Fréttablaðið - 28.04.2014, Síða 13

Fréttablaðið - 28.04.2014, Síða 13
MÁNUDAGUR 28. apríl 2014 | SKOÐUN | 13 AF NETINU Efast um foringjann Æ fleiri framsóknar- menn efast nú um stjórnunarhæfileika Sig- mundar Davíðs Gunn- laugssonar formanns flokksins í kjölfar ákvörðunar Guðna Ágústssonar um að hætta við framboð í Reykjavík en Sigmundur mun hafa komið að því máli. [...] Enginn forystumaður Fram- sóknar virðist nú vera tilbúinn til að koma opinberlega fram fyrir hönd flokksins eða tala í hans nafni um ástandið innan hans. Þess í stað eru sendar út stuttar fréttatilkynningar og óljós skilaboð. Uppákoman í tengslum við ekki-framboð Guðna Ágústssonar gæti því haft dýpri og alvarlegri afleiðingar fyrir flokkinn en ætla mætti í fyrstu. http://herdubreid.is/author/ bjornvalur/ Björn Valur Gíslason Minni fl okkspólitík Kosningabaráttan fyrir borgarstjórnar- kosningarnar sem eru eftir mánuð fer hægt og nokkuð óvenjulega af stað. Maður myndi eiginlega ekki lá borgarbúum þótt þeir vissu ekki af kosningunum. Landslagið er gerbreytt. Þetta er hætt að vera spurning um Sjálfstæðisflokkinn og vinstri flokkana sem berjast um borgina. Það er liðin tíð– og fólk kærir sig heldur ekki um slíka pólitík í borginni. http://eyjan.pressan.is/silfuregils Egill Helgason ISUZU D-MAX ER EINN HAGKVÆMASTI OG STERKASTI PALLBÍLL SEM UM GETUR 35OO kg EYÐSLA AÐEINS 7,4 l/1OO km* • • • • • • • • • E N N E M M / S ÍA / N M 6 2 3 4 1 – * M ið a st v ið b e in sk ip ta n b íl í b lö n d u ð u m a k st ri . BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.bilahusid.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 NÝTT MEIRI DRÁTTARGETA Þegar ein báran rís er önnur vís. Fyrst var það með yfirtökunni á Krím- skaga að Rússland færði út landamæri sín til vest- urs í skjóli hervalds. Síðan fékk stefnan, sem Vladimír Pútin kennir við „Novoross- iya“, fljótlega sína birting- armynd á Norðurslóðum. Þannig var fyrirsögnin í fréttatilkynningu frá rúss- nesku fréttastofunni RIA Novosti þann 22. apríl: Russia to Build Network of Mod- ern Naval Bases in Arctic - Putin. Haft er eftir forsetanum: „Við þurfum að styrkja okkar hernað- arlegu innviði. Sérstaklega þarf að að koma upp samhæfðu neti flota- bækistöðva vegna nýrrar kynslóð- ar skipa og kafbáta.“ Þessari endurskipulagningu skal lokið 2014. Um er að ræða opnun tveggja flugvalla og hafna við Íshafið og sjö flugvalla ann- ars staðar sem lokað var 1993. Norðurflotinn verður með 40 ný skip 2020 og nýir ísbrjótar, bæði kjarnorku- og dísilknúðir, eru í smíðum. Yfirflug sprengjuflug- véla frá Kolaskaga inn í loftrým- issvæði NATO hófst 23. apríl með slíkri heimsókn til Skotlands. Ekki verður betur séð en að Rússar búi sig undir að líta á Íshafið sem sitt eigið, mare nostrum eins og Róm- verjar til forna sögðu um Miðjarð- arhafið. Með tímanum hefur staða Íslands í öryggislegu tilliti orðið æ sérkennilegri. Þar koma bæði til gjörbreyting ytri aðstæðna og hið heimatilbúna. Ísland er eina aðild- arríki Atlantshafsbandalagsins, sem bæði er í lausum pólitískum tengslum við helstu Evrópuríkin og án landvarna, frá því að vera með takmark- aðir loftvarnir fram til 2006. Íslensk stjórnvöld töldu óráðlegt að banda- ríski flugherinn hyrfi héðan með öllu og hafa sennilega notið stuðnings ýmissa annarra en þáver- andi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Eftir brottförina frá Keflavík hefur áhugi Atlantshafs- bandalagsins á Norður- slóðum verið með minnsta móti enda vóg stríðsrekstur í Afganist- an þyngra en annað. Bandaríkjamenn borga ekki Því var það væntanlega, að Kín- verjar hafa talið sér leik á borði í að flétta Ísland inn í sín áform enda ekki skort áeggjan af æðstu stöðum. Kínverjar eru þrotlaus- ir í að nýta jarðgæði um heim allan. Það á við um námavinnslu á Grænlandi, olíu- og gasvinnslu á hafsbotni hér um kring og ekki hvað síst í mikilli hafnaraðstöðu á Íslandi vegna hinnar nýju norð- austur-siglingaleiðar um heim- skautið. Fari svo að Rússar drottni í norðri ætti bandalag þeirra og Kínverja að duga þeim síðar- nefndu til einhvers. Vonandi bera aðgerðir Banda- ríkjanna og Evrópusambands- ins um að hefta yfirtöku Rússa á hinum rússneskumælandi aust- urhéruðum Úkraínu árangur. Nú ríkir spenna með mannfalli og ögrandi yfirlýsingum í stað við- leitni um þá augljósu lausn, að komið sé á fót úkraínsku þjóð- félagi með verulegri sjálfstjórn í vestur- og austurhlutum lands- ins. En það kann að vera borin von, að einfaldar lausnir finnist í gömlum deilumálum og flækj- ast inn í austur-vestur samskipt- in fyrrum og upplausn Sovét- ríkjanna. Þar er ekki að finna forsendur fyrir því að nú leiði til nýs kalds stríðs. Afskrifa verður þann möguleika að vopnuð átök verði vegna Úkraínu. Ekkert Evr- ópuríki er reiðubúið til að heyja stríð vegna þessarar deilu. Varnir NATO-ríkja, sem njóta tækniyfir- burða Bandaríkjanna, útiloka árás á þau enda yrði slíkt tilefni heims- styrjaldar. Bandarísk stjórnvöld hafa um skeið gert bandamönnum sínum í NATO það fullljóst, að þeim er óásættanlegt að standa straum af bróðurhluta sameiginlegs varn- arkostnaðar. Í þeim efnum verð- ur Evrópa að sjá um sig sjálf og taka þá forystu sem nauðsynleg er. Ekki er annarra kosta völ en að aðildarríki ESB, innan NATO eða utan, standi saman í varnar og öryggismálum. Til marks má taka loftrýmisgæsluna á Íslandi. Tvö ESB-ríki, Svíþjóð og Finn- land, utan NATO senda sínar orr- ustuþotur til Íslands undir forystu Norðmanna og er þar með ný vídd fengin í Norðurlandasamstarfinu. Tækifæri til virkrar samvinnu Öryggi nágranna Úkraínu er ekki hvað síst það að vera innan sam- eiginlegra landamæra ESB, sem tryggir þau, samkvæmt Lissa- bon-sáttmálanum. Einmitt það gerðu Finnland og Eystrasalts- ríkin vegna framtíðar sinnar sem fullvalda lýðræðisríki. Það sama á vissulega við um Ísland. Stefnu- mörkun í norðurskautsmálum er tækifæri að ná aftur virkari sam- vinnu við Bandaríkin um gagn- kvæm öryggis- og varnarmál, svo sem nauðsynlegt er. Önnur hlið þjóðaröryggis lýtur að hinu efna- hags- og viðskiptalega og þar er rétt ólokið því verki að samningur sýni svart á hvítu hvaða kjör bjóð- ast við aðild að Evrópusamband- inu. Fyrir liggur að samningavið- ræðurnar höfðu gengið vel, skilað miklu og að meirihluti landsmanna vill að þeim sé lokið. Líta verður til ESB-aðildar okkar í því víðara samhengi, að með því að staðfesta að hér eru norðurmörk Evrópu- þjóða, yrðu Íslendingar til þess að leggja sinn mikla skerf til um auk- inn stöðugleika á Norðurslóðum. Þegar ein báran rís UTANRÍKISMÁL Einar Benediktsson, fyrrverandi sendiherra. ➜ Önnur hlið þjóða- öryggis lýtur að hinu efnahags- og viðskipta- lega og þar er rétt ólokið því verki að samningur sýni svart á hvítu hvaða kjör bjóðast við aðild að Evrópusambandinu. Fyrir liggur að samningavið- ræðurnar höfðu gengið vel, skilað miklu og að meirihluti landsmanna vill að þeim sé lokið. Líta verður til ESB-aðildar okkar í því víðara sam- hengi, að með því að stað- festa að hér eru norður- mörk Evrópuþjóða, yrðu Íslendingar til þess að leggja sinn mikla skerf til um aukinn stöðugleika á Norðurslóðum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.