Fréttablaðið - 28.04.2014, Blaðsíða 38
28. apríl 2014 MÁNUDAGUR| MENNING | 18
www.islandus.is — facebook.com/islandusbilar — Sími: 552 2000
Sparaðu 2 milljónir! - 100% ármögnun og Íslensk ábyrgð í boði.
Lá u bensínsparnaðinn borga bílinn!
Ra íllinn Ókeypis
Lægsta verð frá Evrópu & USA
Ra íll er um 90% ódýrari í rekstri en bensín
eða díselbíll. Sumir viðskiptavina islandus.is
spara svo mikið að þegar upp er staðið kostar
ra íllinn ekkert. Sparnaður stendur að fullu
undir a orgunum.
r illj ir! - r Í l r í i.
Eigum Citroen Berlingo
ra íl l afgreiðslu
strax. Kíktu á hann við
Tékkland Holtagörðum.
LEIKLIST ★★★★ ★
Eldraunin
Þjóðleikhúsið - Stóra svið
HÖFUNDUR ARTHUR MILLER
LEIKSTJÓRI STEFAN METZ
HLJÓÐMYND HALLDÓR SNÆR BJARNASON
LEIKMYND OG BÚNINGAR SEAN MACKAOUI
LÝSING ÓLAFUR ÁGÚST STEFÁNSSON
ÞÝÐING KRISTJÁN ÞÓRÐUR HRAFNSSON
Þar sem frumsýning Þjóðleikhússins síðastliðið föstudags-
kvöld var óður til sannleikans er réttast að tala hreint út:
Nú er öld heimskunnar. Lýðræðið hefur keyrt inn blind-
götu; allar skoðanir eru metnar jafngildar burtséð frá því
hvort þær byggja á þekkingu eða ekki. Afsprengi þessa er
til að mynda sú einkennilega hugmynd, sem nú er viðtekin,
að á löggjafarþingi eigi að sitja þverskurður þjóðarinnar
en ekki þeir sem hæfastir eru til þess. Skynsemi má sín lít-
ils. Kæfandi pólitískur rétttrúnaður er ríkjandi, gagnrýnin
hugsun má víkja, tilgangurinn helgar meðalið og við slíkar
aðstæður nær bókstafstrú og ofstæki máli. Þetta eru hættu-
legir tímar því heimskan nærir illskuna. Þá er kölski í essinu
sínu og tekur sér bólstað þar sem síst skyldi – kannski jafn-
vel í brjóstum „góða fólksins“. Lærðir menn láta múgsefjun
kengbeygja sig – því það þjónar persónulegum hagsmunum
þeirra til skamms tíma.
Sérhagsmunir vatn á myllu kölska
Þjóðleikhúsið hittir beint í mark með verkefnavali sínu;
sinnir þeirri skyldu sinni að kynna áhorfendum sínum klass-
ískt verk sem jafnframt á brýnt erindi við íslenskan sam-
tíma. Þegar slíkt heppnast er leikhús eins og leikhús á að
vera. The Crucible, eða Eldraunin, eftir Arthur Miller er
snilldar vel skrifað – „well made play“ – sem byggir á sann-
sögulegum atburðum sem eru galdramál í þorpinu Salem í
Massachussets árið 1692. Verkið var ekki síður talið fjalla
um ritunartíma sinn, snemma á 6. áratug síðustu aldar
þegar McCarthyisminn óð hindrunarlaust uppi; óameríska
nefndin hundelti alla sem grunaðir voru um kommúnisma og
var Miller sjálfur einn þeirra sem kallaður var fyrir nefnd-
ina. Í Eldrauninni eru nokkrar ungar stúlkur staðnar að því
að dansa trylltar úti í skógi, í kjölfarið leggjast tvær veikar
og samstundis rísa raddir þess efnis að sá svarti hafi sent
útsendara sína á staðinn og vonlaust reynist að kveða þann
kvitt í kútinn. Stúlkurnar bregðast við með því að saka aðra
um að vera andsetnir. Góður jarðvegur er fyrir slíkar ásak-
anir og það sem gerir verkið að klassík er að fáviskan er
hvött áfram og helst í hendur við ýmsa sérhagsmuni – skyn-
semin má sín lítils gegn því þá er menn vilja verja stöðu sína
og sjá sér ekki hag í því að rísa upp gegn einhverju því sem
ekki stenst. Lítilmennska en hljómar því miður alltof kunn-
uglega.
Tímaleysi til grundvallar
Uppsetning Stefans Metz leikstjóra miðar að því að undir-
strika tímaleysi og að textinn fái notið sín í flutningi leikar-
anna. Leikmyndin er fremur einföld en áhrifarík og búning-
ar eru hlutlausir. Þó sá sem þetta ritar hefði gjarnan viljað
sjá tilraunir gerðar með að stíga skref í átt til nútímans þá
geta slíkar æfingar vitaskuld endað með ósköpum. Verkið
er kyrfilega skrifað inn í tiltekinn tíma. Lögnin er hugs-
uð þannig að áhorfandans er að setja verkið í samhengi og
uppsetningin fremur hefðbundin. Kristján Þórður Hrafns-
son þýðir verkið, sem áður hefur verið sett upp á Íslandi í
þýðingu Jakobs Benediktssonar. Hin nýja þýðingin er furðu
fornleg og mér liggur við að segja óþjál – ekki til þess fallin
að tengja við nútímann. Hún stendur nær ritmáli en talmáli
og gerir leikurum ekki auðvelt að ná hinni æskilegu teng-
ingu við Ísland dagsins í dag. Stundum fannst manni eins
og það vantaði bara þéringarnar. Þetta er nokkuð sem erfitt
hlýtur að vera fyrir erlendan leikstjóra að átta sig á. Þeim
mun meira afrek verður þá að teljast að hafa náð að kalla
fram það besta í sterkum leikhópi Þjóðleikhússins.
Leikarar fara á kostum
Þetta er fremur mannmörg sýning, átján leikarar taka þátt
og erfitt að taka einhvern sérstaklega út úr; allir áttu góðan
dag. Hilmir Snær Guðnason fer með hlutverk Johns Proctor
– hans síðasta hlutverk hjá Þjóðleikhúsinu að sinni. Hilmir
Snær hefur auðvitað sýnt á löngum og farsælum ferli að
hann er einn okkar allra bestu leikara. Hann fer sérlega vel
með hlutverk Proctors sem stendur frammi fyrir erfiðum
siðferðilegum spurningum. Samleikur hans og Margrétar
Vilhjálmsdóttur, sem fer með hlutverk konu Proctors, er
frábær en samband þeirra er langt í frá einfalt. Margrét fór
vel með sitt, lék á hófstilltum nótum og datt ekki í þá gryfju
að yfirdramatísera en sú hætta blasir við. Þjóðleikhúsið
hefur veðjað á Elmu Stefaníu Ágústsdóttur og ljóst að þar
fer mikið efni. Hún sýndi fyrr á þessu leikári mikinn styrk í
Harmsögu og er sem teiknuð í hlutverk Abigail – stúlkunnar
sem svífst einskis og steypir fólki í glötun ef það hentar. Það
gerir Elma Stefanía á snaggaralegan og sannfærandi hátt.
Ekki verður hjá því komist að nefna þann fjársjóð sem Þjóð-
leikhúsið á í fólki eins og Arnari Jónssyni, Guðrúnu Gísla-
dóttur og Sigurði Skúlasyni. Þau léku við hvurn sinn fingur
í þessu sterka verki og sköpuðu eftirtektarverðar persónur.
Það gerðu einnig Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Stefán Hallur
Stefánsson – svo einhver séu nefnd.
Jakob Bjarnar Grétarsson
NIÐURSTAÐA: Skoðun þess sem hér heldur um penna er sú að það
ætti að skylda alla landsmenn til að sjá þessa mjög svo góðu sýningu;
svo brýnt erindi á hún við íslenskan samtíma.
Heimskan nærir illskuna
ELDRAUNIN „Það ætti að skylda alla landsmenn til að sjá þessa
mjög svo góðu sýningu.“ MYND/ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
MENNING