta dag því faðir minn brýndi fyrir mér að vera róleg og halda áfram. Þannig að við fórum öll í skólann og reyndum að láta eins og ekkert hefði gerst. En það gerðist. Ég syrgði ekki. Ég grét ekki við jarðarförina hennar. Ég gat ekki tjáð neinar tilfinningar því ég var of dofin. Ég byrjaði ekki að syrgja móður mína almennilega fyrr en ég var kannski sextán ára.“ „Ég og mamma“ PEACHES GELDOF RINGULREIÐ Paula og Michael ásamt Peaches og alsystrum hennar tveimur, Fifi og Pixie Geldof. Á BRÚÐKAUPSDAGINN Peaches giftist Thomas Cohen árið 2012. Á myndinni er sonur þeirra, Astala, og faðir hennar, Bob Geldof. ÆTLAÐI EKKI AÐ BREGÐAST ÞEIM Peaches ásamt sonum sínum tveimur í desember í fyrra. Ég datt í það og fór í partí en ég var ekki það villt. Ég hefði getað verið það. Þetta hefði getað farið úr böndunum en ég hafði alltaf hugfast það sem kom fyrir móður mína. Peaches Geldof Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is HÆFILEIKARÍK Peaches vann til dæmis sem fyrirsæta en hér er hún á tísku- vikunni í París á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Græjaðu fermingargjafirnar! Kláraðu kaupin hér! Hljómskærustu pakkarnir Bose SoundLink Mini hljómtæki Verð: 39.990 kr. Sony Bluetooth hljómtæki Tilboð: 15.192 kr. Plantronics RIG heyrnartól Verð: 21.900 kr. Þráðlaus og létt græja. Tengist við snjallsíma. Flott hulstur fylgir. Ótrúlega fínn hljómur sem hægt er að tengja við snjallsíma. Frábær heyrnatól fyrir tölvuleikjasnillinginn. Borgartúni 37 / Kaupangi Akureyri nyherji.is/fermingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.