Fréttablaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 8
9. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
DÓMSTÓLAR Tveir karlmenn um
tvítugt hafa verið dæmdir í 18
mánaða fangelsi, þar af 15 skil-
orðsbundna, fyrir fólskulega lík-
amsárás á Hallbjörn Hjartarson
tónlistarmann.
Dómur var
kveðinn upp í Hér-
aðsdómi Norður-
lands vestra í gær.
Hallbjörn var á
gjörgæslu í átta
daga eftir árásina
og dvaldi á sjúkra-
húsi í nokkrar vikur. Árásin átti
sér stað í febrúar 2013.
Árásarmennirnir báru fyrir
dómi að árásin hefði tengst kyn-
ferðisbroti Hallbjörns gegn þeim.
Þeir hafi verið ölvaðir og æstir
þegar þeir fóru heim til Hallbjörns
og brutust þar inn.
Hallbjörn er ákærður fyrir kyn-
ferðisbrot gegn tveimur piltum og
fer aðalmeðferð í því máli fram í
Héraðsdómi Norðurlands vestra í
dag. - sáp
Árás á Hallbjörn Hjartarson:
Tveir fengu 18
mánaða dóm
HALLBJÖRN
HJARTARSON
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
8BLSBÆKLINGURNETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
NR40
RISA
PÁSKA
EGG
HEPPIN
N FACE
BOOK V
INUR
VINNUR
3KG P
ÁSKAE
GG
FRÁ FR
EYJU:)
FRÍTT
SENDUM
ALLAR VÖRURTIL PÁSKA
KRÍMSKAGI Fulltrúar Atlantshafs-
bandalagsins og Evrópusambands-
ins hafa lýst áhyggjum yfir að inn-
limun Krímskaga sé aðeins fyrsti
liðurinn í valdabaráttu Rússlands
og Úkraínu. Óttast er að Rúss-
ar stefni á yfirráð yfir enn fleiri
landssvæðum.
Evrópu- og Atlantshafsbanda-
lagið fordæma innlimunina og
segja hana ólöglega og vara Rússa
við að ganga enn lengra.
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, lýsti því yfir að
þvingunum yrði beitt af fullum
þunga láti Rússar ekki af aðgerð-
unum og flytji allt herlið til baka
frá landamærum Úkraínu.
Kerry fundar í næstu viku með
utanríkisráðherra Rússlands.
Framkvæmdastjóri NATO,
Anders Fogh Rasmussen, segir
að aðgerðirnar séu söguleg mis-
tök sem muni hafa alvarlegar
afleiðingar fyrir samskipti Rúss-
lands við Bandaríkin, og að Rúss-
land muni þannig einangra sig enn
frekar frá alþjóðasamfélaginu.
Mikil ólga og óeirðir ríkja í
Úkraínu, og í gær brutust út slags-
mál í þinginu á milli þjóðernis- og
aðskilnaðarsinna í umræðum um
atburðina síðustu misseri, þegar
tugir mótmælenda voru myrtir á
Sjálfstæðistorginu.
Nú þegar hefur þurft að binda
enda á fjölmörg umsátur Rúss-
landssinna við stjórnarbyggingar
en ítrekað hefur verið ráðist inn í
þær og rússneska fánanum sveifl-
að. Stjórnvöld hafa hert öryggisað-
gerðir í byggingunum til muna og
þingið samþykkti nýlega að herða
refsingar gagnvart mótmælend-
um, því þeir séu taldir vera ógn
við þjóðaröryggi landsins.
Vladímír Pútín segist munu gera
allt til að vernda Rússlandssinna í
Úkraínu gagnvart aðgerðum lög-
reglu.
Viktori Janúkovítsj, fyrrver-
andi forseta Úkraínu, var steypt
af stóli fyrr á þessu ári eftir
hörð mótmæli í Kænugarði, og
er mótmælunum, sem nú skekja
landið, talið svipa til þeirra.
julia@frettabladid.is
Rússum hótað
þvingunum
og einangrun
Ekkert lát er á óeirðunum í Úkraínu og ofbeldið eykst
með hverjum degi. Alþjóðasamfélagið hefur lýst yfir
áhyggjum vegna aðgerða Rússa og stefnir í harðar
efnahags- og viðskiptalegar þvinganir.
RÚSSLANDSSINNAR MÓTMÆLA Stjórnvöld í Úkraínu hafa bundið enda á enn eitt
umsátrið en mótmælendur halda sínu striki. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Til handalögmála kom í úkra-
ínska þinginu í gær í umræðum
um mótmælin í landinu.
Slagsmálin brutust út skömmu
eftir að Úkraína samþykkti að
grípa til refsiaðgerða gegn að-
skilnaðarsinnum sem standa fyrir
umsátri í opinberum byggingum.
Tveir fulltrúar þjóðernis-
flokksins mótmæltu ásökunum
kommúnistans Petros Symosj-
enko um að þjóðernissinnar
hefðu selt sig í hendur Rússa, og
veittust að honum í ræðupúlti
með þeim afleiðingum að flokks-
menn beggja flokka slógust.
Slagsmál í þinginu