Fréttablaðið - 28.04.2014, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 28.04.2014, Blaðsíða 14
28. apríl 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT Ástkær faðir okkar, afi og langafi, ARTHUR ÞÓR STEFÁNSSON húsasmíðameistari, andaðist fimmtudaginn 17. apríl síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju í dag klukkan 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Áslaug Arthursdóttir Oddgeir Þór Árnason Nanna Arthursdóttir Guðbergur Þorvaldsson Þorsteinn Arthursson Guðrún Petra Guðnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Vil færa alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, HARALDAR HERMANNSSONAR Frá Yzta-Mói, Fljótum, Sauðármýri 3, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á lyflækningadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og starfsfólki á deild 1 á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki fyrir einstaka nærgætni, alúð og hlýju í umönnun. Guðmunda Hermannsdóttir og fjölskylda Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁSLAUG THORLACIUS sem andaðist á dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Grund miðvikudaginn 16. apríl, verður jarðsett í Áskirkju þriðjudaginn 29. apríl klukkan 13.00. Örnólfur Thorlacius Rannveig Tryggvadóttir Kristín R. Thorlacius Kristín Bjarnadóttir Hallveig Thorlacius Ragnar Arnalds Kristján Thorlacius Ásdís Kristinsdóttir barnabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Leikkonan Penélope Cruz Sánchez fæddist í bænum Alcobendas í Madrid á Spáni þennan dag árið 1974 og fagnar því fertugsafmæli sínu í dag. Cruz lærði klassískan ballett á yngri árum en flutti síðar til Hollywood í Kaliforníu til að sinna leiklistinni af fullum hug. Fljótlega nældi hún sér í stór hlutverk með meðleikurum á morð við Matt Damon og Tom Cruise. Cruz hefur leikið í mörgum bandarískum kvikmyndum en einna helst ber að nefna kvikmyndirnar Blow, Vanilla Sky og Vicky Christina Barcelona. Árið 2009 vann hún Óskars- verðlaunin sem besta leikkona í auka- hlutverki fyrir Vicky Christina Barcelona en hún er fyrsta spænska konan sem hlýtur Óskarsverðlaun. Cruz hlaut einnig Goya- og BAFTA-verðlaunin fyrir leik sinn í þeirri mynd. Penélope Cruz hefur unnið þrenn Goya-verðlaun, tvenn evrópsk kvik- myndaverðlaun og verið valin besta leikkonan á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hún hefur ekki gleymt rótum sínum og hefur því valið að vinna mikið með spænska leikstjóranum Pedro Almodóvar. Árið 2010 giftist hún leikar- anum Javier Bardem og saman eiga þau börnin Leonard og Luna. ÞETTA GERÐIST 28. APRÍL 1974 Spænsk stórstjarna fæðist „Ég mun bjóða upp á bæði stuttar og langar ítalskar óperuaríur úr hinum og þessum stykkj- um. Tenóraríurnar eru oftast eins konar hetju- tenórsaríur þar sem karakterinn er mikil kempa og hástökkið í verkunum er þegar maður fer í háu tónana,“ segir stórtenórinn Jóhann Friðgeir Valdimarsson sem stígur á svið á hádegistón- leikum Íslensku óperunnar í dag. Hann hleyp- ur í skarðið fyrir Diddú sem forfallaðist vegna veikinda. „Mér finnst oft miklu auðveldara að syngja þegar ég er í karakter í búningnum í óperu en að koma fram á tónleikum. Í búningn- um á sviðinu líður mér einstaklega vel. Þegar ég er úti er ég með svona 10-15 óperur sem ég syng í og stundum þarf maður jafnvel að hlaupa í skarðið þegar einhver veikist svo að ég er vanur að stökkva til með litlum fyrirvara,“ segir hann. Jóhann Friðgeir er einn fremsti tenórsöngv- ari okkar Íslendinga og má búast við glæsi- legum og kraftmiklum flutningi á nokkrum af frægustu aríum óperubókmenntanna. Píanó- leikari er Antonía Hevesi og verða meðal annars fluttar óperuaríur eftir Verdi og fleiri óperutónskáld. Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum í Hörpu kl. 12.15 og er aðgangur ókeypis eins og að öllum hádegistónleikum Íslensku óperunnar undanfarin misseri. Jóhann Friðgeir hefur nóg fyrir stafni og seinna í sumar mun hann koma fram á tíu ára afmælistónleikum í Eldborg á vegum Íslensku óperunnar ásamt fleiri íslenskum tenórum. Hetjur og hástökkvarar á Hádegistónleikum Jóhann Friðgeir Valdimarsson á hádegistónleikum Íslensku óperunnar í Norðurljósum í Hörpu. JÓHANN FRIÐGEIR VALDIMARSSON ÓPERUTÓNLIST Jóhann Friðgeir Valdimarsson í hlutverki Manrico í óperunni Il Trovatore eftir Verdi hjá Íslensku óperunni haustið 2012. MYND/ GÍSLI EGILL HRAFNSSON MERKISATBURÐIR 1237 Bæjarbardagi er háður að Bæ í Borgarfirði og rúmlega þrjátíu manns láta lífið. 1819 Tukthúsið í Reykjavík verður embættisbústaður stiftamtmanns. 1920 Aserbaídsjan verður hluti af Sovétríkjunum. 1945 Benito Mussolini og Clara Petacci ástkona hans eru tekin af lífi. 1969 Charles de Gaulle lætur af for- setaembætti í Frakklandi. 1990 Axl Rose úr Guns and Roses kvænist Erin Everly. 2001 Bandaríski milljónamæringurinn Dennis Tito verður fyrsti geimferða- maður í heimi. 1993 - Alþingi samþykkir aukaaðild landsins að Vestur-Evrópusamband- inu. 2007 - AFL Starfsgreinafélag er mynd- að með sameiningu þriggja stéttar- félaga á Austurlandi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.