Fréttablaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 41
7 | 9. apríl 2014 | miðvikudagur
í „óhefðbundnar aðgerðir“ til
að ýta upp verðlagi. Slíkar að-
gerðir gætu verið kaup á skulda-
bréfum eða aðrar eignir en bæði
Seðlabanki Bandaríkjanna og
Japan hafa gert slíkt til að örva
sín hagkerfi.
Orð Lagarde vöktu ekki góð
viðbrögð hjá bankastjóra Seðla-
banka Evrópu, Mario Draghi,
sem svaraði henni meinfýsi-
lega og sagði að AGS hefði verið
mjög örlátur á tillögur um hvað
bankinn ætti eða ætti ekki að
gera og bætti við að hann væri
ósammála.
Þrátt fyrir þetta er gert ráð
fyrir að AGS muni ítreka skila-
boð sín til bankans um að vera
sókndjarfur.
ÁHYGGJUR AF VERÐBÓLGU
Verðbólga í evrulöndunum átján
féll niður í 0,5 prósent í síðasta
mánuði. Þrátt fyrir að neytend-
ur kunni að meta lágt verð getur
of lág verðbólga hamlað vexti.
Fólk og fyrirtæki fresta kaup-
um vitandi að verðið verði hag-
stæðara í næsta mánuði. Þannig
verði erfiðara að greiða skuld-
ir og þetta er mjög erfitt vanda-
mál í Evrópu þar sem mörg ríki
berjast við miklar skuldir.
Mjög lág verðbólga veldur
einnig hættu á verðhjöðnun,
sem lækkar laun og verð og gæti
valdið efnahagslægð.
Á fundunum um helgina munu
þróunarlöndin líklegast ýta á
eftir frekara samstarfi milli
seðlabankanna um peninga-
stefnu. Mörg þeirra segjast hafa
skaðast vegna takmarkaðri að-
gerða frá bandaríska seðla-
bankanum á þessu ári. Bank-
inn hefur dregið úr skuldabréfa-
kaupum sínum sem var ætlað að
halda þarlendum vöxtum lágum
og hvetja til frekari eyðslu.
En útlit fyrir hærri vexti í
Bandaríkjunum hefur orðið
þess valdandi að fjárfestar
draga fjármuni frá þróunar-
löndunum og endurfjárfesta í
Bandaríkjunum til að ná betri
árangri. Slíkur flótti hefur vald-
ið því að gjaldmiðlar í Tyrk-
landi, Suður-Afríku og annars
staðar hafa hrunið í verði.
Eswar Prasad, fyrrverandi
starfsmaður AGS, sagði að mörg
ríki í Asíu myndu líklegast hafa
sömu áhyggjur af japanska og
kínverska seðlabankanum.
Talið er að meira samstarf
milli seðlabanka heimsins geti
tekið á einhverjum af þessum
áhyggjum.
Bandaríkin gætu einnig orðið
fyrir gagnrýni þar sem banda-
ríska þingið hefur neitað að
samþykkja breytingar á AGS
sem gerði þróunarlöndunum
kleift að hafa meiri áhrif.
LÍTIÐ MINNST Á ÍSLAND
Sjóðurinn birtir lítið af upplýs-
ingum um minni lönd í spá sinni.
Spá á efnahagshorfum á Íslandi
er aðeins að finna í einni töflu,
þar sem fram kemur að AGS
gerir ráð fyrir að hagvöxtur
hérlendis fari úr 2,9 prósentum
á árinu 2013 í 3,1 prósent á árinu
2015 samkvæmt nýrri hagspá
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þá
fari atvinnuleysi úr 4,4 prósent-
um í 3,7 prósent á sama tíma.
Á sama stað er spáð 1,5 pró-
senta hagvexti á næsta ári í Dan-
mörku, en hann fari í 1,7 árið þar
á eftir. Í Noregi verður hann 1,8
prósent árið 2013 og 1,9 prósent
á árinu 2015. Atvinnuleysi í Nor-
egi stendur í stað í ár sem og
næstu tvö ár og verður 3,5 pró-
sent. Í Danmörku er spáð sjö pró-
senta atvinnuleysi í ár en það
fari niður í 6,8 prósent á næsta
ári og 6,7 prósent á árinu 2015. Í
Svíþjóð verði hagvöxtur 1,5 pró-
sent í ár, aukist á næsta ári í 2,8
prósent en á sama ári verði at-
vinnuleysi þar átta prósent.
2012 2013 2014
Evrópa 0,5% 1,7% 1,9%
Þýskaland -0,5% 1,2% 1,5%
Frakkland 0,3% 1,0% 1,5%
Ítalía -1,9% 0,6% 1,1%
Spánn -1,2% 0,9% 1,0%
Holland -0,8% 0,8% 1,6%
Belgía 0,2% 1,2% 1,2%
Austurríki 0,4% 1,7% 1,7%
Grikkland -3,9% 0,6% 2,9%
Portúgal -1,4% 1,2% 1,5%
Finnland -1,4% 0,3% 1,1%
Írland -0,3% 1,7% 2,5%
2012 2013 2014
Slóvakía 0,9% 2,3% 3,0%
Slóvenía -1,1% 0,3% 0,9%
Lúxemborg 2,0% 2,1% 1,9%
Lettland 4,1% 3,8% 4,4%
Eistland 0,8% 2,4% 3,2%
Kýpur -6,0% -4,8% 0,9%
Malta 2,4% 1,8% 1,8%
Bretland 1,8% 2,9% 2,5%
Svíþjóð 1,5% 2,8% 2,6%
Sviss 2,0% 2,1% 2,2%
Tékkland -0,9% 1,9% 2,0%
Noregur 0,8% 1,8% 1,9%
2012 2013 2014
Danmörk 0,4% 1,5% 1,7%
Ísland 2,9% 2,7% 3,1%
San Marínó -3,2% 0,0% 2,2%
Tyrkland 4,3% 2,3% 3,1%
Pólland 1,6% 3,1% 3,3%
Rúmenía 3,5% 2,2% 2,5%
Ungverjaland 1,1% 2,0% 1,7%
Búlgaría 0,9% 1,6% 2,5%
Serbía 2,5% 1,0% 1,5%
Króatía -0,1% -0,6% 0,4%
Litháen 3,3% 3,3% 3,5%
HAGVÖXTUR Í LÖNDUM EVRÓPU SAMKVÆMT SPÁ AGS