Fréttablaðið - 01.05.2014, Side 54
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
„Það er bæði mikill heiður fyrir okkur og einnig mikið gleðiefni að
fá að taka þetta frábæra og sérútbúna trommusett með í keppn ina,“
segir Arnar Þór Gíslason eða bleiki polli, trommuleikari Polla pönks,
en hann spilar á eitt vinsælasta og þekktasta trommusett Íslandssö-
gunnar, Dixarann, í Eurovision-keppninni í ár. Um er að ræða sögu-
frægt trommusett sem komið hefur víða við á sínum langa og merka
ferli.
Upphaf Dixarans má rekja til ársins 1983, en hann var það
ár keyptur glænýr af trommuleikaranum Benedikt Pálssyni í
hljóðfæraversluninni Tónkvísl á Laufásveginum í Reykjavík.
„Ég man enn eftir því þegar ég keypti trommusettið, hljóm urinn
heillaði mig frá fyrstu stundu,“ segir Benedikt Pálsson, eigandi
trommusettsins. Á árum áður lék Benedikt með einni vinsælustu
hljómsveit landsins, Glæsi, sem var þá húshljómsveit á skemmtistað-
num Glæsibæ og dvaldi Dixarinn sín fyrstu ár á sviði Glæsibæjar.
Þegar Benedikt lagði kjuðana á hilluna tók við afslöppunartíma bil
hjá Dixaranum. „Trommusettið beið í geymslunni þar til barnabarnið
mitt, Gunnar Leó Pálsson, fékk trommuáhugann og hefur settið verið
í stöðugri notkun síðan,“ bætir Benedikt við.
Dixarinn fór svo í mikið umbreytingarferli árið 2011 og var vínrauða filman
sem umlukið hafði trommuskelina alla tíð fjarlægð og settið fékk nýjan lit.
„Við ákváðum að lappa upp á settið og máluðum það neongrænt og höfðum
harðvöruna svarta. Settið var þar með orðið eitt það flottasta á landinu,“ segir
Jóhann Hjörleifsson trommuleikari, en hann tók þátt í því að breyta útliti
Dixarans.
Eftir að hafa deilt sviði með mörgum af þekktustu nöfnum íslenskrar
tónlistarsögu var komið að stóru stundinni, að fara í Eurovision og tók þá við
umbreytingarferli númer tvö og var það talsvert umfangsmeira. „Hann var
spartlaður, pússaður og málaður gulur en svarti liturinn fékk þó að vera áfram
á harðvörunni. Nú er Dixarinn svo sannarlega í sparifötunum,“ segir trom-
muleikarinn Einar Valur Scheving, en ásamt honum tóku þeir Jóhann, Oddur
Finnbogi Sigurbjörnsson, Þorbergur Ólafsson og Gunnar Leó Pálsson þátt í
umbreytingunni.
„Það var alveg stórkostlegt og gríðarlega fallegt hvernig tromm-
arar Íslands fylktu sér að baki okkur Pollapönkurum og eiga þeir
heiður og mikla þökk skilda,“ segir Arnar Þór Gíslason sem er
ákaflega sáttur með trommusettið. Það er mikil ást í trommusettinu
sem á eftir að skína á sviðinu, bætir Arnar Þór við.
Margir af þekktustu og vinsælustu trommuleikurum þjóðar-
innar hafa notað Dixarann á tónleikum og samkomum en þar ber
hæst Jóhann Hjörleifsson, Einar Valur Scheving, Birgir Nielsen og
Benedikt Brynleifsson. Þá hefur Arnar Þór einnig notað Dixarann á
tónleikum með Mugison.
Sérútbúið trommusett fyrir Pollana
Eitt vinsælasta og þekktasta trommusett landsins, Dixarinn, fylgir Pollapönki til Kaupmannahafnar í Eurovision. „Það er mikill fengur
fyrir okkur að fá Dixarann með okkur út, það er mikil ást í þessu trommusetti og Dixarinn á eft ir að hjálpa okkur mikið í keppninni.“
Dixarinn hefur komið fram með mörgum af þekktustu listamönnum
þjóðarinnar og þar ber helst að nefna nöfn á borð við: Sálina hans Jóns
míns, 200.000 naglbíta, Eyþór Inga og Atómskáldin, 88, Mugison, Land og
sonum, Agli Ólafssyni, Regínu Ósk, Mannakornum, Made in Sveitin, Hvar er
Mjallvít, SSSól, Micka Frurry, Reiðmenn vindanna og svo mætti lengi telja.
Piltarnir í Pollapönki eru stoltir yfir að fá þetta vinsæla hljóðfæri í lið
með sér í Eurovision.
MEÐ HVERJUM HEFUR DIXARINN FARIÐ Á SVIÐ?
Jóhann Hjörleifsson, sem er meðal annars trommuleikari Sálarinnar
hans Jóns míns og Stórsveitar Reykjavíkur, hefur leikið á Dixarann. „Mín
reynsla af Dixaranum er alveg dásamleg. Hljómurinn og tónninn eru til
mikillar fyrirmyndar,“ segir Jóhann um trommusettið. Hann á sinn þátt
í því að Dixarinn er orðinn að einu vinsælasta trommusetti landsins.
„Þegar ég komst að því að þetta trommusett var lokað niður í kjallara-
geymslu í Breiðholti varð ég hissa og vildi ólmur leggja mitt af mörkum
til þess að gera það að notadrjúgu trommusetti,“ segir Einar Scheving,
sem notar Dixarann talsvert í dag.
Benedikt Brynleifsson, sem er meðal annars trommuleikari 200.000
naglbíta og Helga Björns, notar hvert tækifæri sem Dixarinn er laus
til þess að nota hann í sinni vinnu. „Dixarinn er einkar þægilegur og
skemmtilegur. Ég nota hann alltaf þegar hann er laus, hann er sennilega
eitt uppteknasta trommusett landsins,“ bætir Benedikt við en hann
saknar þó græna litarins og fannst sá litur klæða settið best.
UMSAGNIR ÍSLENSKRA TROMMULEIKARA
KLÁR Í SLAGINN Hér sjáum við Dix-
arann eftir umbreytingarferlið mikla
og er hann hér klár til brottfarar til
Kaupmannahafnar.
UPPRUNINN Hér sjáum við Dixarann
eins og hann leit út í upphafi, þá var hann
vínrauður og frekar óspennandi í útliti.
Á LEIÐINNI Þetta er síðasta myndin sem
til er af Dixaranum í græna litnum. Hér er
hann á leið í seinna umbreytingarferlið.